Fréttablaðið - 26.04.2004, Qupperneq 11
11MÁNUDAGUR 26. apríl 2004
hvort það skipti máli hverjir eiga
fjölmiðlana. Undan þessari
spurningu eigum við ekki að
víkja okkur“.
Og Davíð Oddsson bætti við:
„Tími flokksmálgagnanna er lið-
inn, sem betur fer. En nú virðist
upp runninn annar tími hálfu
verri, tími fyrirtækjamálgagna
og þau hafa miklu dýpri vasa en
gömlu flokksblöðin sem börðust
einatt í bökkum. Þetta hlýtur að
vekja okkur til umhugsunar. [...]
Almenningur verður að geta
treyst því að fyrirtæki sem eru í
markaðsráðandi stöðu, hafi eðli-
legt aðhald frá fjölmiðlum, neyt-
endavernd sé virk og tryggt sé að
dregin sé upp hlutlaus og óbjöguð
mynd af starfsemi slíkra fyrir-
tækja. Ef við eigum að umbera
það í nafni hagkvæmni að fyrir-
tæki hafi markaðsráðandi stöðu,
þá verðum við að treysta því að
þau hafi virkt aðhald frá fjölmiðl-
um. Annars hlýtur sú krafa að
verða sterk að löggjafinn setji
slíkum fyrirtækjum strangari
reglur en ella þyrfti. Það gefur
því auga leið að ekki er heppilegt
að fyrirtæki sem eru í markaðs-
ráðandi stöðu eigi jafnframt fjöl-
miðla. Það er beinlínis hættulegt.
Enn fremur er mjög varhugavert
að fyrirtæki sem er með yfir-
burði, jafnvel á fleiri en einum
markaði, sé jafnframt í markaðs-
ráðandi stöðu á fjölmiðlamarkaði.
Engin leið er til þess að fjölmiðill,
sem býr við slíkt eignarhald, geti
með trúverðugum hætti sinnt
skyldu sinni og veitt eiganda sín-
um það aðhald sem gera verður
kröfu um. Vafalítið munu margir
horfa til þessara sjónarmiða þeg-
ar málefni fjölmiðla verða til um-
fjöllunar á Alþingi.“
Spádómur forsætisráðherra
hefur nú gengið eftir. Margir
munu velta því fyrir sér hvers
vegna hann og samherjar hans
hafi skipt um skoðun. Af hverju
sitja núverandi eigendur Norður-
ljósa ekki við sama borð og eig-
endur Ísfilm 1987-1988, Stöðvar 2
og Frjálsrar fjölmiðlunar 1995,
Stöðvar 3 1995-1997 og Skjás eins
2001-2003? Áttu þó svokölluð
„markaðsráðandi fyrirtæki“
einnig hlut að máli í a.m.k. tvö
skipti af þeim fjórum sem
hér hafa verið rakin.
Í þessu sambandi
er rétt að hafa í huga
að fjölmiðlafrum-
varpið bannar ekki
aðeins markaðsráð-
andi fyrirtæki að
eiga fjölmiðla eða
reka samtímis
dagblöð og ljós-
vakamiðla heldur
leggur það blátt
bann við hvers
kyns sameign
dagblaða og
ljósvakamiðla,
þótt augljós
hagkvæmnis-
rök geti verið
fyrir slíkum
s a m r e k s t r i .
Athyglisvert
er að vikublöð
eru undanþeg-
in banninu og
hefur ekki komið
fram hver ástæð-
an er fyrir því. ■
DAVÍÐ ODDSSON
hrifinn af sameiginlegu
nvarpsfyrirtæki Morgun-
ðsins, DV, Sambandsins
og Reykjavíkurborgar.
BOB WOODWARD Í VIÐTALI
Bandaríski blaðamaðurinn Bob Woodward
sem nýlega gaf út bók þar sem fjallað er um
aðdraganda Íraksstríðsins var gestur í þættin-
um „Meet the Press“ í bandarísku sjónvarpi í
gær. Bókin hefur vakið mikla athygli.
Austur-Hérað:
Tekist á um málefni menningarhúss
MENNINGARHÚS Á fundi bæjar-
stjórnar á dögunum var tekist á
um málefni menningarhúss eða
menningarmiðstöðvar á Austur-
Héraði. Framsóknarmenn, sem
eru í minni hluta bæjarstjórnar,
lögðu til að þegar yrði hafist
handa um undirbúning að stofnun
menningarmiðstöðvar á Egils-
stöðum þar sem áhersla verði lögð
á sviðslistir.
Í tillögu minnihlutans kom og
fram að vinnu við verkið verði
hraðað þannig að menningarmið-
stöðin verði komin í gagnið þegar
endurnýjun á samningi sveitarfé-
laga á Austurlandi við mennta-
málaráðuneytið um aðkomu ríkis-
ins að menningarmálum í fjórð-
ungnum verður. Meirihluti bæjar-
stjórnar felldi þessa tillögu.
Meirihlutinn samþykkti að um
næstu mánaðamót yrði haldinn
opinn fundur um mótun stefnu um
uppbyggingu menningarhúss á
Austurhéraði. Í framhaldi á síðan
að taka stefnumótandi ákvörðun
um málið. ■
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI
Heimamenn í Austur-Héraði eru ekki á eitt
sáttir um byggingu menningarmiðstöðvar.
Samningar við menntamálaráðuneyti eru
framundan.