Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 2
2 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
Eitt stærsta fíkniefnasmygl hér á landi:
Barnshafandi með
þúsundir e-taflna
FÍKNIEFNI Barnshafandi kona sem
reyndi að smygla hingað til lands
5.005 e-töflum var úrskurðuð í
tveggja vikna gæsluvarðhald í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Töflurnar fundust við venjubund-
ið eftirlit Tollgæslunnar á Kefla-
víkurflugvelli í bakpoka konunnar
þegar hún kom hingað til lands frá
París á fimmtudaginn. Þetta er
mesta magn af e-töflum sem reynt
hefur verið að smygla inn í landið
en svipað magn var gert upptækt
á Keflavíkurflugvelli árið 2001.
Konan, sem er 26 ára gömul, er
komin fimm mánuði á leið og á fyrir
fjögurra ára gamla dóttur. Hún er
frá Sierra Leone í Afríku en er með
hollenskt vegabréf. „Þetta er eitt
skýrasta dæmið um að menn svífast
einskis við að koma þessu eitri til
landsins. Það virðist við fyrstu sýn
sem menn séu að notfæra sér neyð
og bágindi annarra,“ sagði Jóhann
R. Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli.
Rannsókn málsins, sem er í hönd-
um lögreglunnar á Keflavíkurflug-
velli, er á frumstigi. Áætlað götu-
verð efnanna er um 10 milljónir
króna. Hámarksrefsing við meint-
um brotum konunnar er tólf ára
fangelsi en miðað við dómafram-
kvæmd má konan búast við 4-6 ára
fangelsi verði hún fundin sek. ■
Kaup Björgólfs
í Búlgaríu klár
Björgólfur Thor Björgólfsson er ánægður með kaup fjárfesta undir for-
ystu hans á búlgarska símanum. Hann telur fjárfestinguna opna mögu-
leika til fjárfestingar í símafyrirtækjum í nágrannalöndum Búlgaríu.
VIÐSKIPTI Hópur fjárfesta undir
forystu Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar gekk í gær frá kaupum
á 65 prósenta hlut í Búlgarska
landssímanum, BTC. Kaupverð
hlutarins er 24 milljarðar króna.
Með Björgólfi í fjárfestingar-
félagi hans, Carrera, eru Straum-
ur, Burðarás og Síminn, en leið-
andi fjárfestir með Carrera er
fjárfestingarfyrirtækið Advent
International.
Velta BTC var tæpir fimmtíu
milljarðar króna og hagnaðurinn
á ellefta milljarð. Tæplega 25 þús-
und manns starfa hjá fyrirtækinu.
Fastlínukerfi BTC nær til allra
heimila í Búlgaríu.
Björgólfur Thor sagði í samtali
við Fréttablaðið að hann sæi
mikla möguleika með fjárfesting-
unni. Félagið væri tæknilega
langt á eftir vestrænum fyrir-
tækjum og miklir möguleikar til
hagræðingar í fyrirtækinu. „Við
sjáum fyrir okkur að við getum
nýtt okkur vinnu við að þróa fyrir-
tækið í sambærilegum fyrirtækj-
um í löndunum í kring. Því hraðar
sem við náum að byggja upp BTC,
því meira getum við gert í ná-
grannalöndunum.“ Hann segir
breytingarnar bæði snúa að
tæknifjárfestingu og að byggja
upp stjórnkerfi fyrirtækisins.
Kostnaður við að færa fyrirtækið
jafnfætis vestrænum fyrirtækj-
um sé mun minni en kostnaður
þeirra fyrirtækja var á sínum
tíma. Tæknin sé alltaf að verða
ódýrari.
