Fréttablaðið - 20.06.2004, Side 12
Benjamin „Bugsy“ Siegel var
myrtur fyrir 57 árum en hann var
brautryðjandi í skipulagðri glæp-
astarfsemi á vesturströnd Banda-
ríkjanna. Hann var skotinn á
heimili ástkonu sinnar, Virginiu
Hill, í Beverly Hills í Kaliforníu.
Hann hafði verið á tali við sam-
starfsmann sinn, Allen Smiley,
þegar skotið var á hann í gegnum
glugga. Þrjú skot hæfðu Siegel í
höfuðið og hann lést samstundis.
Bugsy ólst upp í fátækt í
Brooklyn og náði að koma undir
sig fótunum sem afbrotaungling-
ur og ásamt félaga sínum Meyer
Lansky, tókst honum að koma á
laggirnar glæpaneti sem byggði á
bruggi og fjárhættuspilum um
alla New York borg.
Bugsy hellti sér út í glamúrlíf-
ið í Hollywood og kynntist
stærstu nöfnum þess tíma svo
sem Cary Grant, Clark Gable og
Jean Harlow.
Árið 1945 fékk Bugsy nýja hug-
mynd. Í fjögurra klukkutíma akst-
ursfæri frá Los Angeles var dauf-
legur eyðimerkurbær Las Vegas
en í honum var leyfilegt að stunda
fjárhættuspil. Bugsy ákvað að
byggja Flamingo-hótelið í miðri
eyðimörkinni en framkvæmdirn-
ar voru fjármagnaðar af glæpa-
samtökunum í New York. Þetta
markaði upphaf Las Vegas eins og
við þekkjum hana í dag. ■
■ ÞETTA GERÐIST
1837 Viktoría drottning tekur við
bresku krúnunni eftir að frændi
hennar og konungurinn Vil-
hjálmur IV fellur frá.
1893 Lizzie Borden er sýknuð af því að
hafa myrt föður sinn og stjúp-
móður með exi.
1948 Dálkahöfundurinn Ed Sullivan frá
New York byrjar feril sinn sem
spjallþáttastjórnandi í sjónvarpi
með þættinum Toast of the
Town á CBS.
1959 Fyrrverandi þungavigtarhnefa-
leikameistarinn Floyd Patterson
endurheimtir titilinn með því að
rota Svíann Ingemar Johanson.
1963 Sovétmenn og Bandaríkjamenn
komast að samkomulagi um að
leggja sérstaka neyðarsímalínu,
svokallaða „hotline“, á milli leið-
toga sinna þegar Kalda stríðið
stóð sem hæst.
BUGSY
Var skotinn þremur skotum í höfuðið er
hann dvaldist hjá ástkonu sinni í Beverly
Hills.
Þrennt er á dagskrá Hrafnkels
Kristjánssonar íþróttafrétta-
manns hjá RÚV, í vikunni; Knatt-
spyrna, golf og fjölskyldan. „Ég
er að vinna nú um helgina og
verð því í fríi á morgun og á
þriðjudag,“ segir Hrafnkell, sem
hyggst nota þá daga til golfiðk-
unar en hann þykir lunkinn
kylfingur og er með 9 í forgjöf.
„Ég spila helst í mínum heima-
bæ, Hafnarfirði, en fer svo sem
hingað og þangað,“ segir hann
aðspurður um hvar hann leiki
helst golf.
„Svo fer ég að vinna á mið-
vikudaginn og þá verður knatt-
spyrnan í aðalhlutverki. Fjórir
leikir eru í Landsbankadeildinni
þá um kvöldið og ég mun lýsa
einum þeirra í útvarpi. Í kjölfar-
ið fylgja svo lýsingar á leikjum
EM í Portúgal í sjónvarpi. Það
snýst allt um fótbolta í vinnunni
þessa dagana,“ segir Hrafnkell,
sem virðist ekki gráta það neitt
ofboðslega.
Hann er enda knattspyrnu-
maður sjálfur og lék meðal ann-
ars með FH. Nú hefur hann hins
vegar fært sig niður um deildir
og leikur með Deiglunni í þriðju
deild. „Það er leikur hjá okkur á
mánudaginn eftir viku og eitt-
hvað þurfum við að búa okkur
undir hann. Ætli við spriklum
ekki tvisvar sinnum nú í vikunni,
það er voðalega rólegt yfir þessu
í þriðju deildinni,“ segir hann.
Þrátt fyrir að hafa gaman af
fótboltanum finnst Hrafnkeli
ágætt að fá frí um næstu helgi.
„Ég mun njóta þess undir lok
vikunnar að fá helgarfrí og gera
þá eitthvað skemmtilegt með
fjölskyldunni.“ ■
Knattspyrna, golf og fjölskyldan
HRAFNKELL KRISTJÁNSSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR
Knattspyrnan er fyrirferðarmikil í vinnunni
hjá honum næstu daga.
12 20. júní 2004 SUNNUDAGUR
■ AFMÆLI
■ ANDLÁT
NICOLE KIDMAN
Þessi fjölhæfa leikkona er 37 ára í dag.
21. JÚNÍ
Hvað ertu búin að bera
út lengi?
Síðan í fyrrahaust.
Hvað ertu með í vasan-
um?
Veski, síma og vasahníf.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Að ferðast.
Hvert er þitt mottó?
Að vera hress.
