Fréttablaðið - 29.07.2004, Blaðsíða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 174 stk.
Keypt & selt 20 stk.
Þjónusta 45 stk.
Heilsa 7 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 14 stk.
Tómstundir & ferðir 17 stk.
Húsnæði 31 stk.
Atvinna 17 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Ítalskt skart
BLS. 5
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagurinn 29. júlí,
211. dagur ársins 2004.
Reykjavík 4.25 13.34 22.40
Akureyri 3.51 13.19 22.43
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Soffía Karlsdóttir söngkona hefur í
mörgu að snúast og er nýbúin að frum-
sýna kabarettsýningu á Kaffi Reykja-
vík sem heitir CooCoos Kabarett. Hún
sækir sér sálarró í eldhúsið sitt. „Ólífu-
græni eldhúskrókurinn minn er algjört
uppáhald og þar slær hjarta heimilisins.
Þar er ég með eldhúsborðið hennar
Árnýjar ömmu minnar úr búi hennar og
afa en borðið er sennilega frá 1950. Ég
veit ekki hvað það er en ég er hrifin af
því að hafa gamla hluti í kringum mig,
hluti sem hafa sögu. Ég á til dæmis
tvær gamlar Singer-saumavélar en ég
er sérstaklega hrifin af gömlum sauma-
vélum.“ Græni liturinn á eldhúsinu á
sér sínar skýringar: „Ég er hrifin af
grænum lit, mér finnst hann svo róandi,
ljúfur og afslappandi litur. Og passar
svo vel við augun í mér,“ segir Soffía og
hlær. „Ég hef gaman af því að elda og
við Kalli sonur minn bröllum margt inni
í eldhúsi. Stundum bökum við brauð eða
pitsur og þá er allt eldhúsið lagt undir
enda reynum við að hafa afslappaða
stemningu hjá okkur. Mér hefur tekist
að gera heimilið okkar hlýlegt og nota-
legt og þegar ég fæ fólk í heimsókn
endum við yfirleitt inni í eldhúsi. Ég bý
í Grafarvoginum og það virðist vera
lengra úr miðbænum og í Grafarvoginn
en þaðan og í bæinn. Ég hef stundum
ætlað að standa fyrir skipulögðum rútu-
ferðum til að koma fólki í heimsókn til
mín. En ég finn að eldhúsið mitt græna
er farið að segja til sín og fólki líður vel
heima hjá mér.“ Soffíu er fleira til lista
lagt en söngurinn og eldhúsið hefur
örvandi áhrif á sköpunargáfuna.“Ég
mála og stunda ýmsa listsköpun og yfir-
leitt alltaf inni í eldhúsi. Þessa dagana
er ég t.d. að semja texta fyrir plötu sem
kemur út fyrir jólin. Mig langar að
finna mitt eigið hjarta í textunum og vil
hafa plötuna svona rauðvíns- og kerta-
plötu.“ Án efa mun heyrast bergmál úr
eldhúsinu græna á plötunni.
brynhildurb@frettabladid.is
Soffía Karlsdóttir söngkona:
Sækir orku í eld-
húsið ólífugræna
tiska@frettabladid.is
Kylie Minouge er
ekki aðeins með
flottasta rassinn í
bransanum heldur er
hún líka með flottustu
leggina, ef marka má
nýja skoðanakönnun.
Þó Kylie sé ekki há í
loftinu þá náði hún að
mala Cameron Diaz,
sem var í öðru sæti,
og Jennifer Ellison
sem var í því þriðja.
Aðrir sem lentu ofarlega
voru Anna Kournikova,
Nicole Kidman, Kate
Moss og Naomi
Campell. David Beck-
ham var efstur af
strákunum. Könnunin var gerð af
Gilette sem er frægast fyrir sína
hárbeittu rakvélar.
Vefsíðan bagborroworsteal.com
hefur getið sér gott orð vestanhafs
síðan hún opnaði í apríl á þessu
ári. Á þessari síðu geta konur sem
ekki hafa mikið á milli handanna
en vilja samt tolla í tískunni leigt
sér töskur af ýmsum stærðum og
gerðum. Hægt er að leigja tösk-
urnar í mánuð í senn og er verðið
allt frá fimmtán hundruð krónum
og uppí sjö þúsund krónur, allt
eftir gæðum töskunnar. Á síðunni
er hægt að finna töskur eftir suma
frægustu hönnuði heims eins og
Vivienne Westwood, Gucci og
Donnu Karan. Nýjar kannanir sýna
að konur í Bretlandi eyða að
meðaltali um þrjátíu þúsund
krónum í töskur og því er þetta
kærkomin lausn fyrir þær.
Drapers tískutímaritið sem af
flestum er talin Biblía tískuiðnað-
arins, hefur átt þátt í því að verð-
bréf hjá fata-
framleiðand-
anum French
Connection
hafa lækkað.
Verðbréf hjá fram-
leiðandanum
lækkuðu um átta
prósent á dögun-
um og búist er
við að þau lækki enn meira. Dra-
pers hefur talað mjög illa um
FCUK-línuna hjá French Connect-
ion og lýsir henni sem þreyttri og
asnalegri. FCUK hefur verið mjög
vinsæl lína árum saman. Margir
kannast eflaust við FCUK slagorð-
ið á bolum frá French Connect-
ion.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR HEIMILIÐ
Útsala á garðhúsgögnum. Alvöru garð-
húsgögn. Mikið úrval. Viðarkó Dalveg
28, Kópavogi Sími 517 8509.
Til sölu. Fjord 725SE í toppstandi. Ný
vél V.P. dísel 260 hp. Wc, eldavél, ís-
skápur, svefnpl fyrir 4. Vel búinn tækj-
um og góður vagn. Verð 5 millj. Uppl. í
s. 893 6109.
Námskeið til pungaprófs/30 rúml.
skipstjórnarréttinda. 10-26 ágúst,
kennsla kl. 9-16 alla daga nema
sunnud., ekki missa af þessu nám-
skeiði. Siglingarskólinn s. 898 0599 &
588 3092.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
þú færð líka allt sem
þig vantar á
Soffía hefur mikið dálæti á gömlum saumavélum.