Björgólfur Thor sest í stjórn
fyrirtækisins og mun koma að
framtíðarstefnumótun þess, en
hann segist nú snúa sér að næstu
verkefnum, bæði á eigin vegum
og með Burðarási, þar sem hann
er stjórnarformaður. „Þessi vinna
tók miklu lengri tíma en ég gerði
ráð fyrir í upphafi og ég er mjög
feginn að búið sé að ljúka þessu.“
Pólitísk átök hafa verið um
þætti sölunnar í Búlgaríu, en með
afhendingu fjarskiptaleyfis á
rekstur GSM-kerfis var síðustu
hindrun kaupanna rutt úr vegi.
Björgólfur þekkir vel til í Búlgar-
íu og segir hindranir í stjórnmála-
lífinu hafa bæði komið sér á óvart
og ekki. „Það er ekki fyrir biss-
nessmenn að skilja pólitíkusa né
fyrir pólitíkusa að skilja bissness-
menn. Það fer ekkert saman, en
allt er gott sem endar vel og þetta
eru mikilvæg viðskipti fyrir búl-
görsku þjóðina. Það má reikna
með að í framhaldinu styrkist
lánshæfismat landsins.“
haflidi@frettabladid.is
Amfetamín fannst í húsleit:
Annar laus
úr gæslu-
varðhaldi
LÖGREGLA Annar af tveimur mönn-
um um þrítugt sem úrskurðaðir
voru í gæsluvarðhald á föstudag-
inn í síðustu viku er laus úr haldi.
Hann hafði verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald í eina viku og
rann sá tími út í gær. Hinn mað-
urinn er enn í haldi en hann var
úrskurðaður í gæsluvarðhald í
þrjár vikur.
Mennirnir voru handteknir
eftir að rúmt kíló af amfetamíni
og tæp 70 grömm af hassi fund-
ust í húsleit. ■
Utanríkisráðuneytið:
Mótmælum
komið á
framfæri
MÓTMÆLI Íslensk stjórnvöld hafa
komið á framfæri mótmælum
fjölmargra hér á landi vegna
mannréttindabrota á föngum í
herstöð Bandaríkjamanna í
Guantanamo á Kúbu. Það gerði
Sturla Böðvarsson í apríl og Hall-
dór Ásgrímsson svo aftur í maí á
fundi hans með sendiherra
Bandaríkjanna hér á landi. Þetta
kemur fram á vefsíðu utanríkis-
ráðuneytisins. ■
BANDARÍKJAHER Í ÍRAK
Fæstir vilja kalla herinn heim en meirihluti
efast um réttmæti innrásar.
Skoðanakönnun:
Ekki ástæða
til innrásar
BANDARÍKIN, AP Flestir Bandaríkja-
menn eru þeirrar skoðunar að
ekki hafi verið ástæða til að ráð-
ast inn í Írak. Þetta kemur fram í
nýrri skoðanakönnun dagblaðsins
Los Angeles Times. Flestir telja
þó að úr því sem komið er beri að
ljúka verkefninu þar.
55 prósent aðspurðra sögðu að
ekki hefðu verið nægilega góðar
ástæður til að hefja innrás, 43 pró-
sent telja hins vegar að innrásin
hafi verið réttlætanleg. Í síðustu
tveimur könnunum fyrir Los Ang-
eles Times, í nóvember í fyrra og
mars síðastliðnum, var þessu
öfugt farið. Innan við fimmtungur
vill kalla herinn heim. ■
„Jú, einkum úti á sjó.“
Tumi Tómasson, skólastjóri Sjávarútvegsskóla
Sameinuðu þjóðanna, hefur borðað flest það sem
ætt er og eitthvað fleira að auki, meðal annars
krókódíl, skjaldböku, mýs og marglyttu auk lifandi
fisks.
SPURNING DAGSINS
Tumi, verður þér aldrei flökurt?
Sveitarstjórnarkosningar
á Bretlandi:
Blair fékk á
baukinn
BRETLAND, AP Verkamannaflokkur-
inn þurfti í fyrsta
sinn í sögunni að
þola það að verða
aðeins þriðji
stærsti flokkurinn
í kosningum þeg-
ar Bretar völdu
sér sveitarstjórn-
ir. Íhaldsmenn
fengu 38 prósent
atkvæða, Frjáls-
lyndir demókrat-
ar 30 prósent og
V e r k a m a n n a -
flokkurinn aðeins 26 prósent at-
kvæða.
