Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 13. mars 2004 35 ÍBerlín var nýlega flutt óperanDie Tote Stadt eftir austur- ríska tónskáldið Erich Korngold. Uppfærslan hefur vakið mikla athygli og beint sjónum manna að tónskáldi sem tónlistarfræð- ingar telja vera einn af tónlistar- snillingum 20. aldar. Korngold fæddist árið 1897 og lést árið 1957. Hann byrjaði að semja tón- verk 11 ára gamall og þá þegar lýsti Gustav Mahler honum sem snillingi og tónlistarfræðingur- inn Ernest Newman sagði hann vera hinn nýja Mozart. Giacomo Puccini sagði að Korngold hefði tvisvar sinnum meiri snilligáfu en hann þarfnaðist og Richard Strauss bar mikið lof á tónverk hans. Tuttugu og þriggja ára gamall samdi Korngold óperuna Die Tote Stadt sem vakti gríðar- lega hrifningu og átta árum síð- ar var Korngold valinn, ásamt Schoenberg, mesta núlifandi tónskáld Austurríkis. Korngold flutti 38 ára gamall til Hollywood þar sem hann samdi tónlist við 20 myndir, þá síðustu árið 1956. Hann hlaut tvisvar Óskarsverðlaun fyrir tónlist sína, fyrir Hróa Hött og Anthony Adverse, og er talinn vera faðir nútímakvikmyndatón- listar. Hann var þó flestum gleymdur þegar hann lést. Árið 1984 var byrjað að hljóðrita tón- list hans en Korngold þykir þó ekki enn hafa öðlast þann viður- kenningarsess sem honum ber. Margir tónlistarsérfræðingar gera sér vonir um að óperuflutn- ingurinn í Berlín muni verða til þess að þetta merka tónskáld fái uppreisn æru. ■ ERICH KORNGOLD Tónskáld sem var undrabarn og kallaður hinn nýi Mozart. Þegar hann lést var hann flestum gleymdur en áhugi á verkum hans hefur vaknað á ný. Í Berlín var nýlega flutt ópera eftir austurríska tónskáldið Erich Korngold. Uppfærslan vakti mikla athygli: Gleymdur snillingur endurvakinn ast fyrir því sem fólk gerir í nafni losta og munúðar innan vébanda BDSM, að því gefnu að öryggi, meðvitund og samþykki séu virt. Kenndir sumra lúta t.d. að gríðar- legri niðurlægingu og aðrir fá mikið út úr því að klæðast regn- göllum. Sérstakur regngalla- klúbbur er starfræktur og hefur hann haldið sín sérstöku sam- kvæmi. Þó skal ítrekað og skýrt tekið fram að í umgengnisreglum BDSM-félagsins segir að undir engum kringumstæðum geti fé- lagið samþykkt eða liðið á einn eða annan máta: 1. Barnaklám eða kynlíf sem tengist börnum undir sjálfræðisaldri. 2. Dýraklám eða kynlíf sem tengist dýrum. 3. Nauðganir. 4. Heimilisofbeldi. Gert erfitt fyrir Þótt nú virðist komið að enda- lokum BDSM-félagsins á Íslandi, í bili í það minnsta, var það síðast í lok nóvember sem gefið var út fundarboð þar sem nokkur slag- kraftur virtist í starfseminni. Á fundinum var félagið kynnt for- vitnum og væntanlegum félögum auk þess sem farið var í grunn- atriði fjötrunar, öryggisatriði, tækni og hnúta. Þá var rætt um vændisfrum- varpið sem þá var til umfjöllunar meðal þings og þjóðar en atriði í því snerta þá sem aðhyllast BDSM- leiki. Á það var bent að orðalagið „kynlífs- þjónusta hverskonar“ væri æði víðtækt hug- tak þó því væri fyrst og síðast beint gegn mansali og þvinguðu vændi. Svipuð umræða fór fram innan félagsins fyrir nokkrum misser- um þegar skýrsla nefndar á vegum dómsmálaráðuneytisins um vændi og klám kom út en efni hennar náði inn á svið BDSM sinnaðra og fannst þeim sem þrengt væri að frelsi sínu. Að auki má nefna að ýmis tæki og tól sem notuð eru til BDSM- leikja þykja óæskileg og eru jafnvel bönnuð og má þar nefna handjárn og svipur. Á þessu má sjá að líf og yndi BDSM-fólks er síður en svo auðvelt, lög og reglur samfélagsins gera ekki ráð fyrir ýmsum kenndum mann- fólksins þó þær skaði engan og séu í raun grunnur að full- nægju og vellíðan. bjorn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.