Fréttablaðið - 20.06.2004, Page 18
Til að koma þér í mjúkinn hjá yfirmönnunum er
mikilvægt að standa sig vel í vinnunni. Ekki
koma of seint, gerðu það sem þú segist ætla að
gera, hafðu skipulagið í lagi og gerðu þitt besta.
[ HVERNIG VERÐUR MAÐUR ... ]
Þórunn Sigþórsdóttir er landvörður í
þjóðgarðinum á Snæfellsnesi. Hún hef-
ur starfað sem skála- og landvörður víðs
vegar um landið í um tíu ár og má þar
nefna Landmannalaugar, Herðubreiðar-
lindir og Öskju. Þetta er þriðja sumar
Þórunnar í þjóðgarðinum Snæfellsjökli
og hefur hún starfað þar sem landvörð-
ur frá stofnun hans og líkar vel. „Störf
landvarða eru margvísleg og geta verið
ólík frá einu svæði til annars, allt eftir
aðstæðum og náttúrufari. Almennt eiga
landverðir það sameiginlegt að hafa
áhuga á náttúru og náttúruvernd. Ég hef
starfað bæði hér og á hálendinu og
finnst bæði mjög skemmtilegt og gef-
andi. Mér finnst bæði fróðlegt og lær-
dómsríkt að taka þátt í þeirri þróunar-
vinnu sem á sér stað hér í þjóðgarðinum
á Snæfellsnesi. Þetta er þriðja sumarið
sem hann er starfræktur og felst starfið
okkar að miklu leyti í uppbyggingu hans
eins og að fræða fólk um svæðið, skipu-
leggja göngustíga, ýmiss konar viðhald
og að laga gönguleiðir. Það getur því
berið breytilegt frá degi til dags. Með
fræðslu og góðu aðgengi er fólki auð-
velduð umgengni um náttúru landsins.
Þann 19. júní hefst svo hefðbundin dag-
skrá þjóðgarðsins. Þá verður ýmis
fræðsla í boði fyrir gesti, gönguferðir
verða fimm sinnum í viku og barna-
stundir tvisvar í viku,“ segir Þórunn.
Þórunn segir ferðamannastrauminn á
svæðið hafa aukist verulega eftir stofn-
un þjóðgarðsins. „Hér er ægifögur nátt-
úra og margt að skoða. Það á að fara að
opna gestastofu þjóðgarðsins á Hellnum
og þar munu landverðir vera til staðar
og veita upplýsingar,“ segir hún. Á vet-
urna hefur Þórunn verið að læra ferða-
málafræði við Háskólann á Hólum.
halldora@frettabladid.is
Kennarar-
Íþróttakennarar
Laus er til umsóknar kennarastaða
og íþróttakennarastaða við
Kirkjubæjarskóla á Síðu og staða
æskulýðs- og íþróttafulltrúa
Skaftárhrepps.
Um er að ræða um 100 % starf við almenna
kennslu, aðallega á unglingastigi, og 80 %
starf við íþróttakennslu. Staða íþróttakennara
fer vel með starfi æskulýðs- og íþróttafulltrúa
Skaftárhrepps sem er áætlað um 20 - 30 %
starf.
Kirkjubæjarskóli er grunnskóli á Kirkjubæjar-
klaustri með um 70 nemendur. Við skólann er
nýtt og glæsilegt íþróttahús. Aðbúnaður nem-
enda og starfsfólks er góður. Við skólann er
m.a. vel búið tölvuver, sérlega vel búið bóka-
safn, gott mötuneyti og þar er starfræktur tón-
listarskóli. Við skólann starfar metnaðarfullur
og samhentur hópur kennara, nemenda og
starfsfólks. Á Kirkjubæjarklaustri er að finna
alla nauðsynlega þjónustu s.s. heilsugæslustöð
og leikskóla.
Upplýsingar veitir Stella Á. Kristjánsdóttir,
skólastjóri í síma 865-7440. Fyrirspurnir má
senda á netfang skólans kbskoli@ismennt.is
Flutningsstyrkur og húsaleigufríðindi eru í
boði.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 1. JÚLÍ.
