Fréttablaðið - 02.03.2004, Síða 24
24 2. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
BROTHÆTT TILÞRIF
Brasilíski leikmaðurinn Ronaldinho sýndi
glæsileg tilþrif fyrir framan dómkirkjuna í
Santiago de Compostela í norðvesturhluta
Spánar. Ekki tókst þó betur til en svo að
hann braut steinda rúðu í kirkjunni með
þessu sparki.
Fótbolti
Dondrell Whitmore einn þriggja Bandaríkjamanna í liði Snæfells:
Okkar verður minnst í Hólminum
KÖRFUBOLTI „Það er góð tilfinning
sem fylgir því að geta unnið þenn-
an bikar fyrir lítið lið eins og Snæ-
fell og ég þakka mikið fyrir að fá
að taka þátt í þessu ævintýri,“
sagði Dondrell Whitmore sem
skoraði 17 af 23 stigum sínum
þegar á þurfti í fyrri hálfleik þeg-
ar Snæfellingar unnu Hauka 79-69
og tryggðu sér deildarmeistara-
titlinn í Intersportdeildinni í
körfubolta.
„Núna bý ég í Washington D.C.
og þú getur því rétt ímyndað þér
hversu mikil viðbrigði það eru
fyrir mig að koma hingað í Stykk-
ishólm,“ segir Dondrell sem er
einn af þremur Bandaríkjamönn-
um í liðinu, sem halda allir hópinn
og eru bestu mátar.
„Ég hef verið að spila víðsveg-
ar um Evrópu, í Finnlandi, Belgíu
og Lúxemborg, og þar var ég líka
í liði frá litlum bæ og mér gengur
vel að laga mig að því að búa í litl-
um bæjum. Mitt starf er fyrst og
fremst fólgið í því að stöðva aðra
menn í að skora. Um leið og það
tekst þá kemur sóknin til mín,“
sagði Dondrell, sem skilur lítið í
þeim leikmönnum sem nenna ekki
að spila vörn.
„Ég elska að spila vörn. Því
betri vörn, sem maður spilar, því
auðveldara er að vinna leiki. Ég
næ upp taktinunum í mínum leik í
vörninni,“ segir Whitmore sem
hefur skorað 17,5 stig að meðaltali
með Snæfelli í vetur.
„Það skipti mig miklu máli að
ná að vinna þennan leik og koma
með fyrsta bikarinn til Stykkis-
hólms. Ég veit að eftir mörg ár
verður okkar minnst sem þeirra
manna sem komu með fyrsta bik-
arinn til Snæfells. Ég hef líka trú
á þessu liði og ég veit að ef við
höldum áfram að spila saman sem
lið þá getum við farið alla leið.“
Bárður Eyþórsson, þjálfari deildarmeistara Snæfells:
Langt umfram
allar væntingar
KÖRFUBOLTI „Við erum búnir að
vinna tólf leiki í röð núna og það
er vel hægt að viðurkenna það að
þessi árangur er vel umfram allar
væntingar hjá mönnum. Þessir
strákar í liðinu eru góðir körfu-
boltamenn og þeir leggja mikið á
sig. Varnarlega erum við mjög
sterkir og ég held að stöðugleiki
liðsins komi fyrst og fremst fram
í gegnum vörn okkar. Það er bara
þannig hjá okkur að ef þú ætlar
eitthvað spila hjá mér þá þarftu
að leggja þitt í vörnina. Annars
færðu ekki mínútur á vellinum.
Þetta er vonandi bara smjör-
þefurinn af því sem koma skal en
við vitum líka að við erum að fara
í allt aðra keppni núna. Við höfum
enga reynslu að slíkri keppni, við
höfum einu sinni komist í úrslita-
keppnina fyrir nokkrum árum og
þá sem áttunda lið. Við sjáum
bara til hverjir mótherjar okkar
verða og leggjum síðan bara
áherslu á þá leiki þegar að þeim
kemur. Okkur var spáð sjötta
sætinu og stefndum á fjórða sætið
en enduðum í fyrsta sæti og það
er ekki slæmt,“ sagði Bárður Ey-
þórsson, þjálfari Snæfells.
Litli bærinn sem er
að breyta boltanum
Snæfellingar úr Stykkishólmi urðu deildarmeistarar í Intersport-deild karla í körfubolta
þegar þeir unnu sinn tólfta leik í röð á sunnudagskvöldið.
