Fréttablaðið - 18.03.2004, Side 8
8 18. mars 2004 FIMMTUDAGUROrðrétt
Björgun Baldvins Þorsteinssonar tókst:
Mikið afrek og vel staðið að öllu
BJÖRGUN „Það var hringt í mig um
leið og skipið var komið út. Frétt-
irnar voru afar ánægjulegar og
eins að heyra fagnaðarlæti mann-
anna á ströndinni í gegnum sím-
ann,“ segir Gunnar Felixson, for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar,
um sín viðbrögð við þeim fréttum
að tekist hefði að ná fjölveiðiskip-
inu Baldvini Þorsteinssyni á flot
aðfaranótt miðvikudags.
Unnið hafði verið nánast sleitu-
laust að því að ná skipinu út frá
því að það strandaði aðfaranótt
þriðjudagsins 9. mars.
„Ég tel að þarna hafi verið unn-
ið mikið afrek og afskaplega vel
staðið að björguninni. Það er að-
dáunarvert hvernig Samherja-
menn hafa skipulagt björgunina
,sem tókst með eindæmum vel.
Góður mannskapur og gott sam-
starf við Landhelgisgæsluna og
ýmsa aðila er lykillinn að því
hvernig til tókst.“ Gunnar segir
kostnaðinn við björgunina hlaupa
á tugum milljóna án þess að vilja
gefa nákvæma tölu. Hins vegar
hafi augljóslega margborgað sig á
ná Baldvini á flot en skipið er
tryggt fyrir 1.500 milljónir. ■
BJÖRGUN „Tilfinningin að sjá Bald-
vin sigla út var góð,“ segir Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja. En rúmri viku eftir
strand Baldvins náðist skipið á
flot í fyrrinótt. Yfirvegun og elju-
semi einkenndi björgunaraðgerð-
ir á strandstað.
Þorsteinn Már segir næstu
skref að huga að skemmdum á
skipinu og að koma Baldvini og
sjómönnunum aftur til veiða. Beð-
ið verði í tvö daga með að gera
áætlun. Ákveðið hefur verið að
sigla með Baldvin til Noregs í stað
Eskifjarðar, eins og áður var
ákveðið, til að nýta ferð dráttar-
skipsins Normand Mariner til
Noregs. „Það er ljóst að einhverj-
ar skemmdir eru á skipinu. Þar er
búnaður, tæki og varahlutir til
staðar. Við vitum ekki hvort það
er hagstæðara eða fljótvirkara en
höldum það,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn segir sig afskaplega
ánægðan með að menn hafi staðið
í jafn miklum aðgerðum og þarna
voru. Þá í fyrsta lagi að bjarga
áhöfninni þegar skipið strandaði.
Hann segir að við þessar miklu
aðgerðir hafi enginn slasast,
hvorki skrámað sig né annað, og
yfir því sé hann sérstaklega glað-
ur. „Ég hef kynnst mikið af góðu
fólki. Sjómennirnir stóðu sig frá-
bærlega og auðvitað Landhelgis-
gæslan og björgunarsveitarmenn-
irnir, hvort sem þeir komu frá
Vík, Kirkjubæjarklaustri eða
Álftaveri. Heilt yfir er fólk búið
að standa sig ótrúlega vel og
leggja sig allt fram.“
Þorsteinn segir að sjálfsögðu
sé þreyta til staðar eftir aðgerð-
irnar en það sé eitthvað sem jafni
sig. Þá segir hann hótelstjórann á
Hótel Vík hafa haft orð á því að
hópurinn sem dvaldi hjá honum
væri skrítinn. Hann væri búinn að
vera með tuttugu manna hóp í
gistingu í átta nætur og ekki selt
einn einasta bjór, fyrr en nokkrir
fengu sér öl eftir að Baldvin
komst af strandstað. Þar hafi
vinnusemi ríkt.
