Fréttablaðið - 28.02.2004, Síða 41
41LAUGARDAGUR 28. febrúar 2004
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 1 2
FEBRÚAR
Laugardagur
Ísland mætir Skotlandi:
A-landsleik-
ur í Egilshöll
FÓTBOLTI Íslenska A-landsliðið í
kvennaflokki leikur vináttulands-
leik gegn Skotlandi í Egilshöll 13.
mars næstkomandi. Þetta verður
fyrsti A-landsleikurinn sem fer
fram innanhúss á Íslandi. Áður
hafði U-21 árs landslið kvenna
leikið í Egilshöll.
Ísland og Skotland hafa mæst
fjórum sinnum áður. Ísland hefur
unnið tvær viðureignir, einn leik-
ur endaði með jafntefli og Skotar
hafa unnið einu sinni.
Skotar voru fyrstu mótherjar
Íslendinga í landsleik kvennaliða.
Leikurinn fór fram í Kilmarnock
árið 1981 og sigruðu Skotar 3-2. ■
HANDBOLTI Grunnskólamóti
Reykjavíkur í handbolta lýkur á
morgun þegar Fossvogsskóli og
Álftamýrarskóli leika til úrslita í
strákaflokki og Álftamýrarskóli og
Grandaskóli í stelpnaflokki.
Áður leika Breiðholtsskóli og
Seljaskóli um þriðja sætið í stráka-
flokki og Selásskóli og Melaskóli í
stelpnaflokki. Leikirnir fara allir
fram í Laugardalshöll og hefst sá
fyrsti klukkan 9.30.
Úrvalslið mótsins voru kynnt í
gær. Stelpnaliðið skipa Guðrún
Fjóla Guðmundsdóttir, Melaskóla,
Kristín Sverrisdóttir, Álftamýrar-
skóla, Malen Björgvinsdóttir,
Breiðholtsskóla, Ásrún Birgisdótt-
ir, Grandaskóla, Sandra Geirmund-
ardóttir, Álftamýrarskóla,
Rebekka Guðmundsdóttir, Granda-
skóla, og Eva Rós Freysteinsdóttir,
Álftamýrarskóla.
Í strákaliðinu eru Orri Gunn-
arsson, Seljaskóla, Ari Arnaldsson,
Álftamýrarskóla, Jón Bjarki Odds-
son, Seljaskóla, Andri Ágústsson,
Álftamýrarskóla, Sigurður Lárus-
son, Fossvogsskóla, Sveinn Aron
Sveinsson, Rimaskóla, og Ásgeir
Bogi Arngrímsson, Fossvogskóla.
Selásskóli átti besta klapplið
mótsins, strákalið Ártúnsskóla og
stelpnalið Engjaskóla voru prúð-
ustu liðin og lið Rimaskóla voru í
flottustu búningunum. ■
Grunnskólamót Reykjavíkur:
Úrslit á sunnudag
■ ■ LEIKIR
15.00 Fylkir mætir KA í deildabik-
arkeppni karla í fótbolta.
17.15 Grindavík tekur á móti ÍR í 1.
deild kvenna í körfubolta.
17.00 Eyjastúlkur og Fram eigast
við í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
12.50 Bikarkeppnin í handbolta í
Sjónvarpinu. Bein útsending frá úrslita-
leik Hauka og ÍBV í kvennaflokki í Laug-
ardalshöll.
13.30 Inside the US PGA Tour
2004 á Sýn. Vikulegur fréttaþáttur þar
sem fjallað er um bandarísku mótaröð-
ina í golfi á nýstárlegan hátt.
14.00 Alltaf í boltanum á Sýn.
14.25 Þýski fótboltinn í beinni út-
sendingu á RÚV.
14.30 Trans World Sport á Sýn.
14.45 Enski boltinn í beinni á Stöð
2. Arsenal tekur á móti Charlton.
15.30 Supercross á Sýn. Nýjustu
fréttir frá heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
16.20 Bikarkeppnin í handbolta í
Sjónvarpinu. Bein útsending frá úrslita-
leik Fram og KA í karlaflokki í Laugar-
dalshöll.
16.30 Motorworld á Sýn.
17.00 Enski boltinn á Sýn.
18.40 Hnefaleikar á Sýn. MA Bar-
rera og Pacquiao eigast við.
20.20 Spænski boltinn í beinni út-
sendingu á Sýn.
22.25 Hnefaleikar á Sýn. Erik
Morales og MA Barrera eigast við.
02.00 Hnefaleikar í beinni útsend-
ingu á Sýn. Jesus Chavez og Erik Mora-
les eigast við.
Intersport-deildin:
Góður leikur Lewis
KÖRFUBOLTI Grindavík sigraði
Hamar 106-97 á heimavelli í loka-
leik 20. umferðar Intersport-
deildarinnar í körfubolta. Staðan í
leikhléi var 49-46 fyrir Grinda-
vík. Hamarsmenn leiddu 27-23
eftir fyrsta leikhluta og sóttu að
Grindvíkingum undir lokin en
sigur heimamanna var aldrei í
hættu.
Darrel Lewis átti mjög góðan
leik í liði Grindvíkinga. Hann
skoraði 27 stig og átti níu
stoðsendingar. Jackie Rogers
skoraði 25 stig og tók níu fráköst
og Páll Axel Vilbergsson skoraði
21 stig. Steinar Arason skoraði
fjórtán stig og Jóhann Þór Ólafs-
son ellefu en Guðmundur Braga-
son skoraði tvö stig, átti tíu
stoðsendingar og tók átta fráköst.
Lárus Jónsson skoraði 20 stig
fyrir Hamar, átti tólf stoðsend-
ingar og tók átta fráköst. Marvin
Valdimarsson skoraði nítján stig
en Faheem Nelson skoraði sextán
stig og tók tólf fráköst. Chris
Dade skoraði fimmtán stig fyrir
Hamar, Adrian Owens þrettán og
Svavar Pálsson ellefu. Owens tók
einnig ellefu fráköst.
Grindavík er enn í öðru sæti,
nú tveimur stigum á eftir Snæ-
felli, en Hamar er í áttunda sæti
og er öruggt með sæti í átta liða
úrslitum. ■
Leeds United:
Í lausu lofti
FÓTBOLTI Framtíð Leeds United er í
meiri óvissu en nokkru sinni fyrr
eftir að ljóst var að helstu lána-
drottnar félagsins vildu ekki veita
stjórn þess lengri frest til að finna
lausn á fjárhagsvandræðum
Leeds.
Leeds samdi upphaflega við
lánadrottnana í byrjun desember
og hefur fresturinn verið fram-
lengdur nokkrum sinnum. Í gær
tilkynnti stjórn félagsins að ekki
hefði náðst samkomulag um
lengri frest og í framhaldi af því
voru viðskipti með hlutabréf í fé-
laginu stöðvuð.
Með samkomulaginu hefur
Leeds hingað til komist hjá
greiðslustöðvun en ekki er ljóst
hvort greiðslustöðvun sé óhjá-
kvæmileg. Enn er möguleiki á að
hópur fjárfesta muni bjarga fé-
laginu. ■