Fréttablaðið - 14.07.2004, Síða 13
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 169 stk.
Keypt & selt 25 stk.
Þjónusta 42 stk.
Heilsa 8 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 25 stk.
Atvinna 17 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Hvað á gjöfin að kosta?
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagur 14. júlí,
196. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.38 13.34 23.27
Akureyri 2.52 13.18 23.41
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Gróðrarstöðin Lambhagi við Vesturlands-
veg fagnar 25 ára afmæli sínu um þessar
mundir en þar var fyrsta vistvæna græn-
metisræktunin á Íslandi. Hafberg
Þórisson, stofnandi og eigandi Lambhaga
segir að fyrstu árin hafi verið erfið og
einkum vegna þess að vistvæn ræktun er
miklu dýrari en venjuleg ræktun. „Í vist-
vænni ræktun felst að engin eiturefni eru
notuð og nákvæmlega er skráð hvernig
grænmetið er meðhöndlað við ræktunina.
Á viku flytjum við ránmaura og flugur til
landsins fyrir 8000 kr. Þau éta sníkjudýrin
svo ekki þarf að nota skordýraeitur og
annað þess háttar. En auðvitað var þetta
mjög dýrt og hætta á að varan yrði of dýr
fyrir neytendur.“
Þegar Lambhagi var að byrja var erfitt
að markaðssetja vöruna og verðleggja
hana. „Þannig að ég settist niður með versl-
unareigendum og við fundum út í samein-
ingu hvað við þyrftum hvor um sig að hafa
fyrir okkar snúð. Ég held að ráðgjöf mín til
þeirra sem leggja út í eitthvað svipað sé að
hafa gott samstarf milli þess sem kaupir,
þess sem selur og þess sem framleiðir. Best
er að haga málum þannig að allir séu glaðir
og neytandinn fái salatið sitt á sem hag-
stæðastu verði án þess þó að nokkur þurfi
að borga með því. Lambhagi væri ekki
orðinn 25 ára ef við hefðum ekki haft þetta
að leiðarljósi,“ segir Hafberg sem hyggur á
lífræna ræktun í góðu samstarfi við kaup-
endur. ■
Ef stofna á fyrirtæki:
Passa að allir
séu glaðir
fjarmal@frettabladid.is
Verðbólga er minni í júlí sé
miðað við júnímánuð. Þannig var
verðbólga 3,6% í júlí en hún var
3,9% í júní og vantaði einungis
0,1% til að rjúfa
efri þolmörk pen-
ingastefnunnar.
Vísitala neyslu-
verðs í júlí lækkaði
um 0,47% frá fyrra
mánuði. Þetta er
nokkuð meiri
lækkun en viðskiptabankarnir þrír
voru að spá en þeir spáðu lækkun
á bilinu 0,2% til 0%.
Að mati Íslandsbanka eru nú
kjöraðstæður til að sækja fé á
hlutafjármarkað. Mikið fé er í um-
ferð og fjármögnun hlutabréfa
gengur greiðlega fyrir sig. Spurn
er eftir nýjum kostum á markað-
inum en nýtt félag hefur ekki
bæst í hópinn í Kauphöllinni
síðan Medcare Flaga var skráð
síðasta haust. Þau félög sem hafa
sagst vera að íhuga skráningu,
svo sem Atlanta, Tölvumyndir og
Norðurljós, virðast hins vegar vera
stutt komin af stað í því ferli. Af
einkavæðingu
Landssímans hef-
ur ekkert frést síð-
ustu mánuði.
Kaupþing Bún-
aðarbanki hf.
hefur ákveðið að
breyta skráningartímabili
komandi forgangsréttarútboðs.
Skráningartímabilið hefur verið
fært fram yfir birtingu sex mán-
aða uppgjörs bankans. Í stað
þess að hluthafar skrái sig fyrir
hinum nýju hlutum á tímabilinu
frá 21. júlí 2004 til 4. ágúst
2004, mun skráningartímabilið
hefjast þann 29. júlí og loka-
dagur þess verða 6. ágúst. Að
öðru leyti er fyrirkomulag út-
boðsins óbreytt frá því sem
fram kom í fyrri tilkynningu.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í FJÁRMÁLUM
Húsbíll. Fiat Ducato TDI árg. ‘01 með
svefnplássi fyrir 6. Sólskyggni, topp-
grind, hjólagrind. Einn með öllu. S. 892
2594 & 899 7005. Til sýnis hjá Evró,
Skeifunni.
Safi turnlyfta til sölu. Árg. ‘98, í mjög
góðu lagi. Nýskoðuð af vinnueftirlitinu.
Lengd á palli 7 m. Breidd 1 m, stækk-
anleg í 1,7 m. Vinnuhæð nú 22 m. Verð
kr. 1.400.000 staðgreitt + vsk. Uppl. í s.
896 6614.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
þú færð líka allt sem
þig vantar á
Hafberg segir að vistvænt grænmeti hafi ekki verið auðveld söluvara fyrir 25 árum.