Niðurstöðurnar þykja endur-
spegla mikla óánægju Breta með
hvernig ríkisstjórnin hefur haldið
á Íraksmálum. Kjósendur nota
sveitarstjórnarkosningar til að
koma óánægju sinni með ríkis-
stjórnina á framfæri. ■
Netsalan
Knarrarvogur 4 - 104 Reykjavík - Sími 517 0220
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13.00 - 16.00
Til afgreiðslu!
Dodge Ram 2500 Quad Cap Laramie 4x4
FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR
Síðustu eintökin
eru komin!!!
Baldur Ágústsson forsetaframbjóðandi:
Framboðsfundur í Danmörku
FRAMBOÐ Baldur Ágústsson for-
setaframbjóðandi hélt framboðs-
fund á Café Jonas í Kaupmanna-
höfn í gærkvöld. Í Danmörku eru
tæplega sjö þúsund Íslendingar
með skráða búsetu.
Vel var mætt á framboðsfund
Baldurs Ágústssonar á elliheimil-
inu Grund í vikunni. Þar rakti
Baldur fjölskyldutré sitt aftur til
nær fyrstu landnámsmannanna
og kynnti sín stefnumál. Heimil-
isfólk á Grund hafði mikinn
áhuga á að vita hver hinn svo til
óþekkti frambjóðandi væri. Að
loknum formlegum fundi og hóp-
söng heilsuðu Baldur og Jean
Plummer, heitkona hans, upp á
heimilisfólkið.
Heimsókn Baldurs til Dan-
merkur lýkur á sunnudag og verð-
ur kosningabaráttu haldið áfram
hér á landi. Mun hann heimsækja
fjölda vinnustaða auk þess sem
hann kemur við á Selfossi, Akur-
eyri, Keflavík og á Akranesi. Upp-
lýsingar um fundi Baldurs má
finna á landsmal.is. ■
FRAMBOÐSFUNDUR Á GRUND
Baldur ræddi bæði við starfsfólk og heimilisfólk að loknum formlegum fundi á
elliheimilinu Grund.
LÖNG LEIÐ
Skrifað var undir viljayfirlýsingu um kaup á búlgarska símafyrirtækinu BTC í lok janúar. And-
staða var meðal stjórnmálaafla í Búlgaríu varðandi kaupin og hafa fjárfestar undir forystu Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar þurft að verja meiri tíma í viðskiptin en gert var ráð fyrir í upphafi.
KEYRÐI ÚT AF Mikil mildi þótti
að ekki fór verr þegar ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni og
keyrði út af á Kleifaheiði við Pat-
reksfjörð í gær. Að sögn lögregl-
unnar á Patreksfirði slapp mað-
urinn með skrámur en bíllinn er
gjörónýtur.
ÁTTI SKOTVOPN OG FÍKNIEFNI
Nokkuð magn fíkniefna, umbúðir
til sölu þeirra, skotvopn, skotfæri
og önnur vopn fundust við húsleit
í einbýlishús á Þorlákshöfn í gær.
Maður á þrítugsaldri var hand-
tekinn.
SEXTÁN ÁRA MEÐ HASS Sextán
ára stúlka var handtekin er hún
reyndi að smygla tíu grömmum
af hassi inn á Litla-Hraun. Fékk
stúlkan að fara frjáls ferða sinna
eftir að lögregla hafði rætt við
hana en félagsmálayfirvöld voru
látin vita af málinu.
TÖFLURNAR FALDAR Í BAKPOKA
Rúmlega fimm þúsund e-töflum hafði
verið komið fyrir í bakboka konunnar.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
TONY BLAIR
Úrslitin eru áfall
fyrir hann.
02-03 11.6.2004 21:56 Page 2