KÖRFUBOLTI Andrúmsloftið í
íþróttahúsinu í Stykkishólmi var
einstakt á sunnudagskvöldið þeg-
ar stærsta stund í íþróttalífi þessa
1200 manna bæjar á norðanverðu
Snæfellsnesi rann upp. Tíu stiga
sigur á Haukum, 79-69, þýddi það
að liðið var búið að vinna 12 deild-
arleiki í röð og deildarmeistaratit-
ilinn var í höfn. Snæfell, úr Stykk-
ishólmi, var orðið fyrsta félagið
fyrir utan suð-vesturhornið sem
vinnur titil í íslenskum körfu-
bolta.
Það var því vel fagnað í leiks-
lok þegar strákarnir úr Hólmin-
um voru búnir brjóta blað í sög-
unni. Bikarinn var samt ekki einu
verðlaunin sem Snæfellingar
unnu sér inn þetta kvöld, Lions-
klúbburinn gaf 100 þúsund krónur
í hálfleik og eftir leik mætti
bæjarstjórinn og afhenti for-
manninum 500 þúsund króna ávís-
un.
Fylgjast allir með
„Þetta var glæsilegt hjá strák-
unum. Bæjarbúar hafa fylgst af-
skaplega vel með og þetta er búið
að vera mjög skemmtilegur vetur
þar sem við höfum fengið að
fylgjast með því hvernig liðið hef-
ur sprungið út. Körfuboltinn er nú
mikið ræddur meðal fólks í bæn-
um og það eykur samkennd bæj-
arbúa þegar svona vel gengur.
Það fylgjast allir grannt með þó
að ekki nærri því allir séu ein-
hverjir sérstakir áhugamenn um
íþróttir,“ sagði Óli Jón Gunnars-
son, bæjarstjóri Stykkishólms, og
Gissuri Tryggvasyni, formanni
körfuknattsleiksdeildar Snæfells,
þótti ekki leiðinlegt að fá góða
gjöf frá bæjarstjórninni.
„Þetta er búin að vera mikil
veisla í kvöld. Það er frábært að
ná þessum árangri og í raun miklu
meira en við gerðum ráð fyrir í
upphafi vetrar. Liðið er búið að
taka svaka stökk á einu ári og þar
vil ég taka út þjálfarann, Bárð Ey-
þórsson, og þakka honum þetta
sérstaklega. Við erum líka með
mjög góðan heimavöll og í síðustu
leikjum hefur húsið nánast verið
troðfullt. Þess ber líka að geta að
burtfluttir Hólmarar sækja úti-
leiki og þar erum við oft í meiri-
hluta. Strákarnir eru því að spila á
heimavelli hvort sem þeir eru hér
eða fyrir sunnan. Þessi bikar hef-
ur aldrei farið út fyrir Reykjavík
og Suðurnesin og nú er þetta litla
bæjarfélag að blanda sér í þessa
baráttu,“ sagði Gissur Tryggva-
son, en stjórnin er beintengd inn í
liðið því einn stjórnarmanna er
meðal leikmanna Snæfells.
Tvöfaldur heiður
Andrés Heiðarsson á þannig að
baki tvöfalt starf við að koma
fyrsta bikarnum í Hólminn. Hann
er leikmaður liðsins, ódrepandi
baráttuhundur, sem gefur stóru
mönnum liðsins dýrmæta hvíld á
bekknum. Utan vallar er hann
ekki síður í fórnfúsu starfi, enda
er hann einn af stjórnarmönnum
sem gera það að verkum að hægt
hvað?hvar?hvenær?
28 29 1 2 3 4 5
MARS
Þriðjudagur
BIKAR Í HÖFN Bárður Eyþórsson, þjálf-
ari deildarmeistara Snæfells.
GÓÐUR LEIKMAÐUR Dondrell Whit-
more átti mjög góðan leik þegar Snæfell-
ingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í
fyrsta sinn í sögu félagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
SJÓNVARP
14.15 Trans World Sport á Stöð 2.
18.00 Olíssport á Sýn.
18.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.00 Meistaradeild UEFA á Sýn.
19.30 Trans World Sport á Sýn.
20.30 Knattspyrnusagan á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Supercross á Sýn.
23.25 Trans World Sport á Sýn.