Fréttablaðið - 14.07.2004, Side 8
14. júlí 2004 MIÐVIKUDAGUR
Framkvæmdastjóri NATO um Írak:
Leggur til frekari aðkomu NATO
ÍRAK, AP Jaap De Hoop Scheffer,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, ætlar að kynna leið-
togum aðildarríkjanna nýjar tillög-
ur í mánuðinum, um hvernig
bandalagið geti komið frekar að
málum í Írak. Í síðasta mánuði
samþykktu aðildarríki NATO að
taka að sér herþjálfun Íraka.
Scheffer vonast til að geta kynnt
tillögur sínar í ágústbyrjun.
Ekki liggur fyrir hvað hann kem-
ur til með að leggja til við Hosyar
Zebari, utanríkisráðherra Íraks,
sem var í opinberri heimsókn í
höfuðstöðvum Atlantshafsbanda-
lagsins í gær. Hann lagði til að
NATO aðstoði við landamæraeftirlit
eða sjái um öryggisgæslu við verk-
efni á vegum Sameinuðu þjóðannna
í Írak. Scheffer segist bíða eftir
skýrslu hernaðarsérfræðinga NATO
sem fóru til Íraks í vettvangsrann-
sókn og munu leggja tillögur sínar
fram í kjölfarið.
Málið er viðkvæmt því Frakkar
sögðu á fundinum í júní að það kæmi
ekki til greina af sinni hálfu að
NATO athafni sig í Írak. Þeir leggja
til að þjálfun Írakshers fari fram í
öðru landi en bandarísk stjórnvöld
telja það ekki gerlegt. ■
Kæra veglagningu
um námasvæði
Landeigendur í Hrauni í Grindavík hafa kært úrskurð Skipulags-
stofnunar um lagningu Suðurstrandarvegar. Vegagerðin bíður niður-
stöðu til að geta boðið út fyrsta áfanga veglagningarinnar.
SAMGÖNGUR Ein kæra barst vegna úr-
skurðar Skipulagsstofnunar um mat
á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs
Suðurstrandarvegar milli Þorláks-
hafnar og Grindavíkur. Stofnunin gaf
úrskurð sinn í lok maí og rann kæru-
frestur út 2. júlí sl. Þeir sem kæra úr-
skurðinn eru eigendur jarðarinnar
Hrauns í Grindavík, en þar er stund-
aður námarekstur í Hraunsnámum.
Jarðeigendur vilja að vegstæðinu
verði breytt þannig að vegurinn liggi
ekki um Hraunslandið og námasvæð-
ið, enda myndi hann, að þeirra áliti,
setja námureksturinn í uppnám. Að
öðrum kosti er þess krafist að úr-
skurður Skipulagsstofnunar verði
felldur úr gildi í heild sinni.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að fyrsti áfangi Suður-
strandarvegar væri í raun tilbúinn í
útboð um leið og lokið væri umfjöll-
un og kærumálum á vettvangi Skipu-
lagsstofnunar. Jónas Snæbjörnsson,
svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, bjóst
við að kæra landeigenda í Hrauni
bærist Vegagerðinni á næstu dögum
til umsagnar. „Það er nú ekki mein-
ingin að skerða neitt möguleikana til
efnistöku þarna í Hraunslandinu,“
sagði hann og bjóst við að hægt yrði
að ná lendingu í málinu tiltölulega
fljótt. Hann segir stefnt að því að
bjóða út fyrsta áfanga Suðurstrand-
arvegar undir lok árs, en það er veg-
spottinn frá Grindavík um Hrauns-
land og yfir að Ísólfsskála. „Þá er
komið yfir á jafnlendi aftur hinum
megin og ætti framkvæmdin að
koma vel að notum við að halda veg-
inum opnum lengur en hægt hefur
verið hingað til,“ sagði hann.
Í úrskurði Skipulagsstofnunar
frá því í maílok er fallist á lagningu
vegarins með ákveðnum skilyrð-
um, svo sem um samráð við Um-
hverfisstofnun um endanlega legu
á ákveðnum köflum. Úttekt Skipu-
lagsstofnunar var viðamikil og tók
t.d. bæði til mögulegra áhrifa á
fornminjar og áhrifa á náttúrufar,
svo sem á fuglalíf. Vegarins hefur
verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu síðustu ár, en horft er til
þess að með lagningu vegarins
verði Suðurlandið og Suðurnesin
orðin eitt atvinnusvæði.
olikr@frettabladid.is
30% afsláttur
á öllum síum í júlímánu›i
Kraftvélar ehf. · Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3501 · www.komatsu.is
Opið:
mán.–fim. 9–23.30
fös. 9–00.30
lau.–sun. 10–00.30
Leigjum út VHS og DVD
myndir í tvo sólarhringa
Einnig VHS og DVD tæki
Tilvalið í sumarbústaðinn
Sunnumörk 2
(nýja verslunarmiðstöðin í Hveragerði)
Eigum laust fyrir hópa
í júlí og ágúst
Nánari upplýsingar og tilboð
í síma 897-1189 og imi@khi.is.
JAAP DE HOOP SCHEFFER
Vonast til að geta lagt tillögur sínar fram
um næstu mánaðarmót.
SUÐURSTRANDARVEGUR GRINDAVÍKURMEGIN
Gert er ráð fyrir að hafist verði handa við lagningu Suðurstrandarvegar, sem tengja á Suð-
urland og Suðurnes þannig að úr verði eitt atvinnusvæði Grindavíkurmegin, um leið og
kærumálum fyrir Skipulagsstofnun er lokið.
FUGLAR Á VÁLISTA SEM GÆTT VAR AÐ VEGNA LAGNINGAR
SUÐURSTRANDARVEGAR
Fuglar Hætta vegna vegagerðar Aðalstaður á athafnasvæði
Himbrimi Lítil-nokkur Hlíðarvatn
Skrofa Engin Björgin, á sjó
Sjósvala Engin Á sjó
Stormsvala Engin Á sjó
Súla Engin Á sjó
Grágæs Lítil Hlíðarvatn
Skutulönd Lítil Hlíðarvatn
Straumönd Lítil Vogsósar, ströndin
Gulönd Nokkur Hlíðarvatn
Haförn Lítil-nokkur Þrír gamlir staðir
Fálki Lítil Þrír gamlir staðir
Svartbakur Lítil-nokkur Hafnarsandur, víðar
Stuttnefja Lítil Krýsuvíkurberg
Hrafn Lítil-nokkur Nokkrir staðir
Átta stungnir:
Mánudagur til meiðsla
PAMPLONA, AP Mánudagurinn síðasti
var sá blóðugasti það sem af er San
Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni
þetta árið. Átta einstaklingar fengu
að kenna á hornum nautanna sem
þeir reyndu að hlaupa á undan og í
það minnsta tíu til viðbótar meidd-
ust með einum eða öðrum hætti.
Hlaupið á mánudaginn fór
ágætlega af stað en versnaði eftir
því sem á leið. Verstur var loka-
spretturinn. Hlaupararnir féllu
hver um annan þveran í þröngum
innganginum að girðingunni þar
sem safna átti nautunum saman í
lok hlaupsins. Nautin gátu ekki
annað en rutt sér leið í gegnum
þvöguna því á eftir þeim komu
hundruð hlaupara sem þrýstu þeim
áfram. ■
TEKIST Á LOFT
Þessi fékk flugferð þegar naut lyfti honum
í hlaupinu á mánudaginn.