Fréttablaðið - 20.06.2004, Blaðsíða 38
Dorrit smellti sér á jakkann
Hæð: 193 cm.
Augnlitur: Gljáeygður.
Starf: Skrifari.
Stjörnumerki: Meyja. Ég vil vekja athygli á að
Nick Cave er líka meyja. Það er ekkert að því
að vera meyja.
Hjúskaparstaða: Þurfandi.
Hvaðan ertu? Stórborgarbarn úr smábænum
Reykjavík.
Helsta afrek: Vonandi að hjálpa til við að opna
fyrir umræðu um fordóma í þjóðfélaginu.
Helstu veikleikar: Að botna ekkert í heimi
þar sem allt gengur út á peninga.
Helstu kostir: Hefur maður einhverja kosti í sjál-
fu sér? Skiptir ekki meira máli hvað maður gerir?
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Simpsons er enn-
þá beittasta þjóðfélagsádeilan. Og Spaugstof-
an. Merkilegt samt að enginn hafi tekið við.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Tvíhöfði drottnar
enn. Og Freysi og félagar á Rás 2 berjast
hetjulega gegn ládeyðunni.
Uppáhaldsmatur: Eldsmiðjupitsur með snigl-
um. Ég ber samt mikla virðingu fyrir sniglum.
Uppáhaldsveitingastaður: Zetorinn í
Helsinki. Góðir traktorar, vondur matur.
Uppáhaldsborg: Helsinki.
Uppáhaldsíþróttafélag: Orðin uppáhalds og
íþróttir eru mótsögn hvað mig varðar.
Mestu vonbrigði lífsins: Að vaxa úr grasi og
komast að því að leikskólalögmálin gilda ennþá.
Hobbý: Að rokka með Ríkinu.
Viltu vinna milljón? Það fer eftir því á hvaða
forsendum og úr hvaða vasa.
Jeppi eða sportbíll: Nei takk, ég er á hjóli.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór? Rithöfundur eða rokkstjarna. Ég er enn
að stækka en þetta stendur á sér.
Skelfilegasta lífsreynslan: Að fæðast. Ég org-
aði og grét en enginn hafði samt fyrir því að
skila mér tilbaka.
Hver er fyndnastur? Annað hvort Örn Árna-
son sem Davíð Oddsson eða Davíð sjálfur.
Það er hörð samkeppni.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Ég er farinn að
verða spenntur fyrir konum í fötum, þar sem
þær eru farnar að vera sjaldgæf sjón í sjón-
varpinu. Konur í föt!
Trúir þú á drauga? Það sem mig langar til að
vita er hvort draugur Reagans sé kominn á
Höfða. Draug Reagans heim!
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Snigill. Hinn
eilífi ferðalangur með heimilið á bakinu og
það er ferðin sjálf sem skiptir máli því tak-
markinu verður aldrei náð. Sniglar eru afar
rómantísk dýr.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Snigill á
Eldsmiðjupitsu.
Áttu gæludýr? Ég átti kött sem hét Ramses en
ég hef ekki séð hann lengi. Ég vona að hann hafi
allavegana fengið á’ann, eins og segir í laginu.
Hvar líður þér best? Á dimmum bar í
Helsinki, þegjandi með Lapin Kulta í hönd við
undirleik harmonikkutónlistar.
Besta kvikmynd í heimi: Weapons of Mass
Distraction. Segir meira en hundrað orð um
það hvernig hlutirnir raunverulega virka.
Besta bók í heimi: Brave New World eftir
Aldous Huxley. Það eina gagnlega sem ég las í
skóla en hún bætir næstum því upp allt hitt. Því
miður á hún betur við nú en nokkurn tíma.
Næst á dagskrá: Að gera heiminn að betri
stað. En ég þarf að fá mér eitthvað að éta fyrst.
Líður best á dimmum bar í Helsinki
30 20. júní 2003 SUNNUDAGUR
... fær ÍSÍ fyrir Kvennahlaupið
sem hlaupið var í 15 sinn í gær
og er fyrir löngu orðið að föstum
og árvissum viðburði í lífi kvenna
á öllum aldri.
HRÓSIÐ
„Ólafur Ragnar Grímsson er
verndari Grímunnar og því fannst
mér þetta viðeigandi klæðnaður,“
segir leikarinn Ólafur Egill Egils-
son en jakki hans vakti stormandi
lukku gesta á Grímuverðlaunahá-
tíðinni. „Ég kom auga á boli með
mynd af Ólafi Ragnari í búð Jóns
Sæmundar á Klapparstígnum og
Jón var svo vinsamlegur að
þrykkja spes fyrir mig jakka með
mynd af forsetanum. Ég vissi að
Ólafur Ragnar tæki þessu ekki
illa og Dorrit hló að þessu í bak og
fyrir. Henni fannst Ólafur bæði
sætur og unglegur á myndinni og
er víst búin að panta sér einn
jakka sjálf,“
Ólafur Egill var tilnefndur sem
besti leikari í aðalhlutverki á
Grímunni fyrir frammistöðu sína
í leikritinu Brim eftir Jón Atla
Jónasson. Hann heldur nú utan
ásamt Vesturportinu til að sýna
verkið. „Við erum að fara á leik-
listarhátíð í Frankfurt. Sérstök
sendinefnd velur verk eftir ný
leikskáld til sýningar á hátíðinni
og það að vera valinn er svolítið
eins og að komast í úrslitin á EM.
