Fréttablaðið - 29.07.2004, Blaðsíða 10
29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
ÍRAK, AP Tæplega sjötíu fórust og
fjörutíu slösuðust í sjálfsmorð-
sprengjuárás í borginni Baqouba í
Írak í gærmorgun. Árásin átti sér
stað fyrir utan lögreglustöð í miðbæ
Baqouba, þar sem skráningar fara
fram í hinar nýstofnuðu öryggis-
sveitir Íraka. Þeir sem féllu í árásin-
ni voru allir óbreyttir borgarar, að
sögn talsmanns bandaríska hersins.
Sprengingin var gífurlega öflug
en árásarmaðurinn ók bifreið hlað-
inni sprengiefni að lögreglustöðinni
þar sem hún sprakk í loft upp. Nær-
liggjandi verslanir gereyðilögðust
og bifreiðar á götunni tættust í
sundur. Sundurtætt lík lágu um allt
í blóðpollum á götunni innan um
brak og glerbrot.
Árásir andspyrnuafla í Írak
hafa verið tíðar í Baqouba en
árásin nú er sú mannskæðasta
þar frá innrás Bandaríkjamanna
og bandamanna þeirra fyrir
fimmtán mánuðum. Undanfarnar
vikur hafa árásirnar beinst í rík-
ari mæli að írösku öryggissveit-
unum og búast stjórnvöld í Írak
við því að slíkum árásum fari
fjölgandi. Öryggissveitirnar eru
taldar mun auðveldari skotmörk
en bandaríski heraflinn í landinu
og liggja því vel við höggi.
Þrátt fyrir ofbeldisölduna í
landinu síðustu mánuði og vikur,
þokast Írakar sífellt nær lýðræð-
islegum stjórnarháttum. Um
næstu helgi verður haldinn fund-
ur 1000 fulltrúa sem velja munu
þingmenn til setu í bráðabirgða-
þingi landsins. Hersveitir Banda-
ríkjamanna munu ásamt öryggis-
sveitum Íraka standa vörð um
fundinn en mjög er óttast um að
andspyrnuöfl muni láta til skarar
skríða.
Sameinuðu þjóðirnar höfðu
lagt til að fundinum yrði frestað
þar til ástandið í landinu batnaði.
„Það er mikilvægara að kringum-
stæðurnar séu þannig að útkom-
an verði góð heldur en að halda
fundinn á réttum tíma,“ sagði
Marie Okabe talskona Sameinuðu
þjóðanna. Stjórnvöld í Írak hafa
hins vegar verið ófáanleg til að
fresta fundinum. ■
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
0
1
9
0
Uppáhald íslensku þjóðarinnar
Fjöldi uppskrifta á www.lambakjot.is
800 g lambakjöt, beinlaust og fitusnyrt
150 ml mild chilisósa (t.d. Heinz)
3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
½ tsk. karríduft
2 msk. olía
safi úr 1 límónu
nýmalaður pipar
salt
1 dós (250 ml) tómatmauk (purée)
Kjötið skorið í gúllasbita. Chilisósu, hvítlauk, karríi, olíu,
límónusafa og pipar blandað saman í skál, kjötið sett út í og
látið standa í kæli í a.m.k. 1 klst. Þá er kjötið tekið úr leginum
en hann geymdur. Kjötið saltað og þrætt upp á teina. Útigrill
eða grillið í ofninum hitað og kjötið grillað við góðan hita þar
til það hefur tekið góðan lit á öllum hliðum og er steikt í gegn.
Á meðan er kryddlögurinn settur í pott ásamt tómatmauki,
hitaður að suðu og látinn malla í 5–10 mínútur.
Bragðbætt með pipar og salti og borið
fram með kjötinu.
Njóttu þess að laða fram þinn innri snilling. Það er einfalt
mál með þessari gómsætu lambakjötsuppskrift. Það er
alltaf sérstök stemning sem fylgir því að borða
grillmat af pinna.
Lambakjöt
lofar alltaf
gó›u
NÝ
R BÆKLINGUR
Í
N
Æ
ST U V E R S L U
N
UPPSKRIFTIR
Chilikrydda›
lambakebab
BOSTON, AP Ræða Ron Reagans á
flokksþingi demókrata í fyrradag
hefur vakið mikla athygli. Ron er
sonur Ronalds Reagan, fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, sem
er afar dáður af repúblikönum
vestra. Tilefni ræðu Rons var að
mótmæla þeirri stefnu stjórnar
George W. Bush að banna stofn-
frumurannsóknir.
