Fréttablaðið - 29.07.2004, Blaðsíða 38
„Cause what goes around, comes around.
What goes up, must come down.
Now who’s cryin, desirin to come back to me?“
- Alicia Keys trúir á örlögin samkvæmt texta lagsins Karma,
af annarri plötu hennar The Diary Of...
26 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
Í spilaranum hjá ritstjórninni
Secret Machines: Now Here is Nowhere, Gísli: How About That?, The Album
Leaf: In a Safe Place, Alicia Keys: The Dairy Of..., Hilmar Garðarsson: Please
to Leave You, Four Tet: My Angel Rocks Back and Forth EP og The Hives:
Tyrannosaurus Hives.
[ TOPP 30 ]
MEST SÓTTU LÖGIN Á TÓNLIST.IS
VIKA 30
„ÁST“
Ragnheiður Gröndal
„Í NÆTURHÚMI“
Margrét Eir
„FALLEGUR DAGUR“
Bubbi og Bang Gang
„EINHVERS STAÐAR EINHVE...“
Nylon
„AÐ EILÍFU“
Sverrir Bergmann
„FRÆG!“
Esther Talía
„SUNNUDAGSMORGUNN“
Jón Ólafsson
„FERRARI“
Ragnheiður Gröndal og Salsasveitin
„ÞÚ BÍÐUR (ALLAVEGANA) ...“
Ragnheiður Gröndal
„SAIL ON“
Regína Ósk
„STUN GUN“
Quarashi
„SIGURLAGIГ
Sverrir Stormsker og Sigurmolarnir
„GET THE PARTY STARTED“
Pink
„VÍSUR VATNSENDA-RÓSU“
Ragnheiður Gröndal
„FER Í FÍLING“
Jón Jósep Snæbjörnsson
„THIS LOVE“
Maroon 5
„I THINK OF ANGELS“
Páll Rósinkranz
„LÍFIГ
Írafár
„LÖG UNGA FÓLSINS“
Nylon
„PERFECT DAY“
Lou Reed
„GLEÐITÍMAR“
Kalli Bjarni
„KYSSTU MIG“
Í svörtum fötum
„SKÁL“
Stuðmenn
„HEF ÉG SAGT ÞAÐ HÁTT“
Friðrik Ómar
„LANGT FRAM Á NÓTT (ÁST...“
Á móti sól
„LEYNDARMÁL FRÆGÐA...“
Papar
„VONT EN ÞAÐ VENST“
Súkkat
„FÆ EKKI FRIГ
Sveppi
„ÁST“
Jón Sigurðsson
„DON’T KNOW WHY“
Norah Jones
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Það er mjög erfitt að ná plötu-
snúðnum Sasha í símann. Daginn
eftir að viðtalið átti að fara fram
hringir umboðsmaður hans í mig
og biðst afsökunar. Segist loksins
hafa náð í skottið á honum sjálfur
og að hann hafi lofað að vera við
símann næst þegar ég hringi.
Hann hafði sem sagt passað
vandlega upp á það að svara ekki
þegar ég hafði hringt daginn
áður. Sama hversu oft ég læt
hringja til enda.
Nú segist kappinn reiðubúinn
til þess að gefa mér hluta af tíma
sínum, en svarar þó ekki fyrr en
við fjórðu tilraun. Og þá er hann
á þeytingi einhvers staðar í
Bandaríkjunum að reyna að ná
lest.
Það er frekar erfitt að ná þér í
símann.
„Fyrirgefðu, ég hef verið að
ferðast og sofa of mikið,“ segir
Sasha eftir stuttan hlátur. „Líkams-
klukkan mín er í skralli. Ég er vak-
andi allar nætur og sofandi alla
daga.“
Mjög upptekinn maður, sem
sagt.
„Það er alveg óhætt að segja
það.“
Algjört klúður
Það er líklegast ástæðan fyrir því
að þú misstir af flugvélinni núna
síðast?
„Nei, það var bara slys. Venju-
lega tekur það mest um 25 mínútur
að fara frá húsinu mínu upp á flug-
völl. Á slæmum degi, kannski um
hálftíma. Þarna tók það mig um tvo
klukkutíma að komast upp á Heat-
hrow. Þetta var síðasta flugið og
það var ekkert sem ég gat gert.
