Fréttablaðið - 03.08.2004, Page 44
24 3. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Breski hnefaleikakappinn DannyWilliams kom öllum á óvart
þegar hann rotaði Mike Tyson í bar-
daga félaganna í Louisville í Banda-
ríkjunum aðfaranótt
l a u g a r d a g s i n s .
Williams sló Tyson
niður í fjórðu lotu
eftir að hafa staðið
af sér þung högg frá
hinum 38 ára
Tyson í byrjun.
Þetta er aðeins í
fimmta skiptið sem Tyson tapar bar-
daga og gæti þýtt endalok ferils hans
sem atvinnuhnefaleikakappa. Tyson
kenndi hnémeiðslum um ósigurinn
og sagðist ekki hafa getað beitt sér
frá því í byrjun annarrar lotu.
Williams segist hafa áhuga á þvíað berjast aftur við Tyson og
sanna fyrir öllum að þessi sigur hans
í Louisville hafi ekki
verið heppni. „Ég
veit að það halda
allir að þessi sigur
minn hafi verið
heppni en ég er
þess fullviss að ég á
meira inni,“ sagði
Williams sem er
jafnvel tilbúinn til að fórna bardaga
um heimsmeistaratitil til að berjast
aftur við Tyson.
Svissneski tenniskappinn RogerFederer ber höfuð og herðar yfir
aðra tenniskappa í heiminum í dag
og sýndi það í
Toronto á sunnu-
daginn þegar hann
bar sigur býtum á
Toronto Masters-
mótinu. Federer
vann Bandaríkja-
manninn Andy
Roddick örugglega
í úrslitaleiknum og hefur nú unnið
23 leiki í röð sem er lengsta sigur-
ganga eins tenniskappa síðan Pete
Sampras vann 24 leiki árið 1999.
Vijay Singh, kylfingurinn snjalli fráFidjieyjum, fór með sigur af hólmi
á Buick Invitational-mótinu á PGA-
mótaröðinni í golfi
sem lauk í Michigan
á sunnudaginn.
Singh tókst að
standast áhlaup
Bandaríkjamanns-
ins John Daly á síð-
asta hringnum og
lauk mótinu á 23
höggum undir pari. Daly kom næst-
ur á 22 höggum undir pari og Tiger
Woods og paragvæski kylfingurinn
Carlos Franco komu næstir á 21
höggi undir pari.
Newcastle ætlar ekki að fram-lengja samninginn við knatt-
spyrnustjóra sinn, hinn 71 árs Bobby
Robson, þegar hann rennur út
næsta vor. Freddy Shephard, stjórn-
arformaður félags-
ins, sagði að
Newcastle þyrfti að
fara að horfa til
framtíðar því Rob-
son yrði ekki eilífur
í starfi. Robson var
ekki sáttur við þessi
ummæli Shep-
hards og hefur krafist fundar með
honum þar sem hann telur að hann
hafi ekki vitað af þessari ætlun
Newcastle. Talið er líklegt að Alan
Shearer, sem hyggst hætta að spila
eftir þetta tímabil, taki við af Robson.
Skagamenn og sænska liðiðHammarby hafa víxlað leikjum
sínum í annarri
umferð forkeppni
UEFA-bikarins. Liðin
tvö voru dregin
saman á föstudag-
inn og áttu Skaga-
menn að leika fyrri
leikinn heima 12.
ágúst. Þeir munu
nú spila í Svíþjóð 12. ágúst og heima
á Akranesi 26. ágúst.
Spánverjinn Jose Antonio Reyes,sem leikur með Arsenal, var val-
inn besti leikmaður fjögurra liða
mótsins sem fram fór í Amsterdam.
Arsenal náði reyndar ekki að skora í
mótinu, gerði
markalaus jafntefli
gegn River Plate og
Ajax, en Reyes fór á
kostum á vængn-
um hjá Arsenal,
sem lék án flestra
sinna bestu
manna, og spáir
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, að Reyes eigi eftir að fara á
kostum á komandi leiktíð og verða
andstæðingunum erfiður ljár í þúfu.
Sölustaðir um land allt · Sjá frekari upplýsingar á www.thinkpad.is
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · www.nyherji.is
Þú og
Margverðlaunaðar fartölvur sem fanga hug þinn
FARTÖLVUR
IBM ThinkPad R51 - UJ032DE
· Intel Pentium M 1,5GHz, 1MB flýtiminni
· 256MB minni (mest 2GB)
· 40GB diskur m/ APS fallvörn
· 15” TFT skjár (1024x768)
· Combo drif (CD-RW / DVD)
· Þráðlaust netkort 802.11b 11Mb
· Allt að 4 klst. rafhlöðuending
· Windows XP Pro stýrikerfi
· 2 ára neytendaábyrgð
Tilboðsverð: 159.900 kr.
