Fréttablaðið - 29.07.2004, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 29. júlí 2004 23
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Körfuknattleikskonan Hildur Sig-urðardóttir, sem hefur undan-
farin tvö ár verið val-
inn besti leikmaður
1. deildar kvenna,
hefur gert samning
við sænska liðið
Jamtland Basket.
Sænska liðið hafn-
aði í níunda sæti
sænsku deildarinnar
á síðasta tímabili og ætlar sér stóra
hluti á því næsta. Hildur skilur eftir
sig stórt skarð hjá KR-stúlkum enda
yfirburðamaður í liðinu á síðasta
tímabili.
Spánverjinn Fernando Hierro skrif-aði í gær undir eins árs samning
við enska úrvals-
deildarliðið Bolton.
Hierro, sem er 36
ára og lék lengst af
ferilsins með Real
Madrid, spilaði í
Katar í fyrra og þarf
að fá sig lausan
þaðan áður en
hann getur byrjað að spila með
Bolton. Sam Allardyce, knattspyrnu-
stjóri Bolton, var himinlifandi með
að fá Hierro í sínar raðir og sagðist
ekki vafa um að hann yrði stjarna í
ensku úrvalsdeildinni.
Íslenski landsliðsmaðurinn ArnarGrétarsson var á skotskónum þeg-
ar belgíska liðið Lokeren gerði jafn-
tefli, 2-2, gegn
Evrópumeisturum
Porto í æfingaleik á
þriðjudagskvöldið.
Arnar skoraði fyrsta
mark leiksins úr
vítaspyrnu strax á 6.
mínútu en hann lék
allan leikinn ásamt
Rúnari Kristinssyni og Arnari Þór
Viðarssyni. Marel Baldvinsson kom
inn á sem varamaður á 60. mínútu.
Þjóðverjinn Lothar Matthaus, semstýrir ungverska liðinu í fótbolta,
er ekki sáttur við að Jürgen Klins-
mann hafi verið ráðinn landsliðs-
þjálfari Þjóðverja á dögunum. Matt-
haus sagði í viðtali
við þýska blaðið
Bild í gær að hann
hefði haft áhuga á
starfinu en skildi
ekki af hverju
Klinsmann, sem
hefur enga reynslu
af þjálfun, hafi verið
ráðinn. „Þetta er samsæri forseta
sambandsins sem er frá Stuttgart.
Hann velur sína menn í réttu störfin
– annað getur það ekki verið,“ sagði
Matthaus en Klinsmann lék einmitt
með Stuttgart á sama tíma og Ger-
hard Mayer-Vorfelder, forseti þýska
sambandsins, var forseti hjá félaginu.
Franski þjálfarinn Michael Hidalgo,sem stýrði Frökkum til sigurs á
Evrópumótinu í knattspyrnu árið
1984, segir að Zinedine Zidane ætti
að hætta að spila
með franska lands-
liðinu. „Það er kom-
inn tími til að fá nýtt
blóð í franska liðið
en eina vandamálið
er að það verður
ekki auðvelt að
finna leikmenn
sem eru eins góðir og þessir sem eru
að hætta núna,“ sagði Hidalgo.
Reykjavík, Klettagör›um 12, sími 575 0000 - Akureyri · Draupnisgötu 2 , sími 462 2360 - Hafnarfir›i, Strandgötu 75, sími 565 2965
Fáanlegur í
verslunum
Sindra.
N†R DEWALT
BÆKLINGUR!
FÓTBOLTI FH-ingar taka á móti
velska liðinu Haverfordwest í
Kaplakrika í kvöld klukkan 19.15,
í forkeppni Evrópukeppni
félagsliða. Fyrri leikurinn ytra,
endaði 0-1, og staða hafnfirsku
hetjanna því góð.
FH-ingar hafa verið á mikilli
siglingu í Landsbankadeildinni að
undanförnu og eru nú í topp-
sætinu, þremur stigum á undan
Fylkismönnum.
