Fréttablaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
FIMMTUDAGUR
MÚSÍKTILRAUNIR
The Royal Fanclub, Bertel, Jemen, Costal
Ice, Vipera, Touch the Tiger, Hopeless
Regret, Enn einn sólin, Kviðsvið og Und-
erground eru hljómsveitir kvöldsins á
fyrsta kvöldi Músíktilrauna, sem haldnar
verða í Austurbæ í kvöld klukkan 19.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÞYKKNAR UPP og fer að rigna í
höfuðborginni og sunnan til eftir hádegi.
Strekkingsvindur sunnan- og vestan til.
Kólnandi veður næstu daga með snjó-
komu eða éljum Norðanlands. Sjá síðu 6.
18. mars 2004 – 77. tölublað – 4. árgangur
● svekktur yfir náðhúsinu
Ingimar Oddsson:
▲
SÍÐA 46
Höfundur
Salernissagna
● 43 ára í dag
Heimir Karlsson:
▲
SÍÐA 24
Liggur í flensu
● á slóðum heiðu ● steinasafn
Dagný Jónsdóttir:
▲
SÍÐUR 30-31
Skíðaferð um
páskana draumurinn
NORÐURÁL SELT Stefnt er að því að
nýir eigendur eignist álver Norðuráls í Hval-
firði í vor. Bjartsýni um áliðnaðinn réði því
að tilboð barst í álverið. Söluverð álversins
er um tíu milljarðar króna. Sjá síðu 2
VOÐASKOT Voðaskot sem varð ellefu
ára dreng að bana á Selfossi hljóp úr
skammbyssu með hljóðdeyfi. Vitað er hver
eigandi byssunnar er og hefur hann verið
boðaður í yfirheyrslu. Sjá síðu 4
BALDVIN Á FLOT Norskur dráttarbátur
er nú á leið með fjölveiðiskipið Baldvin Þor-
steinsson í togi til Noregs í slipp. Skipið náð-
ist á flot í fyrrinótt úr Meðallandsfjöru þar
sem það strandaði fyrir viku. Sjá síðu 6 og 8
TUGIR Á BIÐLISTA Rúmlega 50 geð-
fatlaðir einstaklingar, sem dvelja nú á stofn-
unum geðsviðs Landspítala eru færir um að
flytja í félagslega búsetu. Viðunandi búsetu-
úrræði skortir hins vegar. Sjá síðu 18
EFNAHAGSMÁL Stöðugleiki íslenska
fjármálakerfisins er viðunandi og
verðbólga mun haldast innan 2,5
prósenta verðbólgumarkmiða
Seðlabankans fram á síðari hluta
ársins 2005. Þetta kemur fram í
riti Seðlabankans Peningamál
sem kom út í gær. Bankinn upp-
færði spá sína frá í nóvember og
lagði mat á fjármálastöðugleika
hagkerfisins. Nýgerðir kjara-
samningar samrýmast að mati
bankans markmiðum um stöðug-
leika og lága verðbólgu.
Þrennt ógnar stöðugleikanum
að mati bankans. Aukin útlán, er-
lendar skuldir og eignaverð. Þetta
eru að mati bankans þættir sem
ástæða er til að hafa áhyggjur af.
Útlán hafi aukist hratt að undan-
förnu og meira en samrýmist
stöðuleika til langs tíma. Þá segir
bankinn hækkandi eignaverð
gera þá spurningu áleitnari hvað
gerist lækki það snöggt. Bankinn
hækkar ekki stýrivexti að svo
stöddu, en verðbólguspáin kallar
að óbreyttu á vaxtahækkun næstu
mánuði. Bankinn telur að þau
þrjú atriði sem nefnd eru sem
áhættuþættir stöðugleika þoli illa
snöggar og miklar vaxtabreyting-
ar. Bankinn telur því skynsamlegt
að beita stýrivöxtum fyrr og hæg-
ar til þess að áhrifin verði ekki
eins hastarleg. Við þessar aðstæð-
ur leggur Seðlabankinn áherslu á
að aðhalds verði gætt í ríkisfjár-
málum. ■
ferðir o.fl.
skart úr plasti ● támjóir skór
Unnur Ösp Stefánsdóttir:
▲
SÍÐUR 28-29
Gallajakkinn
í uppáhaldi
tíska o.fl.
ÓGNARÖLD Í KOSOVO Í það minnsta fimm létust í átökum Serba og Kosovo-Albana í borginni Kosovska Mitrovica í Kosovo í gær og á
annað hundrað manns slösuðust að sögn starfsmanna sjúkrahúsa. Átökin brutust út eftir fréttir þess efnis að tveir ungir Kosovo-Albanar
hefðu drukknað þegar þeir stungu sér í straumharða á til að flýja Serba sem eltu þá á bíl.
