Fréttablaðið - 29.07.2004, Page 45
FIMMTUDAGUR 29. júlí 2004
Rapparinn með hrjúfu röddina,
Ja Rule, hefur verið ákærður
fyrir líkamsárás. Kappinn
mætti nýverið til réttar í
Toronto í Kanada þar sem ákær-
an var lesin upp fyrir honum.
Rule, sem heitir réttu nafni
Jeffrey Atkins, gaf sig sjálfur
fram til lögreglunnar. Er hann
sakaður um að hafa tekið þátt í
slagsmálum á næturklúbbi í
Toronto þann fimmta júní. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ TÓNLIST
Ja Rule ákærður
JA RULE
Rapparinn Ja Rule ásamt leikkonunni
Lindu Thorson. Rule hefur verið ákærður
fyrir líkamsárás.
Leikkonan Kirsten Dunst átti ístuttu ástarsambandi við óþekkt-
an franskan leikara
síðast þegar hún var
stödd í París að kynna
Spider-Man 2. Þetta
gerðist nokkrum vik-
um eftir að hún og
leikarinn Jake Gyllen-
haal hættu að vera
par. Talsmenn hennar
segja þó að því sé lokið og nú sé
stúlkan laus og liðug.
Leikarinn Ewan McGregor greinir fráþví á heimasíðunni Ridernews.net
að hann hafi komist í hann krappann á
dögunum. Nú er
mótorhjólaleiðangri
hans um heiminn að
ljúka en hann datt
ofan í straumharða
og grugguga á í
Mongólíu. McGregor
var að fara yfir ána
þegar hann keyrði á
stein, undir vatnsyfirborðinu, og flaug
af hjólinu. Til allrar lukku náði kappinn
að slökkva á vélinni áður þannig að
hún fylltist ekki að vatni. Hann var svo
veiddur upp úr og hjólið reyndist í lagi.
Söngkonan Brandy er í felum fyrirfjölmiðlum eftir að barnsfaðir
hennar greindi frá því í útvarpsviðtali
að þau hefði aldrei gift sig, eins og
þau héldu fram fyrir
um tveimur árum síð-
an. Þau eru nú skilin
og ákvað þá maður-
inn að segja sannleik-
ann. Þetta þýðir að
Brandy hefur logið að
öllum í kringum sig,
fjölskyldu, aðdáend-
um og framleiðend-
um á MTV sem gerðu raunveruleika-
þátt um það þegar „hjónin“ eignuð-
ust sitt fyrsta barn. Brandy hefur ekki
neitað ásökunum en gaf út frá sér til-
kynningu þar sem hún sagðist vera
sár yfir orðaskiptum barnsföður síns.
Forsetaframbjóðandinn RalphNader reynir nú hvað hann getur til
þess að fá heimildargerðamanninn
Michael Moore í
megrun. Hann ótt-
ast að vaxandi
holdafar Moore
verði til þess að
hann missi trúverð-
ugleika sinn og því hefur hann reynt
að þrýsta á hann, en án árangurs.
Leikkonan Saffron Burrows, semeinhverjir muna eftir úr myndinni
Troy, meiddist í bílslysi við tökur á nýj-
ustu mynd sinni í
Nýja Sjálandi.
Burrows var lögð inn
á spítala eftir slysið
en var útskrifuð með
minniháttar meiðsl
eftir fáeinar klukku-
stundir. Hún getur
haldið áfram tökum á hryllingsmynd-
inni Perfect Creature eftir nokkurra
daga hvíld.
Leikarinn Joaquin Phoenix segistvera óhæfur til þess að leika
Johnny Cash. Hann tók að sér aðal-
hlutverkið í mynd
um ævi hans og seg-
ist hafa eytt síðustu
mánuðum í undir-
búningsvinnu. Samt
sem áður óttist hann
að fjölskylda kántrí-
kóngsins verði ekki
sátt við leik sinn í
myndinni. Hann þarf
að syngja í nokkrum atriðum mynd-
arinnar og það óttast hann sérstak-
lega þar sem hann segist vera slakur
söngvari. Sjálfur hefði Cash nú aldrei
komist áfram í Idol.