Fréttablaðið - 29.07.2004, Page 46
Hætt hefur verið við seinni tón-
leika Pink á Íslandi sem áttu að
fara fram í Laugardalshöll 11.
ágúst. Tónleikar 50 Cent, sem áttu
að fara fram í Egilshöll á sama
degi, hafa verið færðir þangað í
staðinn, enda orðið ljóst að plássið
þar hefði verið of mikið fyrir
rapparann til þess að fylla.
Mikið hefur verið rætt um þau
tíðindi að rapparinn 50 Cent og
Pink ætluðu að keppast um hylli
íslenskra áhorfenda á sama degi
og þótti flestum ótrúlegt að slíkt
myndi ganga upp. Nú er ljóst að
þeir sem standa
fyrir tón-
l e i k u n u m
hafa endur-
reik-
n a ð
d æ m i ð
og komist
að sömu
niðustöðu og
margir aðrir.
Upphaflegt plan bara gekk ekki
upp.
Að sögn komust tónleikahald-
arar að þeirri sameiginlegu niður-
stöðu að Ísland rúmi ekki tvenna
stóra tónleika sama dag. Því er
lítið annað hægt að gera en að
annar þeirra hætti við. Í þetta
sinn voru það síðari tónleika Pink
sem urðu að lúffa.
Þeir sem höfðu verslað sér
miða á seinni tónleika Pink þurfa
þó ekki að örvænta um að standa
uppi með ónýta miða, því þeir
geta nú notað þá sem inngöngu-
miða á fyrri tónleikana, sem
verða haldnir 10. ágúst, eins og
alltaf hefur staðið til. Enn eru ör-
fáir miðar eftir til sölu, bæði í
verslunum Skífunnar og á
vefsvæðinu midar.is.
Tónleikar 50 Cent
rúma nú aðeins 5.500
miða í stað 9.000
áður, því áætlað
hafði verið að
hafa sviðið fyrir
miðju Egilshallar
og því hefði adrei
verið hægt að
koma inn 18.000
manns eins og á
Metallicutónleika í
Egilshöllinni. Þegar er
búð að selja tæplega
4.000 miða á tónleika 50
Cent og því eitthvað af
miðum eftir handa
aðdáendum 50 Cent, eða
þeim sem höfðu áætlað að
vera á tónleikum með Pink
það kvöldið.
Þeir sem höfðu tryggt sér
miða inn á V.I.P. svæðið á tón-
leika 50 Cent munu hafa for-
gang upp í stúku í
Laugardalhöll, vilji þeir
sitja þar. Ekki verður
selt sérstaklega upp
í stúku af þeim
miðum sem eftir
eru. Þar sem þar er
takmarkað sæta-
framboð gildir sú
regla að þeir fá
sætin sem ná
þeim. V.I.P. miða-
hafar gætu því
þurft að mæta
snemma til að
tryggja sér slík
sæti.
Iceland Ex-
press verður
með sérstakt til-
boð á næstu tveim-
ur vikum og býður
miða á tónleika 50 Cent á
4.500 krónur í stæði. ■
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Þörungaslím.
Gegn ofbeldi á konum.
K-2.
Strákarnir okkar nefnist nýjasta
kvikmynd Róberts Douglas en
upptökur á henni hefjast strax
eftir verslunarmannahelgi. Mynd-
in fjallar um atvinnumann í fót-
bolta sem kemst að því að hann er
samkynheigður og kemur út úr
skápnum. Hann hefur fengið sig
fullsaddan af atvinnumennskunni
þar sem hann fær ekki að vera
hann sjálfur og kemst í samband
við fleiri homma sem saman
stofna eigið utandeildarlið. Sagan
segir einnig frá því hvernig fjöl-
skyldan tekur opinberun kyn-
hneigðar hans, barnsmóðurinni
sem eitt sinn var ungfrú Ísland en
nú er orðin drykkfelld og syni
hans sem ekki stendur sig í skól-
anum. Að sögn leikstjórans koma
hugmyndirnar úr hverdagsleik-
anum. „Ég hef gaman af því að
tækla raunveruleikann og sjá
húmorinn í honum. Það heillar
mig að geta séð húmorinn í að-
stæðunum án þess endilega að
gera grín. Þetta snýst ekki bara
um harmleik.“
Björn Hlynur Haraldsson fer
með aðalhlutverkið í myndinni en
hann hefur áður leikið í Vestur-
portsuppsetningunni á Rómeó og
Júlíu, Brim og fleiru. Meðal ann-
arra sem bregða fyrir í Strákun-
um okkar eru Helgi Björnsson,
Lilja Nótt, Maríus Sverrisson og
Felix Bergsson sem leikur for-
mann utandeildarinnar og dómara
en hann lék einnig formann hús-
félagsins í fyrstu mynd Róberts,
Íslenska draumnum.
