Fréttablaðið - 19.04.2004, Page 21
21MÁNUDAGUR 19. apríl 2004
15.00 Ensku mörkin á Stöð 2.
Mörk helgarinnar úr enska boltanum.
16.40 Helgarsportið í Sjónvarpinu.
16.50 Úrslitakeppni NBA á Sýn. Út-
sending frá leik Detroit og Milwaukee.
18.30 Ensku mörkin á Sýn.
19.25 Spænsku mörkin á Sýn.
Mörk helgarinnar úr spænska boltanum.
20.15 Enski boltinn á Sýn. Endur-
tekinn leikur.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.40 Markaregn í Sjónvarpinu.
hvað?hvar?hvenær?
16 17 18 19 20 21 22
APRÍL
Mánudagur
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í fullum gangi um helgina:
Shaq tryggði Lakers sigur
KÖRFUBOLTI Los Angeles Lakers
vann Houston Rockets með eins
stigs mun, 72-71, í fyrsta leik lið-
anna í úrslitakeppni NBA í fyrri-
nótt. Shaquille O’Neal skoraði
sigurkörfu Lakers með troðslu
þegar 17 sekúndur voru eftir af
leiknum eftir að Kobe Bryant
hafði ekki hitt körfuna í þriggja
stiga skoti. Þetta var eina karfa
Shaq í seinni hálfleiknum.
Þrátt fyrir sigurinn var
skotnýting Lakers aðeins 25% í
seinni hálfleik og 32,9% í heildina.
Auk þess tóku leikmenn Rockets
tíu fráköstum meira en heima-
menn. Shaq var stigahæstur
Lakers með 20 stig auk þess sem
hann tók 17 fráköst. Kobe Bryant
skoraði 16 stig en hann tók aðeins
eitt körfuskot í fyrri hálfleik.
Bryant náði einnig fimm fráköst-
um og gaf sex stoðsendingar.
Kidd vann Marbury
Jason Kidd skoraði 14 stig og
gaf 13 stoðsendingar fyrir New
Jersey Nets sem vann New York
Knicks örugglega 107-83. Kerry
Kittles hitti úr fyrstu sex skotum
sínum og skoraði alls 20 stig fyrir
Nets. Richard Jefferson skoraði
21 til viðbótar fyrir Nets. Hjá
Knicks var Penny Hardaway
stigahæstur með 18 stig og Nazr
Mohammed kom næstur með 16.
Þetta var fyrsti leikur Knicks í
úrslitakeppninni síðan 2001.
Létt hjá Spurs
San Antonio Spurs vann Memph-
is Grizzlies 98-74. Tim Duncan var
stigahæstur heimamanna með 26
stig. Þetta var tólfti sigur Spurs í
röð og sá fjórtándi í röð á heima-
velli. Grizzlies hafði unnið Spurs
þrisvar sinnum á leiktíðinni en
hafði ekki erindi sem erfiði í þess-
um fyrsta úrslitaleik liðanna. ■
RISAR BERJAST
Shaquille O’Neal rífur til sín frákast af Kínverjanum Yao Ming í leik L.A. Lakers og Houston
Rockets. O’Neal skoraði sigurkörfu leiksins.
AP
/M
YN
D
Íslandsmótið í blaki:
Þróttur R.
vann Þrótt N.
BLAK Þróttur Reykjavík vann
Þrótt Neskaupstað örugglega 3-0
á aðeins 49 mínútum í fyrsta leik
liðanna í úrslitum Íslandsmóts
kvenna í blaki um helgina.
Leikurinn byrjaði með látum
og var fyrsta hrina jöfn og spenn-
andi en stúlkurnar úr Þrótti Rvk.
kláruðu hrinuna í lokin. Þær tóku
síðan öll völd á vellinum í annarri
og þriðju hrinu og unnu þær ör-
ugglega og þar með leikinn. Þrótt-
ur Rvk. getur tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn í Neskaupstað á
morgun. Sigri Þróttur Nesk. þurfa
liðin að leika oddaleik um titilinn
á Akranesi næstkomandi laugar-
dag.
Úrslit í karlaflokki á milli
Stjörnunnar og HK hefjast á mið-
vikudag í Ásgarði. Þar þurfa liðin
einnig að sigra í tveimur leikjum
til að tryggja sér Íslandsmeistara-
titilinn. ■
NBA-deildin:
LeBron
nýliði ársins
KÖRFUBOLTI Heimildir herma að
nýliðinn frábæri LeBron James,
sem leikur með Cleveland
Cavaliers, verði valinn nýliði
ársins í NBA-deildinni en valið
verður kunngjört á þriðjudaginn.
LeBron, sem var valinn fyrstur
í nýliðavalinu síðasta sumar, kom
beint úr menntaskóla og er aðeins
átján ára gamall en hefur engu að
síður slegið í gegn.
Hann skoraði 20,9 stig, gaf 5,9
stoðsendingar og tók 5,5 fráköst
að meðaltali í vetur og varð aðeins
þriðji nýliðinn í sögunni, á eftir
Oscar Robertson og Michael
Jordan, til að skora í það að
minnsta 20 stig, taka fimm
fráköst og gefa fimm stoðsend-
ingar ásamt því að vera yngsti
leikmaðurinn í sögunni til að
skora fjörutíu stig í einum og
sama leiknum. ■