Fréttablaðið - 11.07.2004, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 11.07.2004, Blaðsíða 41
25SUNNUDAGUR 11. júlí 2004 ÚTIMÁLNING OG VIÐARVÖRN [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Ég sá hljómsveitina !!! (sagt chk chk chk ef þið getið það) á Hró- arskelduhátíðinni í ár. Rauk beint út í búð þegar ég kom til Köben og keypti mér eintak. Ég hafði heyrt mikið um þessa sveit, en aldrei í. Þetta er ein af þessum sveitum þar sem orðsporið ferðast hraðar á milli landa en hljóðið. Tónleikar þeirra voru með því betra sem gerðist á hátíðinni. !!! spila frábæra blöndu af raf- tónlist, fönki, diskó, samba og til- raunarokki. Greina má áhrif frá Can, Bee Gees, The Rapture og James Brown. Allt mjög framúr- stefnulegt en alltaf grípandi. Það er nær ómögulegt að hlusta á þetta nema dansa með. Ef þið eruð hlekkjuð við tölvu allan daginn, eins og ég með heyrnartól í vinn- unni, er gott að standa stundum upp reglulega og hrista rassinn. Þess á milli stappa ég niður fótun- um, vinnufélögum mínum til ama, eða slæ höfðinu í takt. Það eru ekki margar plötu sem ná að framkalla þessi áhrif hjá mér. Þetta er mjög ögrandi tónlist, og gæti líklegast blásið lífi í stein- gervinga sé hún nægilega hátt stillt. Söngvararnir tveir eru svo báðir mjög skemmtilegir. Annar syngur í falsettu, að hætti Gibb- bræðra, en hinn er örlítið eins og flogaveikur Jim Morrisson, að minnsta kosti á sviði. Attitjútið lekur svo af textunum sem gefur tónlistinni sjálfri einhvern aukinn kraft. Hispurslaus sýn á lífið, póli- tík og tilveruna, þar sem allt snýst um að finna grúvið og halda gleðskapnum gangandi. Það er skylda að hlusta á þessa plötu á fullum styrk og þó þið þurfið að leggja töluvert á ykkur til þess að finna þessa plötu, látið þá verða af því. Louden Up Now verður án efa ein af plötum árs- ins, !!! er bylting. Birgir Örn Steinarsson Takið eftir !!! !!! LOUDEN UP NOW HLÆJANDI Á FRUMSÝNINGU Vel fór á með leikaranum Will Smith, sem fer með aðaIhlutverkið í kvikmyndinni Robot, og mótleikkonu hans Bridget Moynahan á frumsýningu myndarinnar í Los Angeles.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.