IBM ThinkPad T42 - UC25WDE
· Intel Pentium M 1,5GHz, 1MB flýtiminni
· 256MB minni (mest 2GB)
· 30GB diskur m/ APS fallvörn
· 14” TFT skjár (1024x768)
· Combo drif (CD-RW / DVD)
· Þráðlaust netkort 802.11b/g 11Mb/54Mb
· Allt að 5 klst. rafhlöðuending
· Þyngd aðeins 2,05 kg
· Windows XP Pro stýrikerfi
· 3 ára ábyrgð
Tilboðsverð: 189.900 kr.
einstakt par
IBM Thinkpad R51 - TJ9BRDE
· Intel Pentium M 1,7GHz, 1MB flýtiminni
· 512MB minni (mest 2GB)
· 40GB diskur m/ APS fallvörn
· 15” Flexview TFT skjár (1400x1050)
· Combo drif (CD-RW / DVD)
· Þráðlaust netkort 802.11b/g 11Mb/54Mb
· Allt að 4:40 klst. rafhlöðuending
· Windows XP Pro stýrikerfi
· 3 ára ábyrgð
Tilboðsverð: 199.900 kr.
IBM ThinkPad T42 - UC2JXDE
· Intel Pentium M 735 1,7GHz, 2MB flýtiminni
· 512MB minni (mest 2GB)
· 40GB diskur m/ APS fallvörn
· 15” Flexview TFT skjár (1400x1050)
· Combo drif (CD-RW / DVD)
· Þráðlaust netkort 802.11b/g 11Mb/54Mb
· Allt að 4:45 klst. rafhlöðuending
· Þyngd aðeins 2,4 kg
· Windows XP Pro stýrikerfi
· 3 ára ábyrgð
Tilboðsverð: 229.900 kr.
6.017 .rk *IÐUNÁM Á
482.7 .rk *IÐUNÁM Á
809.4 .rk *IÐUNÁM Á
433.6 .rk *IÐUNÁM Á
NÁMUTI
LBOÐ
154.900
kr.
Námufélögum Landsbankans býðst afar hagstæð tölvulán
að hámarki 300.000 krónur í 3 ár.
* Lán til 36 mánaða miðað við 8,75% vexti skv. vaxtatöflu Landsbankans 1. júlí 2004.
N
Ý
H
E
R
J
I
/
1
40
Hið árlega Shoot-out mót í golfi fór fram á Nesvelli á Seltjarnarnesi í gær:
Magnús vann í fyrsta sinn
GOLF Hið árlega Shoot-out góð-
gerðamót Nesklúbbsins fór fram í
áttunda sinn í gær á Nesvellinum
á Seltjarnarnesi. Tíu af bestu
kylfingum öttu kappi saman með
shoot-out-fyrirkomulagi þar sem
kylfingurinn með versta skorið á
hverri holu fellur út þar til einn
stendur eftir.
Tvær konur mættu til leiks,
þær Ragnhildur Sigurðardóttir,
sem vann þetta mót í fyrra, og Ís-
landsmeistarinn Ólöf María Jóns-
dóttir. Átta karlar voru meðal
keppenda, Íslandsmeistararinn
Birgir Leifur Hafþórsson, Björg-
vin Sigurbergssson, Heiðar Davíð
Bragason, Magnús Lárusson, Sig-
urpáll Geir Sveinsson, Ólafur B.
Loftsson, Örn Ævar Hjartarson og
Stefán Már Stefánsson en styrkt-
araðili mótsins DHL-hraðflutn-
ingar gáfu 250 þúsund krónur sem
runnu að þessu sinni til félagsins
Einstakra barna.
Magnús Lárusson, kylfingur úr
Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ,
sem tók þátt í mótinu í fyrsta sinn
fór með sigur af hólmi eftir að
hafa lagt Örn Ævar Hjartarson úr
Golfklúbbi Suðurnesja á loka-
holunni. Magnús byrjaði illa og
þurfti þrívegis að fara í svokallað
shoot-out á fyrstu holunum þar
sem þeir sem eru með versta ár-
angurinn á holunni keppa sín á
milli hver dettur út. Hann komst
hins vegar í gegnum þær raunir
og spilaði lokaholurnar mjög vel.
Hann fékk fugl á sjöundu og átt-
undu holu og hefði væntanlega
fengið fugl á lokaholunni ef Örn
Ævar hefði ekki gefið honum auð-
velt pútt og sigurinn.
Magnús var glaðbeittur þegar
Fréttablaðið ræddi við hann að
móti loknu og sagði þetta mót
vera hörkuskemmtilegt. „Þetta er
skemmtilegt fyrirkomulag, ekk-
ert stress og virkilega gaman að
spila. Ég byrjaði afar illa en náði
mér síðan á strik og get ekki ver-
ið annað en sáttur með sigurinn í
fyrstu tilraun,“ sagði Magnús. ■
MAGNÚS LÁRUSSON Kom, sá og sigraði
á shoot-out-móti Nesklúbbsins í gær.