Fréttablaðið - 20.06.2004, Síða 39
31SUNNUDAGUR 20. júní 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
Landsmót hestamanna á Hellu 28. júní - 4. júlí
Hátíð hestamanna
og allrar fjölskyldunnar
Sannkölluð uppskeruhátíð íslenskra hestamanna þar sem gæðingar og
knapar sýna hvað í þeim býr í fjölbreyttum keppnis- og sýningaratriðum.
Sannkölluð sumarhátíð fjölskyldunnar þar sem gefst ógleymanlegt tækifæri
fyrir börn og fullorðna til að njóta upplifunar, ævintýra og skemmtunar.
Missið ekki af einstæðu tækifæri til fundar við íslenska hestinn, íslenska
hestamenn, íslenska náttúru og sumardýrð.
Kynnið ykkur dagskrána og leitið frekari upplýsinga á www.landsmot.is
28. JÚNÍ - 4. JÚLÍ
www.landsmot.is
Í
S L
E N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A
ST
O
F A
N
/ S
I A
. I
S
L
A
N
2
50
49
0
6 /
2 0
0 4
Fjölbreytt skemmtiatriði á hverjum degi
Fjölbreyttir gistimöguleikar
Góð tjaldstæði
Stutt í golf
Áhugaverðir ferðamannastaðir í nágrenninu
Barnaleikvöllur
Barnagæsla
Spaðarnir hleypa á músíksprett á fimmtudagskvöld
Stuðmenn halda uppi fjörinu á föstudagskvöld
Milljónamæringarnir með Stefáni Hilmars og
Bogomil Font slá í á laugardagskvöld
„Markmiðið með Bleiku steinun-
um er að hvetja fólk sem er í
áhrifastöðum að hafa jafnréttis-
sjónarmið að leiðarljósi við
ákvarðanatöku,“ segir Katrín
Anna Guðmundsdóttir, talskona
femínistafélagsins, en Bleiku
steinarnir voru afhentir í gær við
hátíðlega athöfn.
„Í þetta skiptið ákváðum við að
horfa til kvennaknattspyrnunnar.
Það sem vekur helst athygli okkar
er að vinningslið karladeildarinn-
ar fær mun hærra verðlaunafé en
sigurvegari kvennadeildarinnar.
Það er það mikill munur á upphæð
verðlaunafésins að lélegustu
karlaliðin sem falla niður um
deild fá hærra framlag en vinn-
ingsliðið í efstu deild kvenna.“
Katrín Anna segir að við nánari
athugun hafi komið í ljós að
nokkrir samverkandi þættir skip-
ti þarna máli. „Það er langt í land
en okkar markmiðið er ekki að
blanda kvenna- og karlaknatt-
spyrnunni saman en það ætti að
gera báðum þessum greinum
jafnhátt undir höfði. Það ber vott
um ákveðið verðmætamat þegar
svona mikill greinarmunur er
gerður þarna á milli,“ segir
Katrín Anna og bætir því við að
það vanti ekki upp á árangurinn
hjá kvennalandsliðinu. „Landslið-
ið er að standa sig mjög vel og í
raun betur en karlarnir, samt
virðist vera mun erfiðara að fá
kostunaraðila.“
Fimm aðilar tóku á móti Bleiku
steinunum í gær, Markús Örn Ant-
onsson fyrir hönd RÚV, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra, Eggert Magnússon fyrir
hönd KSÍ, Helena Ólafsdóttir
landsliðsþjálfari og Ingólfur Guð-
mundsson fyrir hönd Landsbanka
Íslands. „Í fyrra fylgdum við af-
hendingunni eftir með málþingi
þar sem fulltrúar þeirra sem tekið
höfðu við hvatningarverðlaunun-
um gerðu grein fyrir því hvernig
unnið hafði verið að jafnréttismál-
um. Við teljum að verðlaunin skili
árangri og hvetji viðkomandi aðila
til að hafa jafnréttismál ofar á list-
anum en áður,“ segir Katrín Anna
að lokum. ■
BLEIKIR STEINAR
FEMÍNISTAFÉLAGIÐ
■ afhenti hvatningarverðlaun í gær.
