Fréttablaðið - 08.07.2004, Qupperneq 12
12 8. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
MICHAEL MOORE Í PARÍS
Fransmenn flykktust í bíóhús á miðvikudag
þegar nýjasta mynd róttæklingsins Michael
Moore, Fahreinheit 9/11, var frumsýnd.
Ríkisstjórn Bush er óvinsæl í Frakklandi og
setti myndin aðsóknarmet í flokki
heimildarmynda strax fyrsta kvöldið.
Nordjobb:
Mest aðsókn til Noregs
ATVINNUMÁL „Á þessu ári hafa 72
komið til landsins til að vinna og
76 íslenskir unglingar farið til
hinna Norðurlandanna hingað
til,“ segir Alma Sigurðardóttir,
tómstundafulltrúi hjá Norræna
félaginu, en félagið sér um allar
umsóknir vegna Nordjobb sem
er mannskiptaáætlun Norður-
landanna. Gegnum Nordjobb
getur ungt fólk sem vel er að
sér í tungumálum sótt sumar-
störf í Svíþjóð, Noregi, Dan-
mörku, Færeyjum eða Finn-
landi og fólk þaðan sótt vinnu
hér á Íslandi.
Mesta aðsóknin á þessu ári er
til Noregs en þar eru launin að
jafnaði aðeins hærri en annars
staðar auk þess sem góður tími
gefst til ferðalaga um þetta fal-
lega land. Alls sóttu 2.600 manns
um starf þar gegnum Nordjobb
af 4.200 umsækjendum á árinu.
Áætlunin er fjármögnuð af Nor-
rænu ráðherranefndinni og Nor-
rænu félögunum.
Alma segir að fátt sé meira
spennandi en starfa erlendis á
þessum aldri en Nordjobb er
ætlað öllum á aldrinum 18 til 26
ára sem áhuga hafa. „Það er eng-
inn efi að eitt slíkt sumar situr
lengi í minningunni enda eru
langflestir mjög ánægðir þegar
heim er komið aftur.“ ■
Um 20 tonn af hrefnukjöti á neytendamarkað fljótlega:
Helmingur
þegar seldur
SJÁVARÚTVEGUR „Þarna eru ekki um
meira en 20 tonn af kjöti að ræða
svo það verður vandræðalaust að
selja það,“ segir Gunnar Jóhanns-
son hjá Félagi hrefnuveiðimanna
en það félag sér um sölu á því
hrefnukjöti sem til féll við vís-
indaveiðar Hafrannsóknastofnun-
arinnar sem nú er lokið. Gunnar
segir að afar mikil eftirspurn sé
eftir fersku kjöti á borð við það
sem nú sé í boði og þegar hafi
verslunarkeðjurnar Nóatún og
Samkaup tryggt sér tíu tonn til að
byrja með. „Þar með er helming-
urinn farinn og miðað við það
verð sem hvalkjötið er selt á er
þess ekki langt að bíða að afgang-
urinn klárist.“
Hrefnukjötið verður selt í
neytendavænum pakkningum og
gert er ráð fyrir að kílóverð verði
innan við 700 krónur. Annars veg-
ar verða tvær góðar steikur í
öskju og svo stendur til að útbúa
sérstaka grillöskju enda þykir
mörgum grilluð hvalsteik gómsæt
með afbrigðum.
Félagsmenn eru því afar bjart-
sýnir en aðeins seldust 13 tonn af
því hrefnukjöti sem til féll í fyrra
og verður því um umtalsvert betri
sölu að ræða á þessu ári ef tekst
að klára öll 20 tonnin. ■
Í óskilum:
Eitt stykki
kafbátur
SVÍÞJÓÐ, AP Ómannaður kafbátur
sem fannst undan ströndum
Svíþjóðar í síðasta mánuði til-
heyrir breska sjóhernum að
sögn sænskra flotayfirvalda.
Bretar hafa þó litlar tilraunir
gert til að nálgast þennan kaf-
bát sinn. Hann er hlaðinn
myndavélum og sónar og er
rúmlega 70 milljóna króna
virði.
Bretar viðurkenndu eftir
flotaæfingar í maí að þeir
hefðu týnt dvergkafbáti sem
notaður er til að leita að tundur-
duflum. Bretar voru ekki þeir
einu sem týndu slíkum smákaf-
báti. Norðmaður gekk fram á
einn slíkan frá Bandaríkja-
mönnum sem hafði rekið á land
í Vestur-Noregi. Um 20 ríki
nota kafbáta þessarar gerðar. ■
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ HREFNUKJÖT Á DISKINN MINN
Margir fá enn vatn í munninn þegar minnst er á hrefnukjöt en heil kynslóð hefur vaxið úr
grasi án þess að bragða slíkt kjöt.
MIÐBORG HELSINKI
Tæplega 80 Íslendingar sækja sumarvinnu til hinna Norðurlandanna þetta sumarið gegn-
um Nordjobb.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R