Fréttablaðið náði tali af Heimi
Guðjónssyni, fyrirliða FH, í gær
og spurði hann úti í möguleika
FH:
„Við eigum ágæta möguleika á
að komast áfram í næstu umferð
og þetta er undir okkur sjálfum
komið. Þeir verða væntanlega öllu
sterkari en í fyrri leiknum því að
tímabilið er ekki hafið hjá þeim en
nú hafa þeir haft tvær vikur til að
koma sér í betra form. Þetta lið er
mikið baráttulið þannig að við
verðum að vera á tánum. Þeir láta
finna vel fyrir sér en eru þó ekki
grófir. Þeir spila týpískan enskan
bolta, kýla fram og eru góðir loft-
inu. Við höldum auðvitað áfram að
gera það sem við höfum verið að
gera enda sé ég enga ástæðu til að
breyta því.“
Saga FH er ekki mörkuð af
sigrum í Evrópukeppni félagsliða
en félagið hefur þrisvar tekið
þátt, 1990, 1994 og 1995, án þess
að komast áfram úr fyrstu um-
ferð. Ætlunin er að breyta því:
„Við erum staðráðnir í því að
komast áfram því Evrópukeppnin
er bónus fyrir félögin og mjög já-
kvætt fyrir leikmenn að fá að
takast á við aðra andstæðinga en
þá hérna heima. Takist það mun-
um við lenda á móti félögum frá
Noregi, Danmörku, Svíþjóð eða
Skotlandi og verður það að teljast
jákvætt, bæði frá knattspyrnu-
legu sjónarmiði og fjárhagslegu,“
segir Heimir.
Í Kaplakrika er spilaður
skemmtilegur og árangursríkur
fótbolti og þar er heimili líf-
legustu stuðningsmannanna. Er
eitthvað mál fyrir Heimi að halda
sínum mönnum á jörðinni?
„Nei, það er það ekki. Mótið er
bara rétt rúmlega hálfnað og við
eigum enn eftir að komast áfram í
Evrópukeppninni og engin hætta
á að við förum að ofmetnast eitt-
hvað,“ sagði Heimir Guðjónsson,
að lokum. ■
ALLAN BORGVARDT
Sést hér í leik gegn KA á dögunum. Hann
skoraði sigurmark FH-inga í fyrri leiknum
gegn Haverfordwest.
FH mætir velska liðinu Haverfordwest í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í Kaplakrika í kvöld:
Staðráðnir í að komast áfram
Skagamenn mæta Tallin :
Þurfa að sýna
sitt rétta andlit
FÓTBOLTI ÍA mætir eistneska liðinu
TVMK Tallin í forkeppni UEFA-
bikarsins ytra í dag. Skagamenn
báru sigur úr býtum í fyrri leikn-
um, 4-2, sem fram fór á Akranesi
og staða þeirra því ágæt. Að vísu
spila þeir án framherjans Stefáns
Þórðarsonar sem rekinn var af
velli í fyrri leiknum og því í banni.
Stefán hefur verið mikilvægur
hlekkur í Skagaliðinu í sumar og
klárt að liðið mun sakna hans í
leiknum í dag sem hefst kl. 15 í
Tallin.
Það var Færeyingurinn Julian
Johnson sem skoraði fjórða og
síðasta markið þegar komnar
voru þrjár mínútur fram yfir
venjulegan leiktíma og það mark
gæti reynst Skagamönnum dýr-
mætt.
Ekki er þó auðvelt að rýna í
möguleika þeirra þrátt fyrir
tveggja marka forskot. Lið ÍA
hefur verið afar sveiflukennt í
sumar – liðið spilar stundum mjög
vel en getur dottið mjög langt nið-
ur og besta dæmið um það er bik-
artapið gegn 1. deildarliði HK,
fyrr í sumar.
Nái liðið hins vegar að sýna sitt
rétta andlit í Eistlandi ætti það að
komast áfram enda eru Skaga-
menn með gífurlega reynslu af
Evrópuleikjum og eru oftast best-
ir í stóru leikjunum. ■