Fréttablaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 6
6 13. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ Miðausturlönd
Veistusvarið?
1Hvaða körfuboltalið tryggði sér Ís-landsmeistaratitilinn í körfubolta
karla um helgina?
2Hvað heitir nýskipaður sendiherraBretlands á Íslandi?
3Hvaða bandaríska dagblað fékk flestPulitzer-verðlaun?
Svörin eru á bls. 31
Spár um hagnað bankanna:
Fer yfir tuttugu
milljarða
AFKOMA Hagnaður bankanna í ár
verður 22 milljarðar króna ef spá
fjármálafyrirtækja ganga eftir.
Greining Íslandsbanka gerir ráð
fyrir að hagnaður KB banka verði
átta milljarðar í ár og hagnaður
Landsbankans um sjö milljarðar.
Greiningardeild KB banka gerir
ráð fyrir að hagnaður Íslands-
banka verði tæpir sjö milljarðar.
Mikill gengishagnaður fellur
til á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins hjá Landbankanum og Íslands-
banka. KB banki gerir ráð fyrir að
hagnaður Íslandsbanka verði 4,2
milljarðar á fyrst ársfjórðungi og
4,1 milljarður hjá Landsbankan-
um.
Miðað við spárnar mun KB
banki skila mestum hagnaði allra
fyrirtækja í Kauphöllinni. Hinir
bankarnir koma á hæla hans, en
því næst kemur Pharmaco. Spáð
er ríflega sex milljarða hagnaði
hjá Pharmaco. Mikill gengishagn-
aður fellur einnig til hjá Burðar-
ási og búast greiningardeildir við
að hagnaður verði tæpir sex millj-
arðar á árinu.
Hagnaður fyrsta árfjórðungs
fyrirtækja í Kauphöllinni eykst til
muna samkvæmt spánni. Þannig
gerir Íslandsbanki ráð fyrir að
hagnaður 20 félaga sem spáð er
fyrir um að verði 13,3 milljörðum
meiri í ár en í fyrra. ■
Segir forsætisráðherra
bera saman ólík mál
Davíð Oddsson segir kærunefnd jafnréttismála ekki taka mið af dómum Hæstaréttar.
Sérfræðingur í kvennarétti segir Davíð bera saman ólík mál. Hún segir stöðuveitingu
dómsmálaráðherra til hæstaréttardómara klárt brot á jafnréttislögum.
JAFNRÉTTISLÖG Davíð Oddsson for-
sætisráðherra hefur tekið undir
ummæli Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra um að jafn-
réttislögin séu barn síns tíma.
Davíð hefur látið hafa eftir sér í
fjölmiðlum að svo virðist sem
kærunefnd jafnréttismála taki
ekki mið af dómum Hæstaréttar
sem hafi snúið niðurstöðu hennar.
Björn Bjarnason lét ummæli
sín falla í kjölfar úrskurðar kæru-
nefndar jafnréttismála sem segir
Björn hafa brotið jafnréttislög
með því að ráða ekki Hjördísi Há-
konardóttur í embætti hæsta-
réttardómara. Hann hafði skipað
Ólaf Börk Þorvaldsson í stöðuna.
Davíð Oddsson bendir á tvö
dæmi þar sem Hæstiréttur hafi
snúið úrskurði kærunefndar. Ann-
ars vegar í máli Valgerðar
Bjarnadóttur við skipan leikhús-
stjóra Leikfélags Akureyrar og
hins vegar er utanríkisráðherra,
settur dómsmálaráðherra, skipaði
í stöðu sýslumanns á Keflavíkur-
flugvelli.
Brynhildur Flóvens, aðjúnkt í
kvennarétti við lagadeild Háskóla
Íslands, segist ósammála Davíð.
Þó svo að í báðum ofangreindum
málum hafi Hæstiréttur snúið
bæði niðurstöðu kærunefndar og
héraðsdóms séu þau ekki sam-
bærileg málinu sem nú um ræðir.