Nú styttist óðfluga í upptökur
á myndinni sem unnið hefur verið
að í langan tíma. Til að hrista
saman hópinn hafa verið skipu-
lagðar fótboltaæfingar, tökulið
gegn leikurum, því myndin snýst
jú að hluta til um fótbolta. Leikur-
inn í síðustu viku var æsispenn-
andi og endaði 10-9, tökuliðinu í
hag. „Nú eru leikararnir svo
tapsárir að þeir mæta allir með
tölu í kvöld og reyna að bæta
þetta upp,“ segir leikstjórinn
áður en hann skellir sér á völlinn
í blóðugan bardaga við komandi
kvikmyndastjörnur. ■
BJÖRN HLYNUR OG
RÓBERT DOUGLAS
Tökulið og leikarar hita sig upp fyrir tökur á
Strákunum okkar og berjast hart á vellinum.
34 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
TÓNLIST
50 CENT OG PINK
■ Hætt hefur verið við seinni tónleika
Pink í Laugardalshöll þar sem 50 Cent
leikur í staðinn.
KVIKMYNDIR
STRÁKARNIR OKKAR
■ Upptökur hefjast eftir helgi.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Verslaðu hjá okkur fyrir
790.-
verð frá
flíspeysa-dömu
útileguna
í dag
Læknamistök
Þeim yfirsást gat
á hjarta barnsins
okkar
Simpson
Homer giftir
samkynhneigð pör
Sonur Sri saknar
mömmu Hatar
Hákon Eydal
AÐ MÍNU SKAPI
DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON PÍANÓLEIKARI
Dreifbýlistúttur og axlabönd
TÓNLISTIN Ég keypti spólu út í Búda-
pest með ungverskum gaur sem heitir
Igi Mulata. Þetta er mjög fyndin tónlist
með einhverjum permanett tenór í
havaískyrtu. Annars hef ég verið að
hlusta á Harvest-plötuna með Neil
Young sem er alveg geðveikt flott og er
með Trabant á Bessastöðum og Mistök
54 með kvartettinum Adanak í tækinu.
BÓKIN Er að lesa Da Vinci lykilinn og
var að byrja á Ódysseifskviðu, sem ég
varð mér úti um í kiljuformi.
BÍÓMYNDIN Ég fór í bíó í fyrsta skipti í
hálft ár um daginn og sá Eternal Sun-
shine of the Spotless Mind. Ég hafði
mjög gaman af Jim Carrey í myndinni
því hann var ekki með neitt panik.
Charlie Kaufman gerir fínar myndir en
nú bíð ég eftir nýjustu mynd Michaels
Moore, 9/11.
BORGIN Var að koma frá Búdapest sem
er alveg ótrúlega lifandi og mögnuð
borg. Þar er fjölskrúðugt mannlíf,
endalaust af mörkuðum og sígauna-
tónlistin hljómar alls staðar úti á götu.
Við fórum þar í eldgömul baðhús sem
litu út eins og gamlir kastalar og höfðu
að geyma bæði gufuböð og heita potta.
BÚÐIN Síðasta búðin sem ég fór í var
Olísbúðin á Siglufirði. Þar er hægt að fá
allt en ég keypti mér dreifbýlistúttur,
mjög flott axlabönd, sparibindi og
ullarsokka.
VERKEFNIÐ Er að undirbúa tónlist við
dansverk í sameiningu við trommarann
Helga Svavar Helgason fyrir Reykjavík
Dansfestival. Við Helgi erum líka að
fara að gefa út stuðpartíplötuna Drunk
is faster en eins og allir vita gerist allt
miklu hraðar þegar maður er fullur. Svo
er ég að fara að spila á Akureyri og Mý-
vatni um helgina með latíntrukkinum
Tómasi R. Einarssyni og ætla að frum-
flytja verk fyrir flygil/píanó og sleggju,
á trommusólóviðburði Lortsins sem
haldinn verður 6. og 7. ágúst í KlinK og
BanK gallerí.
Lárétt:
1 sleipa, 5 borða, 6 prófgráða, 7 sólguð,
8 vænting, 9 skilrúm, 10 tveir eins, 12
herská samtök, 13 eins um l, 15 á nótu,
16 sniðug, 18 skynsemi.
Lóðrétt:
1 eyðilegging, 2 fiskifæða, 3 tónn, 4 staður
á austurlandi, 6 standa boginn, 8 skamm!,
11 slæm, 14 blóm, 17 íþróttafélag.
Lausn:
Lárétt: 1hála,5eta,6ba,7ra,8von,9
vegg,10ii,12ira,13rlr, 15an,16klók,
18sans.
Lóðrétt: 1hervirki,2áta,3la,4langa-
nes,6bogra, 8vei,11ill,14rós,17ka.
Raunveruleikinn tæklaður
Pink út, 50 Cent inn
PINK
Hætt hefur
verið við seinni
tónleika Pink.
50 CENT
Tónleikar 50 Cent
hafa verið
færður úr
Egilshöll í
Laugardalshöll.