Fréttablaðið - 14.07.2004, Page 4
FJÖLMIÐLALÖG Ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar er „stjórnskipuleg
valdníðsla“ segir Ragnar Aðal-
steinsson sem mætti á fund alls-
herjarnefndar í gær. Dr. Herdís
Þorgeirsdóttir, frá lögfræðideild
Háskólans á Bifröst, segir að for-
seti Íslands geti hvorki synjað né
staðfest nýju fjölmiðlalögin verði
þau samþykkt af Alþingi. Hendur
hans séu bundnar.
„Löggjafarvaldið er hjá kjós-
endum og forsetinn bíður niður-
stöðu þeirrar löggjafar,“ segir
Herdís. Að sögn Herdísar er Al-
þingi ekki einkahandhafi löggjaf-
arvaldsins. Mikilvægt sé að hafa
í huga að stjórnarskráin er ekki
aðeins rétthærri heimild en önn-
ur lög heldur einnig rétthærri Al-
þingi og forseta Íslands sem sam-
an fari með löggjafarvaldið.
Jón Sveinsson, einn helsti ráð-
gjafi Halldórs Ásgrímssonar, tel-
ur að lög ríkisstjórnarinnar
standist stjórnarskrá.
„Í 38. grein stjórnarskrárinnar
kemur fram að þingmenn geta
hvenær sem er breytt lögum eða
fellt þau úr gildi. Sá réttur verður
ekki tekinn af þingmönnum nema
með skýru ákvæði í stjórnars-
kránni. Það ákvæði er ekki til
staðar, því vegur réttur Alþingis
þyngra en málskotsrétturinn,“
segir Jón.
Jakob R. Möller hæstaréttar-
lögmaður telur að ekkert komi í
veg fyrir það að Alþingi geti aftur-
kallað lög sem það hefði áður sett
og beitir sömu rökum og Jón.
„Jafnframt tel ég það mjög
ólíklegt að lögin séu ekki stjórnar-
skrárlega sett. Það er ekki í sjálfu
sér lögfræðilegt álitamál að setja
fram í sama frumvarpinu ný lög
og ákvæði um brottfall eldri lag-
anna sem forseti synjaði. Hins
vegar finnst mér það ópent,“ seg-
ir Jakob. Hann sagðist þó telja að
fjölmiðlalögin stangist á við
stjórnarskrána hvað varðar
ákvæði um tjáningarfrelsi og
eignarrétt.
Ragnar Aðalsteinsson sagði
einnig að löggjafinn geti ekki sett
lög með ómálefnalegum hætti þar
sem látið er að því liggja, sam-
kvæmt texta laganna, að þau hafi
ákveðið markmið en að baki liggi
önnur.
„Að því er fram hefur komið
opinberlega er ekki önnur skýr-
ing á nýja fjölmiðlafrumvarpinu
en sú að það sé samið til þess að
komast hjá þjóðaratkvæða-
greiðslu og myndu dómstólar
komast að þeirri niðurstöðu og
dæma þau því ógild,“ segir Ragn-
ar.
sda@frettabladid.is
BRUSSEL, AP Evrópudómstóllinn
hefur úrskurðað að ólöglegt hafi
verið að hlífa ríkisstjórnum
Frakklands og Þýskalands við
sektum vegna brota á Stöðug-
leikasáttmálanum um fjármál að-
ildarríkja evrunnar. Stöðugleika-
sáttmálinn gerir ákveðnar kröfur
um fjármálastjórn ríkjanna sem
eru aðilar að evrunni.
Fjármálaráðherrar Evrópu-
sambandsins tóku í nóvember þá
ákvörðun að beita ekki heimildum
til að sekta ríkisstjórnir Frakk-
lands og Þýskalands þótt fjárlaga-
halli þar hafi verið umfram við-
miðanir þrjú ár í röð. Dómstóllinn
kemst að þeirri niðurstöðu að
ákvörðunin hafi verið ólögmæt en
leggur ekki til leiðir til úrlausnar
málsins.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins fagnar úrskurðinum
og segir Romano Prodi, formaður
framkvæmdastjórnarinnar, að
fylgispekt við almennar reglur sé
besta leiðin til að tryggja stöðug-
leika í álfunni.
