Fréttablaðið - 29.07.2004, Blaðsíða 6
6 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
Atlantshafsbandalagið:
Togstreita vegna Íraks
BRUSSEL, AP Togstreita hefur
myndast innan Atlantshafs-
bandalagsins vegna aðkomu þess
að uppbyggingarstarfi í Írak.
Jaap de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri NATO, fundaði í
gær með nokkrum aðilum til að
leysa málið og hefur auk þess af-
lýst árlegu hléi á störfum banda-
lagsins í ágúst. Hann vonast til
að málið verði leitt til lykta ekki
seinna en á mánudaginn næst-
komandi.
Fyrr í sumar samþykkti
bandalagið að taka að sér þjálfun
íraskra hermanna. Frakkar
leggjast hins vegar algjörlega
gegn því að þjálfunin fari fram
innan landamæra Íraks og segja
það myndi draga úr trúverðug-
leika og fullveldi írösku stjórnar-
innar.
Jacques Chirac hefur lagt til
að annaðhvort fari þjálfunin
fram í öðru landi eða að aðildar-
ríki NATO taki að sér þjálfunina
í eigin nafni en ekki undir for-
merkjum NATO. George Bush
Bandaríkjaforseta er hins vegar
mikið í mun að sýna fram á víð-
tækan alþjóðlegan stuðning við
Íraksmálið og vill því að NATO
taki að sér þjálfun hermanna í
Írak undir eigin formerkjum. ■
Stærsta hlutafjárútboð
Íslands hefst í dag
Yfir 36 þúsund hluthafar KB banka munu að öllum líkindum kaupa hlut í
KB banka fyrir 40 milljarða króna. Bankinn hefur heimild til þess að gefa út hlutafé
fyrir annað eins til að fjármagna frekari vöxt.
VIÐSKIPTI Sala á hlutafé fyrir 40
milljarða í KB banka hefst í dag.
Þetta er langstærsta hlutafjár-
útboð á íslenskum markaði frá
upphafi.
Yfir 36 þúsund hluthafar sem
áttu hlut í í KB banka þann 5. júlí
hafa forkaupsrétt að hlutum í
bankanum. Gengið í útboðinu er
360 krónur á hlut, en gengi bank-
ans á markaði
hefur verið á milli
fimmtán og tutt-
ugu prósent
hærra á markaði.
Þetta þýðir í raun
að bréfin eru seld
með afslætti mið-
að við mat markaðarins og hlut-
hafar fá samstundis góða ávöxtun
á kaup haldist gengið óbreytt.
Ráðgjöf fjármálafyrirtækja til
viðskiptavina er sú að hluthafar
eigi að taka þátt í útboðinu.
Miðað við þetta verður að telj-
ast líklegt að forkaupsrétthafar
kaupi allt sem er í boði í útboðinu.
„Við erum tiltölulega bjartsýn á út-
boðið,“ segir Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður KB banka.
Hlutafjáraukningin er til þess að
fjármagna kaupin á danska FIH-
bankanum sem KB banki tryggði
sér kaup á fyrir skemmstu. Þá ligg-
ur fyrir heimild til að auka hlutafé
um 40 milljarða að markaðsvirði í
viðbót. Hluthafar hafa afsalað sér
forkaupsrétti að þeim hluta.
KB banki á fimmtungshlut í
breska bankanum Singer and
Friedlander. Bankinn er metinn á
um 50 milljarða króna. Sigurður
verst allra frétta af því hvort yfir-
taka sé í farvatninu. Á markaðn-
um er hún talinn markmið bank-
ans.
KB banki er skráður í sænsku
kauphöllinni. Lítill hluti hlutafjár
bankans er á sænska markaðnum.