Þetta er mikil upphefð fyrir Jón
Atla Jónasson og það er allt borg-
að undir okkur út en Eimskipafé-
lagið studdi okkur líka og ætlar að
flytja leikmyndina í heilu lagi
með gámi til Frankfurt.“
Í haust býður aðalhlutverk í
Þjóðleikhúsinu eftir Ólafi Agli en
þar kemur hann til með að leika á
móti bekkjarsystur sinni Arn-
björgu Hlíf Valsdóttur. Leikarinn
hyggur líka á áframhaldandi sam-
starf við Jón Atla Jónasson. „Við
erum miklir mátar og ég stefni að
því að leikstýra litlu verki eftir
hann í sumar með hópi ungs fólks
sem kallar sig Reykvíska listaleik-
húsið. Verkið heitir Krád plíser og
er nokkurs konar úttekt á verslun-
armiðstöðvarkúltúrnum sem er vel
við hæfi því ég hef eytt töluverðum
tíma í Smáralindinni í sumar og er
þar að leggja lokahönd á leikmynd
fyrir söngleikinn Fame áður en ég
flýg til Frankfurt.“ ■
LEIKLIST
LEIKARINN ÓLAFUR EGILL EGILSSON
■ var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik
sinn í Brimi en heldur nú með leikhópn-
um til Frankfurt til að sýna á einni virt-
ustu leiklistarhátíð Evrópu.
ÓLAFUR EGILL EGILSSON
Dorrit Moussaieff var ákaflega hrifin af uppátæki Ólafs Egils á Grímuverðlaununum en
hann klæddist þar jakka með mynd af eiginmanni hennar Ólafi Ragnari.
Bakhliðin
Á VALI GUNNARSSYNI,
RITSTJÓRA REYKJAVÍK GRAPEVINE
„Þetta er sannkölluð veisludag-
skrá, stanslausar uppákomur frá
hádegi fram undir morgun,“ segir
Jóhannes Viðar Bjarnason hjá
Fjörukránni í Hafnarfirði. Vík-
ingahátíðinni lýkur í dag með Sól-
stöðublóti að hætti ásatrúar-
manna. „Sólstöðunni verður
hampað að heiðnum sið og mun
Hilmar Örn Hilmarsson stjórna
blótinu.“
Sólstöðublótið hefst klukkan
19.30 í kvöld en auk þess verður
fjöldamargt á dagskrá. „Bardagar
verða háðir, sönghópar taka lagið,
leiksýningar settar upp og lista-
menn höggva í steina og tré.“
Um hundrað útlendingar uppá-
klæddir sem víkingar sækja hátíð-
ina í ár en auk þeirra eru um 60 ís-
lenskir víkingar á svæðinu. „Þetta
er sannkölluð fjölskylduhátíð og
heilu víkingafjölskyldurnar sem
sækja hana. Áður héldu menn að
þetta væri eintómt vopnaglamur,
fyllirí og slagsmál en það er öðru
nær,“ segir Jóhannes.
Á hverju kvöldi hefur verði
sungið við varðeld og blásið til
dansleiks og verður ekki gerð und-
antekning þar á í kvöld. Varðeld-
urinn hefst klukkan 20 og dans-
leikurinn að því loknu kl. 23.
Jóhannes segir gaman að fylgj-
ast með ungviðinu í Hafnarfirðin-
um þessa dagana enda vinsælt að
bera trjásverð og skjöld. „Börnin
eru bestu vinir víkinganna og það
er gaman að sjá þau koma hingað.
Um þessar mundir borða þau kjöt-
súpu og grillað lambakjöt í stað
hamborgara og pitsu,“ segir Jó-
hannes og hvetur hann alla til að
láta sjá sig í Hafnarfirði í dag. ■
VÍKINGAHÁTÍÐ
SÓLSTÖÐUBLÓT
■ verður að hætti ásatrúarmanna í
Hafnarfirði í kvöld á Víkingahátíðinni.
Dagskráin er fjölbreytt og geta allir fund-
ið eitthvað við sitt hæfi.
VÍKINGAR BERJAST
Jóhannes segir mikið um að vera í Hafnarfirði í dag. Víkingar berjast, sýna listir sína og syngja.
Víkingar eru bestu vinir barnanna
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Við Rauðavatn.
15 milljarða króna.
45 milljarða króna.