Fréttablaðið - 03.08.2004, Page 40
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
Veljið fallegan legstein
Vönduð vinna og frágangur
Sendum myndalista
Legsteinar
„Ætli ég horfi ekki til veðurs og
hugsi mér til hreyfings ef það lof-
ar góðu,“ segir Ólafur F. Magnús-
son, læknir og borgarfulltrúi, en
hann er 52 ára í dag.
Ólafur segist ekki vanur að
halda upp á daginn nema um
stórafmæli sé að ræða. „Fimm-
tugsafmælið er afar eftirminni-
legt enda var það haldið á miklum
sólskinsdegi í fallegu umhverfi
Rafstöðvarheimilisins í Elliðaár-
dal. Veislan var óvenju stór og
blandaðist að sumu leyti við
ánægjuleg kosningaúrslit fyrr
um sumarið. Það voru því margir
sem mættu til að samfagna
þennan dag.“
Sumarið hefur verið nokkuð
rólegt í borgarmálunum að sögn
Ólafs og býst hann við að svo
verði áfram í ágúst. „Ég hef getað
notið þess að vera í fríi en ég er
vanur að hafa yfirdrifið nóg að
gera bæði sem heimilislæknir og
borgarfulltrúi.“
Fríið hefur hann meðal annars
notað til að skoða sig um á há-
lendinu en hann hélt í bakpoka-
ferð inn á Kringilsárrana í júlí.
„Þetta var stórkostleg ævintýra-
ferð en Kringilsárrani er nátt-
úruperla inn af Kárahnúkum. Við
eyddum þarna sex dögum í aust-
urlenskri bongóblíðu sem gerði
ferðina enn betri. Ómar Ragnars-
son hefur verið óþreytandi að
sýna okkur myndir af þeim nátt-
úruperlum sem er að finna á
Snæfells- og Brúaröræfum, en í
því sambandi eiga menn eins og
Friðþjófur Helgason, Jóhann Ís-
berg, RAX, Guðmundur Páll
Ólafsson, Páll Steingrímsson og
feðgarnir Snorri og Haukur
Snorrasynir þakkir skildar –
ásamt fleirum. Ég held að það
ættu fleiri borgarfulltrúar og al-
þingismenn að leggja leið sína
þangað enda þeir sem hafa tekið
ákvörðun um að eyðileggja svæð-
ið með virkjunarframkvæmd-
um.“
Ólafur var í hópi 37 ferðalanga
sem lögðu leið sína um undra-
veröld Jöklu og Kringilsárrana í
júlímánuði. „Það eru tvær vaskar
konur, Ásta Arnardóttir og Ósk
Vilhjálmsdóttir, sem skipuleggja
þessar ferðir af algjörri hugsjón
en fyrirtækið kalla þær Augna-
blik. Nafngiftin er við hæfi enda
erum við að festa í minni síðustu
augnablikin í sögu þessa svæðis
fyrir komandi kynslóðir sem
munu ekki eiga þess kost á að
fara um það með þessum hætti,“
segir Ólafur að lokum. ■
20 3. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
MARTIN SHEEN Bandaríski leikarinn, sem
margir muna sjálfsagt eftir úr Apocalypse Now,
er 64 ára í dag.
AFMÆLI
Eyjólfur Sverrisson knattspyrnukappi er
36 ára.
Tómas Lemarquis leikari er 27 ára.
ANDLÁT
Aðalheiður Jónsdóttir, dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, lést miðvikudaginn 21.
júlí. Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Eiríkur Jónsson múrarameistari, Rauð-
hömrum 12, Reykjavík, lést fimmtu-
daginn 29. júlí.
JARÐARFARIR
10.30 Nína Þórðardóttir, Sundlaugar-
vegi 22, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Jón Pálmi Karlsson, Lindasíðu 2,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
13.30 Sigríður Ellingsen, áður til heimil-
is á Ægisíðu 80, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
13.30 Þröstur Helgason kennari, Hóf-
gerði 12, Kópavogi, verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju.
14.00 Jakob Jónsson bóndi, Varmalæk,
verður jarðsunginn frá Borgarnes-
kirkju.
14.00 Margrét Tryggvadóttir, Stóru-
Borg, Víðidal, Vestur-Húnavatns-
sýslu, verður jarðsungin frá
Breiðabólstað í Vesturhópi.
Ítalski landkönnuðurinn
Kristófer Kólumbus hélt úr höfn
þennan dag árið 1492 frá höfn-
inni Palos á Spáni. Hann ætlaði
sér að finna sjóleiðina úr vestri
til Asíu þaðan sem bárust sögur
um að smjör drypi af hverju
strái.