Umræða um bankann er mun já-
kvæðari í Svíþjóð en hún var í
upphafi og hugsanlegt að tæki-
færi kunni að myndast á að auka
fjölda hluta á sænska markaðn-
um. Sigurður gefur ekkert út á
framhaldið. „Viðhorfið til bank-
ans í Svíþjóð er ágætt í dag. Það
er margbúið að sannast að um-
fjöllun um bankann í Svíþjóð á
sínum tíma var af annarlegum
hvötum.“
Þegar útboðið hefst munu allar
nýjustu upplýsingar um rekstur
bankans liggja fyrir því uppgjör
fyrir fyrstu sex mánuði ársins
verður birt í dag.
haflidi@frettabladid.is
Verslunarmannahelgin:
Suðlægar
áttir
VEÐRIÐ Veðurstofan heldur sig við
fyrri spá um veðrið yfir verslun-
armannahelgina. Veðrið verður
best á norðan- og austanverðu
landinu.
Gert er ráð fyrir suðlægri átt
á föstudag, með rigningu eða
súld sunnan- og vestanlands, en
annars staðar skýjuðu með köfl-
um og þurrviðri. Á laugardag og
sunnudag verður svipað veður
um land allt, rigning eða súld
fyrir sunnan en þurrt að kalla
fyrir norðan. Á mánudag verða
suðlægar áttir enn ríkjandi, milt
og víða rigning eða súld með
köflum. ■
,,Við erum
tiltölulega
bjarstýn á
útboðið.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 71,93 1,11%
Sterlingspund 130,75 -0,22%
Dönsk króna 11,64 -0,12%
Evra 86,51 -0,13%
Gengisvísitala krónu 121,10 0,04%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
-HLUTABRÉF
Fjöldi viðskipta 249
Velta 1.641 milljónir
ICEX-15 3.097 1,02%
MESTU VIÐSKIPTIN
Landsbanki Íslands hf. 775.153
Össur hf. 277.328
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 264.871
MESTA HÆKKUN
Össur hf. 3,45%
Íslandsbanki hf. 3,33%
Landsbanki Íslands hf. 2,86%
MESTA LÆKKUN
Hlutabréfsj. Búnaðarbankans -1,40%
Bakkavör Group hf. -0,78%
Actavis Group hf. -0,69%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.027,8 -0,6%
Nasdaq* 1.837,8 -1,7%
FTSE 4.356,2 0,7%
DAX 3.807,2 -0,2%
NIKKEI 11.204,4 1.57%
S&P* 1.085,0 -0,9%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
VEISTU SVARIÐ?
1Vart hefur orðið við froðu meðframElliðaánum. Hvað er þar á ferð?
2Fyrir hvað standa samtökin semnefna sig V-daginn?
3Hvað heitir næsthæsta fjall heims?
Svörin eru á bls. 34
MUN SELJAST UPP
Miðað við ráðgjöf sérfræðinga er nær öruggt að forkaupsrétthafar í útboði KB banka kaupi upp allt hlutafé sem er í boði í stærsta hluta-
fjárútboði á íslenskum markaði. Stjórnendur KB banka, þeir Sigurður Einarsson stjórnarformaður og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri,
munu nýta féð til kaupa á danska bankanum FIH. Fleiri landvinningar eru í farvatninu.
JAAP DE HOOP SCHEFFER
Framkvæmdastjóri NATO vonast til að
botn verði sleginn í málið á mánudag.
■ VIÐSKIPTI
SMÁRALIND TAPAR Tap Smáralind-
ar ehf. fyrstu sex mánuði þessa
árs nam 188 milljónum króna, en
tap fyrir sama tíma í fyrra nam 71
milljón króna. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði nam
292 milljónum samanborið við 245
milljón krónur fyrir sama tímabil
í fyrra. Gert er ráð fyrir að tekjur
muni aukast á síðari hluta ársins.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
STÖÐVAÐUR Á 183 Lögreglan í
Reykjavík stöðvaði ökumann á
183 kíómetra hraða á Austur-
landsvegi í Kollafirði um stund-
arfjórðungi fyrir klukkan 10 í
gærmorgun. Ökumaður bílsins
var karlmaður á fertugsaldri.