Bleiku steinarnir fóru að þessu sinni til
aðila tengda kvennaknattspyrnunni.
Bleikir steinar til kvennaknattspyrnunnar
Björn Bjarnason dómsmálaráð-herra er eins og alþjóð veit sá
stjórnmálamaður íslenskur sem
fyrstur hagnýtti sér internetið að ein-
hverju marki en hann hefur haldið
úti heimasíðunni björn.is í áraraðir.
Þar fjallar Björn um það sem honum
er efst í huga
hverju sinni og
það má því með
sanni segja að
hann sé bloggari
þó hann teljist
vitaskuld til þeir-
ra allra virðuleg-
ustu og form-
föstustu sem út-
tala sig á ein-
staklingssíðum á netinu. Það þarf því
engan að undra að Björn fylgist vel
með kollegum sínum og í nýjum
pistli gerir hann bloggið að umtals-
efni. „Ég geri dálítið að því að fylgjast
með umræðum á blog-síðum til að
kynnast þeim viðhorfum, sem þar
birtast. Finnst mér margar síður
vandaðar og greinilegt, að eigendur
þeirra njóta þess að hafa þennan
vettvang til að segja frá eigin reynslu
og lífi auk þess að ræða um landsins
gagn og nauðsynjar.“ Björn er býsna
hress með þá frjálsu umræðu sem
blómstrar á blogginu en notar tæki-
færið þó til þess að hnýta í nafnlausa
spjallvefi sem hafa aldrei átt upp á
pallborðið hjá honum: „Nýja um-
ræðuflóran er ótrúlega fjölbreytt og
hún þrífst ekki nema vegna þess, að
eigendur síðnanna finna, að þær
gefa bæði þeim og öðrum nokkuð.
Það er mun skemmtilegra að kynna
sér það, sem er að gerast og gerjast
á blog-síðunum en að fylgjast með
nauðhyggjumönnunum neikvæðu
og nafnlausu, sem setja mestan svip
á málverja og aðra spjallþræði um
stjórnmál.“
Sjálfir virðast nafnleysingjarnir áMálefnin.com vera komnir í tilvist-
arkreppu og ummæli ráðherrans
munu væntanlega æra þá óstöðug-
ustu sem telja
sig beitta þögg-
un annarra fjöl-
miðla sem veld-
ur því að skarpar
þjóðfélagsgrein-
ingar þeirra ná æ
sjaldnar út fyrir
l a n d a m æ r i
spjallsvæðisins.
Sá mæti málverji
Ingimundur Kjarval hefur opnað
spjallþráð þar sem hann undrast
áhugaleysi Fréttablaðsins á því sem
fram fer á spjallsvæðinu: „Fréttablað-
ið er með dálk undir heitinu „af net-
inu“. Skilst að Málefni.com sé stærsti
umræðuþáttur á Íslandi, en aldrei
minnst á þann þátt. Hversvegna?“
Einhver sem kýs að kalla sig Glowe
er með svör á reiðum höndum:
„Sennilega vegna þess að blaða-
menn þola það ósköp illa að al-
menningur tjái sig um þau mál sem
eru í fréttunum og dragi sínar eigin
ályktanir út frá því.“ Málverjinn Voldi
bendir Glowe hins vegar á að hann
gæti verið með ákveðinn bjálka í
auganu: „Held að nærtækari skýring
sé að þessum umræðuvetvangi hafi
hrakað mjög á þessu tæpa ári sem
hann hefur verið starfandi – það er
hending að hér sjáist málefnaleg
umræða upp á síðkastið. Spurning
hvenær einhver gárunginn lætur skrá
www.omalefnin.com og lætur vísa á
þetta. Ég hef sagt það áður og segi
það enn – meðan ekki er einhvers-
konar „karma“ kerfi á notendum
hérna gildir hið gamla góða lögmál
að sá sem öskrar hæst vinnur um-
ræðuna, sama hvað málstaðurinn er
lélegur.“