Þetta var algjört klúður. Síðast
þegar ég var þarna skemmti ég
mér konunglega og ég hlakkaði til
að fara aftur í Bláa lónið.“
Nýjar vinnuaðferðir
Sasha gaf nýverið út plötuna Invol-
ver þar sem hann endurhljóðbland-
ar m.a. lög eftir U.N.K.L.E., Felix
da Housecat, Ulrich Schnauss og
Spooky. Á plötunni tileinkar hann
sér nýjar vinnuaðferðir.
„Ég held að þetta sé í fyrsta
skiptið sem ég næ að blanda saman
plötusnúðatækni minni við hljóð-
verstæknina. Ég hafði það bak við
eyrun allan tíma hvernig þetta
myndi hljóma á plötunni. Á nýju
plötunni notum við ekki Pro-tools
lengur. Ég er orðin hrifnari af
nýjum forritum. Pro-tools er gott í
upptökur en ekki til þess að semja
tónlist á.“
Hefur plötusnúðasettið þitt
breyst mikið frá því að þú komst
hingað síðast?
„Já, það hefur komið út fullt af
góðri tónlist á þessu ári og ég reyni
að endurnýja plöturekkann á
tveggja vikna fresti. Ég hef mjög
gaman af því að plötusnúðast þessa
dagana. Mér finnst það spennandi.
Ég er meira í því að blanda saman
hljóðum núna, en að viðhalda einni
sérstakri stefnu út kvöldið.“
Vill skilja eftir góða minningu
Núna, þegar þú ert orðinn þetta
þekktur plötusnúður, finnst þér það
vera skylda þín að koma tónlist á
framfæri sem þú ert að fíla?
„Algjörlega. Fyrir mér er það í
fyrsta lagi mikilvægt að allir séu
að skemmta sér, svo kemur það
hlutverk að fræða lýðinn og kynna
fyrir þeim nýja tónlist. Þá reynir
maður að spila þá tónlist sem er
ferskust hverju sinni. Aðalatriðið
er að skilja eftir góða minningu
hjá fólki. Ef ég er á tónleikaferða-
lagi er stundum erfitt að nálgast
nýja tónlist. Þá bið ég fólk um að
setja lög á ftp-netþjóninn minn.
Þannig get ég verið með splúnku-
ný lög.“
Nú? Notar þú þá ekki bara
gamla vínylinn?
„Nei, ég stefni á að hætta að nota
hann alveg og verða bara með tölvu
í framtíðinni. Þá get ég notað þau
forrit sem ég nota í hljóðverinu og
gert hluti á staðnum. Ég ætlaði að
vera byrjaður á þessu í sumar. Það
tekur bara svo langan tíma fyrir
mig að hljóðrita allt plötusafnið mitt
og færa það yfir í stafrænt form.
Þannig myndi þetta vera miklu
gagnvirkara sett, þar sem ég gæti
gert fleiri hluti. Ég er mjög spennt-
ur fyrir þessu,“ segir Sasha að
lokum og er þotinn upp í næstu lest.
Í Nasa á sunnudag
Sasha heldur uppi stuðinu fyrir
bæjarrotturnar, sem treystu sér
ekki út úr bænum, á Nasa á sunnu-
dag á vegum útvarpsþáttarins
Partyzone. Í þetta skiptið lofar
hann að mæta.
Ásamt Sasha spilar „The Don“
Grétar G. Forsala aðgöngumiða er í
Þrumunni en einungis verða seldir
900 miðar. Miðaverð er 1.500 kr. í
forsölu en 1.900 kr. við hurð.
biggi@frettabladid.is
Hættir að nota vinylplötur
SASHA Það hljóta að teljast tíðindi að þekktasti plötusnúður heims, stefnir á að hætta að nota vínylplötur og spila einungis með tölvur í framtíðinni.
Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Ragnheiður
er sannkölluð netdrottning, á fjórum
stöðum á topp 20 á Tónlist.is.