[ BLAÐBERI VIKUNNAR ]
PÉTUR KARL HEMMINGSEN
Ragnheiður Guðmundsdóttir, lést 4.
júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Svavar Guðbjartsson, frá Lambavatni,
lést 15. júní.
Sigurlaug Siggeirsdóttir, Seli, Stokkseyri,
lést 16. júní.
Þorsteinn Árnason, Yrsufelli 8, lést
17. júní.
Ragnheiður Kristín Björnsdóttir, áður
til heimilis í Dynskógum 20, lést 17. júní.
Friðrik Lindberg Márusson lést 17. júní.
„Þetta er partur af því að koma af
stað hreyfingu gegn fordómum og
stuðla að friði manna á milli,“ seg-
ir séra Gunnar Sigurjónsson en
hann vann óvenjulegt „prests-
verk“ á föstudaginn þegar hann
lyfti samtals 510 kg og hlaut titil-
inn sterkasti prestur heims.
„Upphafsmaðurinn er bosníski
presturinn Ante Ledic sem opin-
berlega hefur lýst því yfir að vera
heimsins sterkasti prestur. Mark-
mið mitt var að slá hann út og
vekja um leið athygli á merkilegu
starfi hans,“ segir séra Gunnar en
presturinn Ante Ledic hefur unn-
ið ómetanlegt unglingastarf með-
al stríðshrjáðra í Bosníu.
„Hann telur að börn og ung-
lingar í stríðshrjáðum löndum séu
í mikilli hættu hvað varðar fíkni-
efnaneyslu, vændi og annan ólifn-
að og hefur staðið fyrir alls kyns
íþróttamótum fyrir krakkana. Þau
taka hann sér til fyrirmyndar því
honum er mikið í mun að eyða for-
dómum milli múslima og krist-
inna á sínu starfssvæði. Hann er
talin vera ógn við öfgasinnaða
múslima og þeir hafa reynt að
drepa hann nokkrum sinnum. Síð-
asta morðtilraunin var þegar
hann var að koma úr messu á jóla-
dag. Þá svaraði Ante Ledic umsát-
ursmönnum og sagðist skilja að
þeir vildu drepa sig en bað um að
það reyndu það frekar á skrifstof-
unni sinni eða heima hjá honum
svo aðrir yrðu ekki fyrir árásinni.
Þetta er alvörumaður sem heims-
byggðin mætti taka sér til fyrir-
myndar en um leið vonast ég til að
uppátækið sé hvatning fyrir eldri
karlmenn til að lyfta sér til
ánægju, kapps og heilsubótar.“
Alþjóðlegir dómarar voru á
svæðinu til að athuga hvort allt
færi rétt fram hjá Gunnari en á
föstudaginn lyfti hann 130 kílóum
í bekkpressu, 150 í hnébeygju og
230 kílóum í réttstöðulyftu.
„Þetta fór fram úr björtustu
vonum og ég get ekki annað en
verið ánægður,“ segir Gunnar
sem hefur æft kraftlyftingar með
þjálfaranum Kjartani Má Hall-
kelssyni í Nautilus síðustu sjö
árin og kemst nú vonandi í heims-
metabók Guinness fyrir afrekið.
„Félagar mínir í Bandaríkjunum
ætla að reyna að finna prest til að
slá metið mitt þar og ef þeir finna
engan segjast þeir ætla að vígja
sterabolta í prestsstarfið. Aðalat-
riðið er að sjálfsögðu ekki að ég sé
sterkasti prestur í heimi heldur að
vakin sé athygli á því að við um-
göngumst hvort annað af kærleika,
tillitssemi og umburðarlyndi.“
tora@frettabladid.is
HEIMSMET
GUNNAR SIGURJÓNSSON
■ Presturinn í Digraneskirkju er sterkasti
prestur í heimi. Hann hvetur karlmenn til að
lyfta sér til ánægju, kapps og heilsubótar og
vill með afrekinu vekja athygli á heimsfriði.
VIKAN SEM VERÐUR
HRAFNKELL KRISTJÁNSSON
■ íþróttafréttamaður hjá RÚV hefur í
nógu að snúast í vikunni þar sem fótbolti
og golf koma við sögu ásamt fjölskyldunni.
20. JÚNÍ 1947
BUGSY SIEGEL
■ glæpaforingi var drepinn í Beverly Hills
fyrir 57 árum. Hann lagði meðal annars
grunninn að Las Vegas eins og við þekkj-
um borgina í dag með byggingu
Flamingo-hótelsins.
GUNNAR SIGURJÓNSSON
Er sterkasti prestur heims og tekur við
titlinum af Ante Ledic sem hefur unnið
öflugt starf meðal stríðshrjáðra í Bosníu.
Pétur Karl er blaðberi vikunnar hjá Frétta-
blaðinu. Hann hefur það mottó að vera
hress og er bæði duglegur og kvartanalaus
í blaðburðinum.
Árný Erla Sveinbjörnsdóttir jarðfræð-
ingur er 51 árs.
Nanna Guðbergs-
dóttir, kaffihúsa-
eigandi og fyrrver-
andi fyrirsæta, er
30 ára.
Már Guðmunds-
son, yfirmaður hjá
Alþjóðagreiðslu-
bankanum í Sviss,
verður fimmtugur
mánudaginn 21.
júní. Hann tekur á
móti gestum í Fé-
lagsheimili Þróttar
í Laugardal í dag, sunnudag, á milli
klukkan 17-20.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
G
ÍS
LA
SO
N
Heimsins sterkasti prestur
Glæpamaðurinn Bugsy drepinn