Fréttablaðið - 03.07.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 03.07.2004, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 3. júlí 2004 21 Við hjónin höfðum verið gift í meira en áratug þegar löngun hans til að stunda makaskipti smitaði mig, meira af forvitni til að byrja með. Ég vissi að þessi hvöt hafði blundað í hon- um allan tímann en þegar við létum til skarar skríða fannst okkur báðum kominn tími til að fá tilbreytingu í kynlíf okkar hjóna. Fyrsta skiptið var í Kaup- mannahöfn. Við rákumst á aug- lýsingu swing-klúbbs og mætt- um á staðinn, sem var í kjallara fjölbýlishúss; mjög heimilisleg- ur. Innréttingarnar voru eins og í ódýrri klámmynd; rautt pluss- veggfóður á veggjum og illa smíðaður bar í einu horninu. Gestirnir voru flestir um fimm- tugt; svona fremur óspennandi prófessorstýpur og stunduðu kynmök á gólfinu og í sófum á staðnum. Á barnum kom að máli við okkur par um fertugt og bauð okkur í afvikið herbergi á stóra dýnu. Mér fannst ekkert kynæsandi við tilhugsunina í fyrstu, en úr því við vorum komin á staðinn létum við okkur hafa það. Þessi lífsreynsla braut ísinn og kallaði á meira. Nú fannst mér tilhugsunin um hóp- kynlíf afar kynæsandi, enda fátt fegurra en að horfa á fólk stunda kynmök af taumlausri greddu og nautn. Eftir Danmerkurferðina fór- um við að leita að swing-klúbb- um hér heima, sem og í útlönd- um. Fljótlega fundum við klúb- ba í Belgíu og Hollandi, sem þykja þeir flottustu sinnar teg- undar í heiminum. Umgjörðin er ekki ósvipuð því sem fólk sá í kvikmyndinni Eyes Wide Shut. Báðir eru á stórum herragörð- um með konunglegum görðum og miklum íburði í hvívetna. Þangað höfum við oft gert okk- ur ferð, en gestirnir eiga það margir sameiginlegt að keyra langar vegalengdir víðs vegar að úr Evrópu til að eyða helg- inni á þessum stöðum og í orgíu með allt að þúsund manns í hvert skipti. Öryggiskerfi er strangt í þessum klúbbum og til að komast inn verður maður að vera meðlimur. Stakar konur eru leyfðar inn í klúbbana, en ekki stakir karlar. Mest er um hjón og pör sem koma gagngert í þeim tilgangi að halda framhjá hvort öðru fyrir framan hvort annað. Stemningin til að byrja með er ekki ólík því að fara inn á fimm stjörnu veitingahús. Fólk er vel klætt, á aldrinum 25 til 65 ára, og á það sameiginlegt að vera ánægt í eigin skinni, burt- séð frá útliti og holdafari. Þegar komið er á staðinn bíður manns hlaðborð gourmet-lostætis og dansgólf. Flestir gefa sér góðan tíma og borða vel, en þá eru höfð fataskipti og farið í léttari og erótískari fatnað. Margir dansa eftir matinn, þótt fleiri vilji strax byrja á því gnóttar- hlaðborði kynlífs sem í boði er. Í klúbbunum eru óteljandi her- bergi með hvers kyns ævintýra- þema; til dæmis bdsm-búri, læknastofu, austurlensku kvennabúri, skólastofu, ódýru hóruhúsi og víðáttumiklum söl- um með speglum í hólf og gólf og dýnuklæddum gólfum. Vin- sælast er að vera í stóru sölun- um og með sem flestum, en eng- in tónlist heyrist og enginn talar að ráði. Það eina sem heyrist eru munúðarfullar stunur, kynæsandi más og fullnæging- aróp, sem satt að segja hljómar sem fegursta sinfónía um allt setrið. Þá eru pottar, nuddstof- ur, gufuböð, sundlaugar og róm- antísk smáhýsi úti í erótískum garðinum, en þau er hægt að leigja ef fólk vill vera inni á herragarðinum heila helgi í org- íum allan sólarhringinn. Hvert sem litið er má sjá fólk í sam- förum, hópkynlífi, munnmökum og innilegu keleríi, en enginn er neyddur til þess að taka þátt ef hann ekki vill það. Mikið er um kossa og sleiki meðal fólks og konur koma gagngert til að eiga hópkynlíf með öðrum konum. Reyndar er eitt kvöld í viku að- eins ætlað konum og engum körlum hleypt inn. Fólk fer í þessa klúbba á sín- um eigin forsendum; sum hjón til að hafa kynmök innan um aðra, meðan margar konur vilja bara leggjast og fá sem flesta karlana og í löngum röðum til að hafa samfarir við sig. Það sem upp úr stendur er hversu allir eru indælir og elskulegir. Maður fer heim al- sæll á sál og líkama, en per- sónulega fæ ég dugandi skammt eftir tvö kvöld í röð meðan eiginmaðurinn mundi helst vilja vera vikuna út í þess- um orgíum, en margir koma þarna um hverja helgi. Okkur finnst ekkert mál að horfa á hvort annað með öðru fólki og engin afbrýðisemi kviknar. Við erum í þessu saman af því okk- ur finnst það æðislegt og erum örugglega rétt að byrja. Vefsíður þessara eðal-swing- klúbba í Hollandi og Belgíu eru fun4two.nl og acanthus.be ■ Reynslusaga fertugrar swing-konu Úr kvikmyndinni Eyes Wide Shut.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.