Fréttablaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Lifi heimildar-
myndagerðin
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Miðasala: 511 4200 - Íslenska óperan
ÓKEYPIS
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012.
ORATOR,
félag laganema við
Háskóla Íslands.
Nú er enn og aftur verið að geraHow do you like Iceland þætti í
sjónvarpinu. Það eru ekki útlendingar
sem eru spurðir heldur eru útvaldir
Íslendingar að svara þessum bráð-
nauðsynlegu spurningum, það er um
það hvernig framtíðin verður, hvort
guð láti sig vanta á komandi árum,
verður gaman að vera á Íslandi og
hvernig er að vera hérna núna. Það er
ekki til neinn sem veit neitt um guð
framtíðarinnar en allir vita nákvæm-
lega hvernig er að vera hérna núna.
ÞAÐ SEM ER merkilegt í þessari
umræðu eða öllu heldur upptalningu
er, að allir þeir sem spurðir eru segj-
ast vera yfir sig hrifnir af náttúrunni,
hún sé í raun og veru landið og þar
með fólkið í landinu. Þetta nálgast
svolítið skitsófreníu því margir af
þeim sem strjúka landinu mest með
fögrum orðum eru svo í raun tals-
menn þess að rústa náttúrunni á
hálendi þess. Oh mér finnst svo
fallegt í garðinum okkar með holta-
sóleyjum og blóðbergi og einmitt þess
vegna er ég að hugsa um að troðfylla
hann af raflögnum, malbiki og úr-
gangi annarra þjóða. Það er svo and-
skoti sniðugt, því þá fær maður
ókeypis far til Benedorm.
HÆ HÓ, HÆ HÓ við höfum unnið
nóg. Þetta sungu dvergarnir sjö þegar
þeir þrömmuðu heim úr námunni
þreyttir og svangir eftir sinn vinnu-
dag. Heima beið þeirra risastór ráðs-
kona með fulla potta af góðum mat.
Hér eru engar námur en hér eru göng
af ýmsum stærðum og gerðum og það
eru ekki dvergar sem þar starfa held-
ur menn sem af vinnuveitendum sín-
um eru álitnir dvergar, það er þurfa
ekki laun nema eins og hálfir menn.
Mjallhvít hefði örugglega ekki enst
lengi upp við Kárahnjúka, en það eru
jú aðrir tímar og svo er jú svo fjandi
kalt þarna að prinsessur ævintýranna
verða náttúrlega úti við tilhugsunina
eina saman.
JÁ VIÐ LIFUM sko á flottum tíma
samkenndar og upplýsingar. Spikfeit
fermingarbörn ferðast á Netinu sínu
og skoða heiminn sem forfeðurnir
skildu ekki. Og verðandi forsetafrúar-
efni geta opnað veski sín á forsíðum
blaðanna. Nú, svo erum við nú svo
heppin að geta þakkað forráðamönn-
um okkar fyrir að koma okkur á lista
yfir þær þjóðir sem geta átt von á
flugeldasýningu á öðrum degi en
gamlaárskvöldi.
Það er nú ekki ónýtt myndefni.
Bakþankar
ELÍSABETAR BREKKAN