Í ræðu sinni hvatti hann kjós-
endur til að þess að láta afstöðu
frambjóðenda til stofnfrumu-
rannsókna ráða því hvernig þeir
greiða atkvæði í forsetakosning-
unum 2. nóvember næstkom-
andi. John Kerry, forsetafram-
bjóðandi demókrata, er fylgjandi
því að heimila stofnfrumurann-
sóknir og því er yfirlýsing Ron
Reagans í raun stuðningsyfirlýs-
ing við Kerry.
„Innan nokkurra mánuða
standa kjósendur frammi fyrir
vali. Ekki einungis milli tveggja
flokka eða tveggja frambjóð-
enda, heldur því að taka stór
skref áfram í þágu alls mann-
kyns. Valið stendur á milli fortíð-
ar og framtíðar, milli skynsemi
og fáfræði, milli raunverulegrar
samúðar og blákaldrar hug-
myndafræði,“ sagði sonur Reag-
ans heitins á flokksþingi
demókrata. ■
BER MIKIÐ NAFN
Ron Reagan, sonur Ronalds heitins Reag-
an, fyrrum Bandaríkjaforseta og repúblik-
ana, talaði fyrir stofnfrumurannsóknum á
flokksþingi demókrata í fyrradag. Ræða
hans var í raun stuðningsyfirlýsing við
John Kerry, forsetaframbjóðanda demó-
krata.
Raunveruleg samúð
eða bláköld hugmyndafræði
Ron Reagan talaði fyrir stofnfrumurannsóknum á
flokksþingi demókrata:
Blóðbað í Baqouba
Ein mannskæðasta sprengjuárás frá innrás Bandaríkjamanna í Írak
kostaði 68 óbreytta borgara lífið í borginni Baqouba í gær. Hryðju-
verkaógn vofir yfir fundi sem leggja á grunn að þjóðþingi Íraka.
BLÓÐBAÐ
Afleiðingar sprengjuárásarinnar í Baqouba voru hræðilegar. Sundurtætt lík lágu eins og hráviði um allt, í blóðpollum, innan um brak og
glerbrot úr nærliggjandi húsum.
PARÍS, AP Fjórir Frakkar sem verið
hafa meira en tvö ár í haldi Banda-
ríkjamanna í Guantanamoflóa á
Kúbu komu heim á þriðjudag. Við-
ræður um hvort þrír fangar í við-
bót fáist framseldir standa yfir
milli franskra og bandarískra
stjórnvalda að sögn Jacques Chirac
Frakklandsforseta.
Mennirnir fjórir eru flestir af
norður-afrískum uppruna en ólust
upp í Frakklandi. Þeir voru teknir
til fanga í herferð Bandaríkja-
manna til þess að komast fyrir
stjórn talibana í Afganistan. Að-
koma mannanna að hryðjuverka-
samtökum hefur verið til rann-
sóknar. Mennirnir fjórir verða
væntanlega leiddir fyrir franskan
dómstól.
Chirac sagði framsalið ávöxt
langtímaviðræðna við bandarísk
stjórnvöld. Búist hefur verið við
að einhverjum hinna sjö frönsku
fanga í Guantanamo væri sleppt
eftir að tilkynnt var um viðræður
þjóðanna í síðasta mánuði.
Bandarísk stjórnvöld hafa
þurft að sitja undir þungri gagn-
rýni síðustu mánuði fyrir að hafa
hundruð grunaðra í haldi í Guant-
anamo án ákæra. Í kjölfar þess
segjast Bandaríkjamenn hafa
sleppt 134 föngum úr fangelsinu á
síðustu vikum. ■
Sjö Frakkar handteknir í Afganistan árið 2001:
Fjórum sleppt úr Guantanamo
VIÐ KOMUNA
Mikil öryggisgæsla var við komu fjögurra fanga í Guantanamo-fangelsinu til Frakklands.
m
yn
d/
AP
m
yn
d/
AP
m
yn
d/
AP