hrs@frettabladid.is
Skýrslur Alþingis:
Kosta 5–10
milljónir
ALÞINGI Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra sagði á Alþingi í gær
að kostnaður við gerð margra
skýrslna sem unnar væru í
stjórnsýslunni væri á bilinu
fimm til tíu milljónir. Forsætis-
ráðherra sagði að þingmenn
stjórnarandstöðu skelltu fram
beiðni um skýrslur sem síðan
kæmu út í 100–200 eintökum
sem hefðu kostað milljónir að
vinna. Þetta kom fram í fyrir-
spurnartíma á Alþingi í gær
þegar Davíð svaraði fyrirspurn
um kostnað við útgáfu rits um
forsætisráðherra þjóðarinnar
frá 1904. ■
Læknirinn ber
ábyrgð á
dauða
barnsins
okkar
MÁLÞING Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi efna á morgun til mál-
þings í Grundarskóla á Akranesi um
áhrif stóriðju á nábýli sitt.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra setur þingið
en meðal fyrirlesara verða Helga
Halldórsdóttir, formaður Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi og Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi. Þá
fjallar Smári Geirsson, formaður
bæjarráðs Fjarðabyggðar, um von-
ir, væntingar og undirbúning stór-
iðju og Mark Shrimpton, ráðgjafi
frá Kanada, ræðir um tækifærin í
umhverfi stóriðju. Shrimpton kom
meðal annars við sögu í mati á um-
hverfisáhrifum álvers við Reyðar-
fjörð og Kárahnjúkavirkjunar með
því að veita sérfræðilega ráðgjöf
um matsaðferðir í báðum tilvikum
og um uppbyggingu matsskýrslu
vegna álversins.
Fyrirhuguð stækkun Norðuráls
og áhrif stækkunarinnar á atvinnu-
líf og samfélag Vesturlands verður
til umræðu sem og sóknarfærin
sem skapast í sambúð við stóriðju-
fyrirtækin og áhrif hafnasamlags
Reykjavíkur og sveitarfélaga á
Vesturlandi.
Málþingið er opið öllum og að-
gangur er ókeypis. ■
Ísólfur „gamli“ Pálmason
„Mér fannst ég hætta að vera
ungi maðurinn þegar ég varð fer-
tugur. Fram að þeim tíma var
alltaf talað um unga manninn.“
Ísólfur Gylfi Pálmason fimmtugur,
Fréttablaðið 17. mars
Ekki Hannes
„Hann er varla rétti maðurinn í
að skrifa um Ólaf. Ég hefði feng-
ið einhvern annan í það, ein-
hvern sem þekkti betur stefnu
Ólafs, störf hans og skoðanir.“
Steingrímur Hermannsson um skrif Hannesar
Hólmsteins um Ólaf Jóhannesson, DV 17. mars
Allt í lagi í Latabæ
„Fjarskiptastarfsemi Orkuveit-
unnar gengur ljómandi vel
Reykvíkingum til heilla, en vin-
um Guðlaugs Þórs hjá Símanum
til armæðu.“
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður OR,
Morgunblaðið 17. mars
GUNNAR FELIXSON
Forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar mætti í
Meðallandsfjöru á föstudag til að sjá að-
stæður og aðstoðaði í leiðinni
við björgunarstörf. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Vill koma Baldvini
og áhöfn til veiða
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir tilfinninguna hafa verið góða að sjá Baldvin
Þorsteinsson sigla á haf út. Ferð norska dráttarskipsins verður nýtt og er Baldvin á leið til Noregs.
GRUNDARTANGI
Fyrirhuguð stækkun álvers Norðuráls og
áhrif stækkunarinnar á samfélagið verður
m.a. rædd á málþingi Vestlendinga á
morgun.
Stóriðja og samfélag á Vesturlandi:
Áhrif og sóknarfæri
GLEÐI Á STRANDSTAÐ
Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Samherja, Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri og Þor-
steinn Már Baldvinsson forstjóri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Ráðherrabók:
Kostnaður
átta milljónir
ALÞINGI Kostnaður við útgáfu
bókar um alla forsætisráðherra
Íslands og þá sem gegndu emb-
ætti ráðherra Íslands er áætlað-
ur átta milljónir króna. Þetta
kom fram í svari Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra við fyr-
irspurn Marðar Árnasonar,
þingmanns Samfylkingarinnar,
á Alþingi í gær.
Davíð sagði að þá væri ekki
gert ráð fyrir hugsanlegum
sölutekjum af bókinni en gert sé
ráð fyrir að hún komi út í tvö
þúsund eintökum í vönduðu
broti.
Þá sagði Davíð að sér hefði
borist bréf frá ritnefndinni þar
sem þess væri óskað að hann
skrifi kafla í bókinni, en Jóhann
Ársælsson spurði sérstaklega
um það. ■