Fréttablaðið - 29.07.2004, Síða 41
29FIMMTUDAGUR 29. júlí 2004
Gengið í Heiðmörk í kvöld
Einn stór
eldingarvari í Úlpu
Skógræktarfélag Reykjavíkur
hefur staðið fyrir göngum á
fimmtudagskvöldum í sumar og í
kvöld er stefnt á Heiðmörk.
Stefnt er að því að ganga um
skóginn þar en skógrækt á
Íslandi er nú ríflega aldar langa
sögu.
Ólafur Erling Ólafsson, skóg-
arvörður í Heiðmörk, er kynnir í
göngunni en hann fræðir göngu-
garpa um hvað hefur verið gert í
grisjunarstarfi í Heiðmörk og
sýnir tæki og tól sem koma við
sögu í skógarnýtingu og grisjun.
Mæting er á bílastæði við grill-
ið í Vífilsstaðahlíð og hefst gang-
an klukkan 20.00 og allir sem
vilja taka þátt í fróðlegri og hres-
sandi útivist eru velkomnir. ■
Hljómsveitin Úlpa hefur vakið
talsverða athygli að undanförnu
en kapparnir í hljómsveitinni
spila á tónleikum á Kaffi List í
kvöld. „Það verður kæld stemn-
ing hjá okkur,“ segir Magnús
Resnor einn af meðlimum hljóm-
sveitarinnar. „Við tyllum okkur
niður og verðum í rólegheitun-
um og aðeins minna rokkaðir en
vanalega.“
Úlpa hóf starfsemi sína fyrir
fjórum árum. „Við byrjuðum
árið 2000 og spiluðum fyrst á
Gauki á stöng áður en skemmti-
staðnum var breytt.“
Árið 2001 kom svo út platan
Mea Culpa. „Tónlistin sem við
spilum er svona framúrstefnu
popp/rokk tónlist og við höfum
alltaf fylgt svipaðri tónlistar-
stefnu. En hljómsveitin sjálf er
orðin miklu betri en þegar við
byrjuðum og öll þróun er von-
andi í rétta átt,“ segir Magnús,
en Úlpa stefnir á að senda frá
sér nýja plötu í haust. „Við erum
að klára að taka upp plötuna
núna og á tónleikunum sem
framundan eru spilum við nýja
efnið í bland við gamalt.“
Úlpa kemur fram á Bar 11
annað kvöld. „Þá ætlum við að
halda Úlpupartí. Spila rokk og
ról og þeyta skífum bæði fyrir
og eftir tónleikana. Á sunnu-
dagskvöldið verðum við svo með
órafmagnaða tónleika á Prik-
inu,“ en Dj. 9sec hitar upp fyrir
Úlpu bæði á Kaffi List og Bar 11.
Úlpunafnið vísar ekki endi-
lega til fatnaðarins sem klæðir
af Íslendingum kuldann. „Upp-
haflega var þetta bara vinnu-
heiti en svo festist nafnið svo
vel við okkur. Í okkar huga er
þetta skammstöfun sem stendur
fyrir United lightning protect-
ion association og við lítum á
okkur sem einn stóran eldingar-
vara.“ ■
GÖNGUGARPAR
Skógræktarfélag Reykjavíkur stóð meðal annars fyrir göngu um Blikdal í Esjunni í sumar.
ÚLPA
Hefur ekkert með íslenskan fatnað að gera. Hljómsveitin verður á Kaffi List í kvöld.