Í málunum sem Davíð nefnir hafi
hæfni beggja umsækjanda verið
mjög jöfn og því gætu verið skipt-
ar skoðanir um hvorn ætti að
meta hæfari. Hins vegar sé tölu-
verður munur á hæfni Hjördísar
og Ólafs Barkar. Í ofangreindum
málum hafi hæfnin því verið
meira álitamál en nú. Í niðurstöð-
um kærunefndar þykir ljóst að
Hjördís hafi bæði að bera meiri
menntun og lengri starfsreynslu.
„Hvert mál er einstakt. Þó svo
að Hæstiréttur hafi snúið við nið-
urstöðum kærunefndar í þessum
tveimur málum þýðir það ekki að
kærunefndin komi með ranga nið-
urstöðu í þessu máli,“ segir Bryn-
hildur.
Hún bendir jafnframt á að
Hæstiréttur hafi í fjölda tilfell-
um staðfest úrskurð kærunefnd-
ar og að auki hafi nefndin mar-
goft komist að þeirri niðurstöðu
að ekki sé verið að brjóta á þeim
sem kærir.
Aðspurð um hver niðurstaðan
gæti orðið ef þetta mál færi fyrir
Hæstarétt segir hún að af því er
fram komi í úrskurði nefndarinn-
ar sé þetta skólabókardæmi um
brot á jafnréttislögum.
Hún segir þó aldrei hægt að
segja fyrir um niðurstöðu í dóms-
máli því það komi ekki í ljós fyrr
en við málsmeðferð hvaða gögn
eigi eftir að leggja fram í málinu.
„Ef Hæstiréttur kemst að því
að dómsmálaráðherra hafi verið
að brjóta lög hlýtur það þó að
vera mikill álitshnekkir fyrir
ráðherra,“ segir Brynhildur.
Nefndarmenn vildu ekki tjá sig
um ummæli forsætisráðherra í
gær.
sda@frettabladid.is
SKOTBARDAGI Í RÍAD Einn lög-
reglumaður lést og fimm særðust
í skotbardaga sem braust út síð-
degis í gær á fjölfarinni umferð-
argötu í Ríad í Sádí-Arabíu. Einn
vígamaður féll fyrir hendi lög-
reglu en þrír flúðu af vettvangi í
bíl. Lögreglan lokaði veginum og
umkringdi íbúðahverfi í nágrenn-
inu á meðan vígamannanna var
leitað.
PALESTÍNUMAÐUR FELLDUR
Ísraelskir hermenn skutu til bana tvo
palestínska vígamenn við eftirlitsstöð á
Gaza-ströndinni.
Ísraelar felldu tvo
Palestínumenn:
Komu í veg
fyrir árás
GAZA-STRÖNDIN Ísraelskar hersveitir
skutu til bana tvo vopnaða Palestínu-
menn sem reyndu að gera árás á eft-
irlitsstöð skammt frá landnemabyggð
gyðinga á Gaza-ströndinni. Hamas,
samtökin Íslamskt jihad og Al-Aqsa-
herdeildirnar lýstu sameiginlega
ábyrgð á tilræðinu á hendur sér.
Þrír vopnaðir Palestínumenn hófu
skothríð á eftirlitsstöð ísraelska hers-
ins skammt frá landnemabyggðinni
Netzarim í dögun í gær. Herinn skaut
á árásarmennina og felldi tvo þeirra
en sá þriðji komst undan.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hélt til Washington í gær þar
sem hann mun ræða við George W.
Bush Bandaríkjaforseta um fyrirhug-
að brotthvarf Ísraela frá Gaza-
ströndinni. ■
– hefur þú séð DV í dag?
Fangaði tólf
lifandi
hákarla
METHAFINN
Sigurður Einarsson og samstarfsfólk í KB banka skilaði mestum hagnaði íslenskra
fyrirtækja í fyrra. Búist er við því að svo verði einnig í ár og bankinn hagnist um átta
milljarða króna.
BJÖRN BJARNASON
Sagði í kjölfar niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála að jafnréttislög væru barn síns tíma.