Talsmenn þýska fjármálaráðu-
neytisins fagna einnig niðurstöð-
unni. Þeir segja að í úrskurðinum
komi fram að nauðsynlegt sé að
gefa svigrúm við framkvæmd
Stöðugleikasáttmálans. ■
4 14. júlí 2004 MIÐVIKUDAGUR
Mannshvörf frá árinu 1991:
Ellefu manns horfnir
MANNSHVÖRF Alls hafa hérlendis horf-
ið 11 einstaklingar frá árinu 1991 til
ársloka 2003, aðrir en þeir sem farist
hafa við störf á sjó, samkvæmt
gagnaskrá ríkislögreglustjóra um
mannshvörf. Skráin byggir á upplýs-
ingum frá lögreglustjóraembættun-
um, en þeim ber að tilkynna ríkislög-
reglustjóra um horfna menn innan
þriggja mánaða frá því að manns-
hvarf er tilkynnt.
Í samantekt kemur fram að allir
hinna horfnu eru karlmenn eða
drengir, þrjú börn og tveir erlendir
ferðamenn. Talið er að átta af þeim
sem saknað er hafi fallið í sjó, foss
eða ár og einn hafi horfið í óbyggð-
um. Um tvo er ekki vitað annað en að
þeir fóru frá heimilum sínum.
„Það fer alltaf fram einhver
rannsókn en þegar talað er um
sakamálarannsókn þá hefur vaknað
grunur um jafnvel refsivert at-
hæfi,“ segir Gísli Pálsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá embætti rík-
islögreglustjóra. Einungis er vitað
til þess að eitt þessara mála hafi
verið rannsakað sem sakamál, það
er hvarf Valgeirs Víðissonar. Til
hans hefur ekkert spurst frá því 19.
júní árið 1994, þá átti hann tæpan
mánuð í þrítugsafmælið. Í skrif-
legu svari dómsmálaráðherra á Al-
þingi í fyrra kom fram að frá árinu
1945 hafi horfið 47 einstaklingar
aðrir en þeir sem farist hafa við
störf á sjó. ■
Stjórnskipuleg
valdníðsla
Lögspekingar sem komu á fund allsherjarnefndar í gær sögðu að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar væri „stjórnskipuleg valdníðsla“ og að hún
hefði „bundið hendur forseta“. Aðrir töldu hana standast stjórnarskrá.
Fangi fær mánuð í viðbót:
Faldi hass í
klefa sínum
DÓMSMÁL Mánuði var bætt við
fangavist refsifanga á Litla-
Hrauni auk þess sem gerð voru
upptæk tæp 50 grömm af hassi
sem fundust í klefa hans, sam-
kvæmt dómi Héraðsdóms Suður-
lands sl. mánudag. Fangaverðir
fundu hassið að morgni 14. októb-
er, árið 2003, vafið í pappír í kassa
undir rúmi ákærða í klefa hans í
fangelsinu. Í ákæru var ætlað að
hassið hafi að verulegu leyti verið
ætlað til sölu. Maðurinn játaði
brot sitt að öðru leyti en því að
hafa ætlað að selja efnið og var
fallið frá þeim lið ákærunnar. ■
Viðskiptahalli
Bandaríkjanna:
Minni í maí
WASHINGTON, AP Viðskiptahalli
Bandaríkjanna nam um 3.300
milljörðum króna í maí og lækk-
aði um 4,5 prósent frá því í apríl.
Búist var við því að viðskiptahall-
inn drægist saman en viðsnúning-
urinn var kröftugri en búist hafði
verið við.
Gengi Bandaríkjadals styrktist
á mörkuðum við fréttirnar en lágt
gengi hans er talin ein helsta
ástæða þess að útflutningur var
meiri í maí en nokkru sinni fyrr,
enda bandarískar vörur hlutfalls-
lega ódýrari en áður. ■
GEORGE BUSH
Talinn ákveðnari en keppinautur hans um
forsetaembættið, John Kerry. Fleiri telja
Kerry þó gáfaðan.
Bandarískir kjósendur:
Bush
ákveðnari og
hrokafyllri
WASHINGTON, AP Bandarískir kjós-
endur telja George Bush Banda-
ríkjaforseta ákveðnari og hroka-
fyllri en keppinautur hans úr liði
demókrata, John Kerry. Bush fyll-
ir auk þess fleiri Bandaríkjamenn
bjartsýni en Kerry að því er fram
kom í skoðanakönnun sem kynnt
var í gær.