Landvarðarstarfið:
Fjölbreytt og
skemmtilegt starf
Þórunn Sigþórsdóttir, landvörður í þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
ATVINNA
Hvað gerðu þær áður en þær urðu frægar?
Leikkonan
Calista
Flockhart úr
þáttunum
Ally McBeal
var leikfimi-
kennari.
Leikkonan
Lucy Liu var
ritari.
Vinalega
leikkonan
Courtney
Cox var að-
stoðarkona
á skrifstofu.
Britney Spears var fyrst uppgötv-
uð á matsölustað ömmu sinnar.
Töffarinn
og leik-
konan
Uma Thur-
man vann
við að
vaska upp.
Leikkonan
Sandra Bull-
ock vann sem
barþjónn.
Hin síhressa
leikkona
Whoopi Gold-
berg var lík-
snyrtir.
Hin giftinga-
óða söngkona
Jennifer Lopez
var íhlaupa-
dansari.
... auglýsingateiknari?
Í dag starfa um 120 manns sem grafískir
hönnuðir á Íslandi. Starfið felst í að sjá
um auglýsingagerð, hönnun umbúða,
plakata, bæklinga, tímarita, dagblaða,
bókakápa, vefsíðna og að búa til efni í
leiknar auglýsingar í sjónvarpi. Flestir
vinna á auglýsingastofum en einnig eru
margir í föstu starfi við auglýsingagerð
stórfyrirtækja.
Til að verða auglýsingateiknari sækir
maður nám í grafískri hönnun sem fer
fram í Listaháskóla Íslands eða sambæri-
legum skólum erlendis. Nám í grafískri
hönnun er nám í framsetningu á upplýs-
ingum á myndrænan hátt fyrir fjölmiðla-
greinar. Umsækjendur verða að velja á
milli þess hvort þeir leggja áherslu á
prent eða skjámiðla. Eftir BA-gráðu er
greið leið út á vinnumarkaðinn, en einnig
eru víðtækir möguleikar á að auka þekk-
ingu og sérhæfingu með framhaldsnámi
á háskólastigi, t.d. í hreyfimyndagerð,
stjórnun hönnunarverkefna eða bóka-
hönnun. Námið tekur þrjú ár og skóla-
gjöld fyrir skólaárið 2004-2005 eru
165.000 krónur.
Rétt til að sækja um nám hafa þeir sem
lokið hafa stúdentsprófi, sambærilegu
námi eða námi af listnámsbrautum
framhaldsskólanna. Þeir sem sækja um
eftir að hafa lokið námi af listnámsbraut-
um verða að auki að hafa lokið sex ein-
ingum í íslensku og 12 einingum í er-
lendum tungumálum eða samtals 123
einingum. Umsækjendur þurfa að vera
hæfileikamiklir og hugmyndaríkir. Þeir
sem ekki uppfylla þessar kröfur koma þá
aðeins til greina, að þeir geti sýnt fram á
einstaka, óvenjulega hæfileika á því sviði
sem þeir sækja um og hafi að baki ann-
að nám eða störf sem að mati viðkom-
andi deildar getur talist jafngildi þess
náms sem á vantar.
Vinna í auglýsingageiranum er afar næm
á breytingar í þjóðfélaginu. Þegar góðæri
er ríkur starfsmannafjöldi auglýsingastof-
anna upp, en um leið og samdráttar er
vart fækkar starfsfólkinu. Fjöldi auglýs-
ingastofa hefur farið minnkandi með ár-
unum og æ fleiri grafískir hönnuðir hafa
ráðið sig til stærri fyrirtækja í auglýsinga-
gerð. Þá er talsvert um einyrkja í faginu.
Vinna á auglýsingastofum er oftast nær
dagvinna. Byrjunarlaun eru frá 250 þús-
undum en auglýsingateiknarar með víð-
tæka þekkingu og reynslu fá allt upp í
600 þúsund í mánaðarlaun. Stéttarfélag
grafískra hönnuða er Félag grafískra
teiknara sem er sameinað Félagi bóka-
gerðarmanna. ■
SMÁAUGLÝSINGAR ALLA DAGA
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins