Fréttablaðið - 29.07.2004, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Ekki nauðga
Mér hefur alltaf fundist það segjasitt um andlegt ásigkomulag
mannsálarinnar að á hverju ári nú-
orðið er blásið til auglýsingaherferð-
ar í öllum miðlum þar sem ungir
karlmenn eru hvattir til þess að
nauðga ekki stelpum. Mér finnst
þetta alltaf jafn stórmerkilegt. Ekki
það að málefnið sé ekki þarft og að
auglýsingarnar séu ekki ágætar,
heldur er það bara hitt sem fær mig
til að klóra mér í höfðinu. Nefnilega
sú staðreynd að það þurfi virkilega
að reka markvissan áróður fyrir því
að ungir menn á Íslandi nauðgi ekki.
SJÁIÐI til. Nauðgun er hrottalegur,
ofbeldisfullur glæpur. Fátt er ógeðs-
legra og hefur jafn skaðleg áhrif á
manneskjur. Menn hrista hausinn og
gapa yfir fréttum sem berast frá út-
löndum af skipulegum hópnauðgun-
um í stríðshrjáðum löndum og það er
spurt: Hvernig getur mannkindin
verið svona ótrúlega ill? Nauðganir
eru á sömu hillu og pintingar, morð
og limlestingar og valda jafnvel
meiri viðbjóði ef eitthvað er.
OG ÞÁ fór ég sem sagt að spá.
Nauðganir ættu auðvitað að vera
eitthvað sem menn bara gera alls
ekki. Og ef menn framkvæmdu slíkt,
þá væri það einfaldlega ömurlegur
atburður sem allir vildu að hefði
aldrei átt sér stað. Tragedía. Harm-
leikur. Alvarlegur og refsiverður
glæpur. Svona rétt eins og morð. Af
þessum sökum eru auglýsingarnar
sem ganga mikið til út á það að það
sé ekki töff að vera nauðgari, og að
menn eigi að sleppa því að nauðga,
eitthvað svo óendanlega fríkaðar, ef
maður spáir í það.
FÁRÁNLEIKINN kemur best í ljós
þegar maður ímyndar sér að svipað-
ar auglýsingaherferðir væru farnar
til þess að koma í veg fyrir aðra
glæpi. Ekka myrða! gæti ein auglýs-
ing hljómað. Morð er frekja! Morð er
ekki töff! Það er ekki kúl að stela!
Það eru bara lúðar sem brenna hús!
Ert þú einn af þeim? Það eru bara
aular sem limlesta! Fífl pynta! Það
segir sem sagt sitt um ástandið, vil
ég meina, að það nægir ekki lengur
að segja einfaldlega: þú skal ekki
annan mann deyða? í þessu tilviki
nauðga – heldur þarf að selja hug-
myndina um að nauðgun sé ekki töff
með ímyndarherferð og auglýsinga-
spjöldum. Vonin er síðan sú að skila-
boðin falli í kramið, enda slagorðin
þaulhugsuð. En maður spyr sig: hvað
ef þau hitta ekki í mark? Þá er fjand-
inn laus. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík
www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 525 5060
Jam pack
Lendir aftur í dag!
í útihátíðina!
Ibanez Jam pack
kassagítar með ól, tuner
og poka á aðeins
19.900 kr.-
Bókin Eyjalög sem inniheldur
15 þjóðhátíðarlög með textum og
gripum fylgir.
8 söngbækur í pakka,
öll lög hljómasett
með myndum af
gripum við hvert lag
kr. 3900,- pakkinn