Í augum nær allra bandarískra
kjósenda eru forsetaframbjóðarn-
ir báðir ríkir. Ívið fleiri töldu þó
Bush ríkan en Kerry.
Fleiri voru þó á þeirri skoðun
að Kerry væri gáfaður en Bush.
Fjórir af hverjum fimm að-
spurðra töldu lýsingarorðið eiga
við Kerry meðan rúm sextíu prós-
ent töldu Bush gáfaðan. ■
■ BANDARÍKIN
REPÚBLIKANAR STYÐJA NADER
Óháði forsetaframbjóðandinn
Ralph Nader nýtur góðs af repú-
blikönum þessa dagana. Í ljós
hefur komið að af 700 milljónum
sem hann hefur safnað í kosn-
ingasjóði eru 35 milljónir komnar
frá stuðningsmönnum repúblik-
ana sem vona að hann setji strik í
reikning demókratans John
Kerry.
Fylgist þú með Formúlu 1
í Sjónvarpinu?
Spurning dagsins í dag:
Mun Eiður Smári Guðjohnsen eiga gott
tímabil með Chelsea?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
61%
39%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
UM BORÐ
Afrískir flóttamenn horfa til lands þegar
þeir lögðust að bryggju í Sikiley á mánu-
dag. Nokkrum stundum síðar var áhöfn
skipsins handtekin.
Afrískir flóttamenn:
Áhöfn skips
handtekin
SIKILEY, AP Ítölsk yfirvöld hand-
tóku skipstjóra og þýskan hjálpar-
starfsmann eftir að 37 afrískum
hælisleitendum var leyft að ganga
á land á Sikiley í gær.
Hælisleitendurnir, sem segjast
koma frá héraðinu Darfur í Súd-
an, höfðu beðið um borð í skipi í
Miðjarðarhafi í rúmlega þrjár
vikur meðan Ítalir, Þjóðverjar og
Möltumenn deildu um hver veita
ætti flóttamönnunum hæli. Eftir
að ítölsk stjórnvöld voru beitt
þrýstingi fengu flóttamennirnir
loks inngöngu í landið.
Nokkrum stundum síðar gaf
lögregla þó út yfirlýsingu þess
efnis að í ljós hefði komið að
flóttamennirnir væru ekki frá
Súdan. Þá var ákveðið að hand-
taka áhöfn skipsins og hjálpar-
starfsmann fyrir að veita ólögleg-
um innflytjendum aðstoð. ■
Stærsta flugfélag Perú:
Fær ekki að
fljúga
LÍMA, AP Hundruð farþega urðu
strandaglópar eftir að stjórnvöld í
Perú settu bann á stærsta flugfé-
lag landsins, Aero Continente, að
því er fram kemur á fréttavef
BBC.
Ástæða bannsins var sú að
flugfélagið fékk engar tryggingar
en í síðasta mánuði settu banda-
rísk stjórnvöld það á svartan lista
fyrirtækja sem grunuð eru um að
tengist eiturlyfjaflutningum.
Flugfélagið hefur vísað algjör-
lega á bug öllum ásökunum þar að
lútandi en vera flugfélagsins á
listanum verður til þess að það
fær engar tryggingar. ■
1991 1
1992 0
1993 2
1994 4
1995 0
1996 0
1997 0
1998 0
1999 0
2000 1
2001 0
2002 3
2003 0
Alls 11
*Aðrir en þeir sem farist
hafa við störf á sjó.
Evrópusambandið:
Stóru ríkin fái ekki að sleppa
UNDIR FÁNA ESB
Evrópudómstóllinn gerir athuga-
semdir við að Frakklandi og Þýska-
landi sé hlíft við sektum.
RAGNAR AÐALSTEINSSON
Ragnar sagði að löggjafinn geti ekki sett lög með ómálefnalegum hætti þar sem látið er
að því liggja, samkvæmt texta laganna, að þau hafi ákveðið markmið en að baki liggi
önnur.
JÓN SVEINSSON
Telur lög ríkisstjórnarinnar standast
stjórnarskrá.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRAEMBÆTTIÐ
Ríkislögreglustjóri heldur skrá yfir einstaklinga sem horfið hafa og ekkert til spurst, annarra en
farist hafa við störf á sjó. Grunur er um saknæmt athæfi í hvarfi manns frá árinu 1994.
FJÖLDI HORFINNA FRÁ 1991*