Fréttablaðið - 26.04.2004, Page 1
● gaman að takast á við nýja hluti
Gísli Vilhjálmsson:
▲
SÍÐA 30
Ósýnilegar
tannréttingar
● einbeitir sér að chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen:
▲
SÍÐA 20
Fær frí gegn
Lettum
● bíður spennt eftir gloriu karpinski
Monika Abendroth:
▲
SÍÐA 24
Breytt
lífsviðhorf
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ Ríkisstjórnin
samþykkti á ríkisstjórnarfundi í
gær frumvarp um eignarhald á
fjölmiðlum. Lagt verður bann við
því að fyrirtæki eigi bæði hlut í
dagblaðaútgáfu og ljósvakamiðli
ef lögin ná fram að ganga. Þá
mega fyrirtæki með markaðsráð-
andi stöðu í óskyldum rekstri ekki
eiga í fjölmiðlafyrirtækjum.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði að fundinum loknum
að lögin yrðu ekki afturvirk. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
fá fyrirtæki á markaði að minnsta
kosti tvö ár til að laga rekstur sinn
að nýjum lögum.
„Fyrirtæki verða að laga sig að
þeirri umgjörð sem þjóðþingið set-
ur, við búum í lýðræðislegu þjóðfé-
lagi,“ sagði Davíð.
„Viðhorf ríkisstjórnarinnar að
það gangi ekki upp fyrir lýðræðis-
lega umræðu að eignarhald á fjöl-
miðlum safnist á eina hendi,“ sagði
Davíð þegar hann var spurður um
rökin fyrir því að banna fyrirtækj-
um að reka bæði dagblað og ljós-
vakamiðil.
Hann staðfesti að frumvarpið
hafi breyst verulega frá fyrstu
drögum.
„Þetta er ekki það frumvarp
sem ég lagði fram. Ég er afar sátt-
ur við að frumvarp taki breyting-
um þannig að um það sé sátt. Þá
eru það breytingar til batnaðar,“
sagði Davíð.
Eins og frumvarpið lítur nú út
mun það aðeins hafa áhrif á rekst-
ur eins fjölmiðlafyrirtækis, Norð-
urljósa, sem eiga og reka Frétta-
blaðið, DV, Stöð 2 og Bylgjuna.
Þetta er mikil breyting frá vilja
Davíðs sem fram kom í frum-
varpsdrögum sem hann lagði
fram í vikunni sem var. Þar var
gert ráð fyrir að enginn sem ætti
í öðrum rekstri en fjölmiðlun gæti
átt í fjölmiðlafyrirtæki. Fram-
sóknarmenn hafa því greinilega
fengið í gegn nokkrar breytingar.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði að
mjög góð sátt hafi náðst um frum-
varpið á grundvelli skýrslu nefnd-
ar um eignarhald á fjölmiðlum.
„Ég tel að frumvarpið sé fylli-
lega eðlilegt og það er mjög mikil-
vægt að eyða þeirri óvissu sem
hefur skapast vegna þessarar um-
ræðu,“ sagði Halldór Ásgrímsson
að loknum ríkisstjórnarfundi.
sda@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
BLAÐAMANNAFÉLAGIÐ Aðalfund-
ur Blaðamannafélags Íslands verður
haldinn í dag í félagsheimili blaða-
manna í Síðumúla 23. Hefst fundurinn
kl. 20:00. Þar verður kosið í embætti á
vegum félagsins. Núverandi formaður er
Róbert Marshall.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
NOKKUÐ BJART en hætt við smá-
skúrum víða um land, einkum síðdegis,
síst þó við austurströndina. Sjá síðu 6.
26. apríl 2004 – 113. tölublað – 4. árgangur
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ Davíð
Oddsson sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær
að hann telji að frumvarpið um lög um
eignarhald á fjölmiðlum sé mjög meðfæri-
legt og sanngjarnt. Halldór Ásgrímsson
sagði eftir ríkisstjórnarfund að mjög góð
sátt væri um frumvarpið. Sjá síður 6 og 8.
EIGNAUPPTAKA Stjórnarformaður
Norðurljósa segir frumvarpið eignaupptöku
og því alveg ljóst að fyrirtækið muni leita
réttar síns í málinu. Sjá síðu 10
BÖRN FALLA Í ÍRAK Fjögur skólabörn
létust af skotsárum í Bagdad í gær.
Reuters-fréttastofan hefur það eftir vitnum
að bandarískir hermenn hafi skotið á börn-
in. Sjá síðu 2
LYFJAVERÐ Formaður Geðlæknafélags
Íslands gagnrýnir viðmiðunarverðskrá lyfja.
Sparnaður í heilbrigðiskerfinu kemur yfir-
leitt verst niður á geðsjúkum. Sjá síðu 4
Ríkisstjórn samþykkti
frumvarp á fjölmiðla
Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum. Frumvarpið nær aðeins til
Norðurljósa. Forsætisráðherra segir þetta ekki það frumvarp sem hann samdi.
Anna Margrét Björnsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Heldur upp á
Hnitbjörg
● hús ● fasteignir
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
VERÐLAUNAHÁTÍÐ Miklar líkur eru á
því að evrópska MTV-tónlistarverð-
launahátíðin verði haldin í Egilshöll
í Grafarvogi árið 2006 samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Hátíðin
er á svipaðri stærðargráðu og Ósk-
arsverðlaunin og er henni sjónvarp-
að til um sjötíu landa. Búist er við
um fimm þúsund gestum til lands-
ins á vegum MTV vegna hátíðarinn-
ar og er áætlað að hún muni hafa í
för með sér viðskiptaaukningu upp
á allt að tvo milljarða króna.
Tónleikahaldarar, framleiðslu-
fyrirtæki, auglýsingastofa og fleiri
aðilar hafa unnið að undirbúningi
verkefnisins hér á landi undanfarna
mánuði. Að sögn heimildarmanna
Fréttablaðsins hafa æðstu yfirmenn
MTV lýst yfir eindregnum áhuga á
að halda hátíðina á Íslandi og er bú-
ist við því að gengið verði frá samn-
ingum á næstu mánuðum.
Stefnt er að því að leigja
skemmtiferðaskip til að hýsa hluta
af þeim mikla fjölda tónlistar-
manna, blaðamanna og annarra
gesta sem væntanlegir eru hingað
til lands vegna hátíðarinnar. Einnig
verða fluttir inn um 200 bílaleigu-
bílar, þar á meðal dýrar glæsikerr-
ur fyrir stjörnurnar.
Aðstandendur verkefnisins
stefna að því að halda úti öflugri
dagskrá með tónleikum og ýmsum
uppákomum í tengslum við verð-
launahátíðina. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
MTV-TÓNLISTARVERÐLAUNIN
Koss poppsöngkvennanna Britney Spears
og Madonnu á MTV-tónlistarverðlaunahá-
tíðinni 2003 vakti mikla athygli.
MTV-tónlistarverðlaunin á Íslandi 2006:
Skemmiferðaskip og glæsi-
kerrur fluttar til landsins