MENNTAMÁL Allar líkur eru á því að
háskólafundur, stærsti samráðs-
vettvangur innan Háskóla Ís-
lands, samþykki beiðni til stjórn-
valda um að Háskólanum verði
gefin heimild til þess að taka upp
skólagjöld. Samþykki háskóla-
fundur beiðnina á mánudaginn
má gera ráð fyrir því að háskóla-
ráð sendi stjórnvöldum beiðnina
eftir fund sinn á fimmtudaginn
eftir viku.
Háskólaráð óskar eftir því við
háskólafund að fengin verði um-
sögn um hvort lagt skuli til við
menntamálaráðherra að lögunum
verði breytt. Í greinargerð með
tillögunni segir að hún sé lögð
fram „í ljósi ríkjandi aðstæðna í
fjármálum og rekstrarumhverfi
Háskólans“.
Stúdentaráð Háskóla Íslands
hefur hafið undirskriftasöfnun
gegn áformum um upptöku skóla-
gjalda. Stúdentar geti skráð sig á
Netinu eða undirritað skjöl sem
liggja á víð og dreif um skólann.
Í gærmorgun höfðu yfir fimmt-
án hundruð skráð sig á mótmæl-
unum á Netinu. „Þetta eru gríðar-
lega mikil viðbrögð hjá stúdent-
um. Strax á fyrstu fjórum tímun-
um komu yfir þúsund undirskrift-
ir,“ segir Jarþrúður Ásmundsdótt-
ir, formaður stúdentaráðs. Að
sögn hennar lítur stúdentaráð á
það sem mikla uppgjöf af hálfu
Háskólans ef farið verður fram á
lagabreytinguna.
„Við höfum líkt þessu við að
bregðast við leka í dekki með því
að pumpa meira lofti í það. Skóla-
gjöld eru langt í frá því að vera
einhver heildarlausn á vandanum
við rekstur háskóla. Þetta hefur
komið berlega í ljós annars staðar
þar sem þessi leið hefur verið far-
in,“ segir hún.
Hún undrast að tillögur sem
stúdentaráð hefur kynnt, sem gera
meðal annars ráð fyrir stjórnsýslu-
úttekt á rekstri HÍ, séu ekki þraut-
kannaðar áður en þessa úrræðis sé
leitað. „Ef þetta er samþykkt á há-
skólafundi er það í raun til merkis
um að háskólinn telji sig ekki til-
búinn til þess að fara í alvarlega
endurskoðun á sínum innri málum.
Ef það verður ekki gert þá er hætta
á að Háskóla Íslands hnigni hvort
sem innheimt verða skólagjöld eða
ekki,“ segir hún.
thkjart@frettabladid.is
Seðlabankinn og stýrirvextirnir:
Mun bremsa hægt og tímanlega
Nýtt kortatímabil
Kringlu
kast
...blaðið fylgir
í dag
HÓTELIÐ Í RÚST
Óttast er að tala látinna eigi eftir að
hækka mikið.
Sprengja í Bagdad:
Tugir látnir
ÍRAK, AP Tæplega 30 manns létust í
öflugri sprengingu sem varð á
hóteli í miðborg Bagdad síðdegis í
gær og talið er að tæplega 50 hafi
slasast. Leit stóð yfir að fleiri
fórnarlömbum þegar Fréttablaðið
fór í prentun en búist var við að
tala látinna ætti eftir að hækka
enn frekar. Virðist sem um bíl-
sprengju hafi verið að ræða en
ekki var ljóst hvort þetta hafi
verið sjálfsmorðsárás.
Hótelið sem um ræðir er
skammt frá hótel Palestínu en það
varð þekkt meðan stríðið geisaði
þar sem flestir blaðamenn í land-
inu gistu þar. ■
Uppsagnir hjá Lego:
Sögðu
upp 500
KAUPMANNAHÖFN, AP Danski leik-
fangaframleiðandinn Lego hefur
ákveðið að segja upp 500 manns á
næstu tveimur árum til að bregð-
ast við taprekstri fyrirtækisins
undanfarin misseri. Hefur eftir-
spurn eftir leikkubbum og öðrum
leikföngum sem þeir framleiða
minnkað ár frá ári og grípa for-
svarsmenn þess vegna til þessara
aðgerða. Vonast er til að ekki
þurfi að koma til fleiri uppsagna
og eru vonir bundnar við tölvu-
leikjadeild Lego, en það er eina
deild fyrirtækisins sem sýnir góð-
an hagnað. ■Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
Háskólinn vill taka
upp skólagjöld
Háskólafundur mun að öllum líkindum samþykkja beiðni um upptöku
skólagjalda við Háskóla Íslands næsta mánudag. Formaður stúdenta-
ráðs gagnrýnir yfirvöld Háskólans harðlega fyrir úrræðaleysi.