Þann 12. október sá áhöfnin
til lands. Áhöfnin taldi landið
vera Spán en í raun voru það -
Bahamaeyjar. Síðar í mánuðin-
um sá Kólumbus til lands á Kúbu
en taldi sig þar hafa fundið meg-
inland Kína. Í desember lenti
áhöfnin svo á eyjunni Hispa-
njólu sem hann kvað líklega vera
Japan. Á Hispanjólu stofnaði
Kólumbus litla nýlendu áður en
hann sneri aftur til Spánar með
gull, krydd og fanga sem kallað-
ir voru indíánar eftir landinu
sem Kólumbus taldi sig hafa
fundið. Kólumbus leiddi alls
fjóra leiðangra vestur um haf á
lífsleið sinni og nam land á
mörgum eyja Karíbahafsins,
Mexíkó auk meginlands Mið- og
Suður-Ameríku. Þrátt fyrir það
náði hann aldrei takmarki sínu
sem hann sigldi upp með frá
byrjun, að finna leið frá vestri
austurs til gnægtabrunns Asíu
sem Evrópubúar sáu í hillingum
á liðnum öldum. Kólumbus lét
lífið á Spáni árið 1506 án þess að
gera sér grein fyrir því hvílíkt
afrek hann hafði unnið með því
að uppgötva Ameríku. Landa-
fundir Kólumbusar gerðu það að
verkum að Spánn varð um tíma
mesta og ríkasta veldi heimsins
sökum alls þess gulls og silfurs
sem fyrirfannst í álfunni og
fluttir voru skipsfarmar af heim
til Evrópu. ■
ÞETTA GERÐIST
KÓLUMBUS SIGLDI ÚR HÖFN Á SPÁNI ÁLEIÐIS TIL KÍNA. HANN ENDAÐI Í AMERÍKU.
29. júlí 1958
„Bill Clinton var líklega greindasti forseti tuttugustu aldarinnar.“
Leikarinn Martin Sheen fer fögrum orðum um Bill Clinton en honum
þykir afskaplega lítið til arftaka hans koma.
Kólumbus leggur af stað
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON hefur notið þess að vera í fríi í sumar enda rólegt yfir borgarmálunum.
Skoðaði hálendið
í bongóblíðu
AFMÆLI: ÓLAFUR F. MAGNÚSSON, LÆKNIR OG BORGARFULLTRÚI, ER 52 ÁRA Í DAG.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jakob Jónsson
bóndi, Varmalæk
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 3. ágúst klukkan 14:00.
Jarðsett verður í Bæjarkirkjugarði.
Jarþrúður Jónsdóttir,
Birna Jakobsdóttir, Halldór Bjarnason,
Jón Jakobsson, Kristín Guðbrandsdóttir,
Helga Jakobsdóttir, Hallgeir Pálmason,
Sigurður Jakobsson, Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir,
Magnea K. Jakobsdóttir, Ragnar Andrésson,
barnabörn og barnabarnabörn.
LANDKÖNNUÐURINN Þrátt fyrir að ferð
Kólumbusar yfir hafið til Ameríku hafi verið
ein allra mikilvægasta sigling mannkynssög-
unnar fannst honum hann hafa mistekist.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
1492 Öllum gyðingum gert að yfirgefa
Spán. Aðgerðin var liður í að
hreinsa landið af ókaþólskum öfl-
um og erlendum eftir tæplega
átta alda veru múslima í landinu.
1914 Fyrsta sjófæra skipið siglir um
Panamaskurðinn.
1914 Þýskaland lýsir yfir stríði við Frakk-
land. Daginn eftir lýsti
Bretland yfir stríði á hendur Þjóð-
verjum sem markaði upphaf fyrri
heimsstyrjaldarinnar.
1936 Jesse Owens vinnur fyrstu af
fjórum gullpeningum sínum á
Ólympíuleikunum í Berlín.
1971 Paul McCartney tilkynnir stofnun
nýju hljómsveitar sinnar Wings.
1988 Yfirheyrslunum í Íran - Kontra-
hneykslinu lýkur. Engin tenging
var gerð milli forseta Bandaríkj-
anna Ronalds Reagan og upp-
reisnarmanna í Níkaragúa.
1994 Þrír fangar teknir af lífi í Arkansa í
Bandaríkjunum. Þetta var í fyrsta
skipti sem opinber aftaka átti sér
stað í ríkinu í 32 ár.