Fréttablaðið - 29.07.2004, Side 25
Íris Eggertsdóttir, hönnuður,
kann afskaplega vel við sig í
borðstofunni sinni. „Uppáhalds-
staðurinn minn á heimilinu mínu
er borðstofan okkar sem er eld-
hús líka og í raun hefur okkur
tekist að gera nokkurskonar al-
rými úr henni. Hér sitjum við og
lesum, borðum, spjöllum og
skemmtum gestum og gerum
allt sem við þurfum að gera. Ég
er myndlistarmaður og hönnuð-
ur með og þarna sit ég og fletti
blöðum og skoða í tölvuna, spjal-
la við fólk og vinn hugmynda-
vinnuna. Svo er framkvæmdin í
næsta herbergi. Ég hanna boli,
armbönd, pils, skyrtur og ýmis-
legt annað en er samt fyrst og
fremst myndlistarmaður. Mér
finnst hugmyndavinnan samt
alltaf skemmtilegust. Ég er að
vinna að sýningu núna sem verð-
ur sett upp bráðlega og hef tvö
af verkunum mínum beint fyrir
framan mig þar sem ég sit hérna
í horninu mínu.“
En hvað er það besta við borð-
stofuhornið? „Það sem ég er
ánægðust með er að ég sé beint
út um gluggann út á sjó. Mér
finnst hafið svo stórkostlegt og
útsýnið hjálpar mér að tæma
hugann svo ég geti opnað fyrir
sköpunargáfuna. Ég læt hafið
hreinsa til í höfðinu á mér og búa
til pláss handa nýjum hugmynd-
um. Ég vinn mikið í textíl og
endurvinn gömul efni og þar
sem ég sé líka út á Hverfisgötu
úr horninu mínu er það kannski
hún sem kallar fram í mér áhug-
ann á þeim. Hverfisgatan er svo
skemmtilega retró,“ segir Íris
og er hæstánægð með gluggann
sinn. ■
7FIMMTUDAGUR 29. júlí 2004
Sparisjóðurinn er í sumarskapi og býður þér að taka þátt í léttum leik
Eina sem þú þarft að gera er að fara á vefsíðu okkar www.spar.is eða
koma við á næsta þjónustustað og fylla út svarseðil og þú gætir unnið
ferð til sólarlanda fyrir tvo – þér að kostnaðarlausu.
Viltu vinna ferð til sólarlanda?
...og það fyrir tvo!
Vertu með í sumar!
Ánægðustu viðskiptavinirnir
Íris Eggertsdóttir hönnuður:
Stelpan sem starir á hafið
Íris Eggertsdóttir, myndlistarmaður
og hönnuður, horfir út á hafið til að
tæma hugann.
Griðarstaður
flestra
Rúmið er eitthvað sem við fæst
komumst af án og því er mikilvægt að
halda því hreinu og fínu. Snúðu sæng-
inni þinni við á hverjum morgni og
búðu aftur um
rúmið þegar þú
kemur heim á
kvöldin. Þvoðu
sængurföt einu
sinni í viku á
háum hita og
skiptu um kodda að minnsta kosti á
sex mánaða fresti. Viðraðu dýnuna þína
einu sinni í mánuði og ryksugaðu hana
vel. Þannig er rúmið þitt alltaf í góðu
lagi og svefninn verður betri. ■
Að hreinsa silfur
Það getur verið þrautin þyngri að
hreinsa silfur sem mikið er fallið á. Hér
kemur húsráð sem hefur reynst mörg-
um ágætlega í að flikka upp á silfur-
gripi sem muna sinn fífil fegurri. Setjið
um 10 cm lengju af álfilmu í plastfötu
og hellið yfir
tveimur lítrum af
soðnu vatni
(köldu vatni, ekki
hitaveituvatni).
Hellið því næst
einum bolla af
bökunarsóda í vatnið (ef sódinn er ný-
legur ætti hann að verða dálítið froðu-
kenndur á yfirborðinu). Dýfið silfrinu
ofan í blönduna og látið sitja þar í 30
mínútur. Að þeim tíma liðnum er það
tekið upp úr, skolað og strokið yfir það
með hreinum klút. ■
[ GÓÐ RÁÐ ]
FULLKOMIN
BAÐHERBERGIS-
LÝSING
* Njóttu dagsljóssins til hins
ýtrasta. Taktu niður gluggatjöld
og annað sem skyggir á dags-
birtuna. Ef þér finnst eins og
einhver geti séð inn til þín þá
getur þú sett filmu í gluggann.
* Ef þú ert bara með eitt ljós á
baðherberginu þá er alls ekki
óvitlaust að setja dimmara á
það.
* Settu fullt af litlum ljósum með
lágan straum í loftið. Þannig
baðar ljósið veggina.
* Settu fullt af ljósaperum í kring-
um spegilinn á baðherberginu.
Þær gefa jafna birtu alla hring-
inn.
* Hafðu mismunandi rofa fyrir
hvert ljós svo auðvelt sé að
breyta stemningunni. En slökktu
samt á öllum ljósum þegar þú
ferð í bað og kveiktu á kertum í
staðinn.
* Reyndu að hafa lýsingu sem
þægilegasta fyrst á morgnana
þannig að þú farir ekki
pirruð/aður í vinnuna. Síðan er
gott að hafa sterka lýsingu þegar
þarf að plokka óæskileg hár og
mála sig fyrir kvöld í bænum.