Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 51
39LAUGARDAGUR 12. júní 2004
EM Í PORTÚGAL Hakan Yakin, leik-
maður Stuttgart, er sá leikmaður
sem skapar marktækifærin fyrir
Sviss.
Liðið leitar að honum í sóknar-
leiknum og hann er sá sem stjórn-
ar spili liðsins.
Sviss leggur áherslu á varnar-
leik en til að komast upp úr und-
anriðlinum verður liðið að skora
mörk og er Yakin sá hæfasti til að
búa þau til. Ómissandi fyrir sviss-
neska liðið.
Hakan Yakin hefur fengið
mikla reynslu í Meistaradeildinni
og er klár fyrir stóra sviðið í
Portúgal þar sem hann ætlar að
leiða Sviss til góðra verka. ■
■ FYLGSTU MEÐ
Svisslendingnum
Hakan Yakin
■
Yakin er leikmaður sem hefur sannað
mikilvægi sitt fyrir bæði land sitt og fyrir
Stuttgart í Meistaradeildinni.
Felix Magath, fyrrum þjálfari Stuttgart.
Áfall hjá Grönkjær:
Missti
móður sína
EM Í PORTÚGAL Móðir danska lands-
liðsmannsins Jespers Grönkjær,
Irmelin Grönkjær, lést í síðustu
viku úr krabbameini og fór hann
af þeim sökum ekki með landslið-
inu til Portúgal en hann gæti kom-
ið þegar líður á mótið. Morten Ol-
sen, þjálfari Dana, hefur sagt að
hann virði ákvörðun Grönkjærs.
„Það er afar ólíklegt á þessari
stundu að Jesper spili með okkur
gegn Ítalíu á mánudag. Við verð-
um bara að finna lausn á því
vandamáli en vonandi kemur
hann til móts við liðið fljótlega,“
sagði Morten Olsen við blaða-
menn í gær. ■
Franski varnarmaðurinn Lilian Thuram:
100. leikurinn á morgun
FÓTBOLTI Franski varnarmaðurinn
Lilian Thuram leikur sinn 100.
landsleik þegar Frakkar og Eng-
lendingar mætast á EM á morgun.
Thuram hefur leikið flesta sína
landsleiki í hægri bakverðinum
en hann vonast til þess að fá að
leika sína uppáhaldsstöðu á morg-
un sem er staða miðvarðar.
Thuram og Mikael Silvestre
hafa náð vel saman í miðvarðar-
stöðunum undanfarið en margir
telja að Santini landsliðsþjálfari
setji Marcel Desailly á ný í mið-
vörðinn og það þýðir að Thuram
þarf að fara aftur í bakvörðinn.
„Ég veit ekki enn hvar ég á
spila en ég hef alltaf beðið um að
fá að leika í miðverðinum. Óskir
mínar voru virtar að lokum en við
verðum að bíða og sjá hvað gerist
á sunnudaginn,“ sagði Thuram við
blaðamenn í gær. ■
TÍMAMÓT
Lilian Thuram leikur sinn hundraðasta
landsleik á morgun.
Enski framherjinn Michael Owen hefur ekki áhyggjur af félaga sínum:
Rooney þolir pressuna
EM Í PORTÚGAL Enski framherjinn
Michael Owen hefur engar
áhyggjur af því að Wayne Rooney,
félagi hans í framlínu enska liðs-
ins, sem er aðeins átján ára, eigi
eftir að kikna undan álaginu sem
fylgir því að spila á svona stór-
móti.
Owen var sjálfur átján ára þeg-
ar hann sló í gegn á HM í Frakk-
landi árið 1998 og hann trúir því
að Rooney eigi eftir að leika sama
leik í Portúgal.
„Hann hefur mikið sjálfstraust
og hræðist ekki neitt. Ég hef trú á
því að hann eigi eftir að slá í gegn
í þessu móti,“ sagði Owen, sem
hefur trú á því að ungur aldur
Rooneys eigi eftir að hjálpa hon-
um í fyrsta leiknum gegn Frakk-
landi.
„Þegar þú ert átján ára þá ertu
ekki hræddur. Þú lætur ekki utan-
aðkomandi hluti trufla þig heldur
vilt bara spila fótbolta. Það held
ég að eigi við um Rooney,“ sagði
Owen. ■
WAYNE ROONEY
Michael Owen hefur trú á að
hann þoli pressuna á EM.
Blóð, sviti og tár
Svakalegasti leikur riðlakeppninnar, England gegn Frakklandi.
EM Í PORTÚGAL B-riðillinn er senni-
lega sá sem mesta athygli á eftir að
vekja á meðal íslenskra knatt-
spyrnuáhangenda og stafar það
einkum af stórþjóðunum Englandi
og Frakklandi. Þessir tveir risar í
evrópskri knattspyrnu munu mæt-
ast á morgun í leik sem verður að
kalla þann stærsta í riðlakeppninni.
Búast má við svakalegum leik, þar
sem barist verður upp á líf og
dauða. Hin liðin í riðlinum, Króatía
og Sviss, falla algjörlega í skuggann
af þessum risum en þó má ekki falla
í þá gryfju að vanmeta þau.
Efstir í veðbönkum
Núverandi Evrópumeistar
Frakka eru efstir í veðbönkum ytra
hvað varðar þá sem líklegastir eru
til að vinna titilinn. Liðið virðist
hafa jafnað sig á vonbrigðunum frá
því á HM 2002, þar sem liðið komst
ekki upp úr undanriðlinum, og flaug
liðið í gegnum undankeppni EM.
Engu munaði að liðið setti heims-
met með 15 sigurleikjum í röð, en 0-
0 jafntefli við Hollendinga kom í
veg fyrir það. Allir þekkja franska
liðið, stórkostlegir leikmenn í öllum
stöðum og þegar þeir spila eins og
þeir geta best vinnur þá enginn. Svo
einfalt er það.
Vantar hið gullna jafnvægi
Ef allt er eðlilegt ættu Eng-
lendingar að fylgja Frökkum upp
úr þessum riðli. Liðið er með góða
leikmenn í öllum stöðum vallarins
en aðalvandamálið felst í því að ná
jafnvægi milli sóknar og varnar.
Sven-Göran Eriksson, þjálfari
liðsins, hefur ekki enn fundið
þessa blöndu og virðist vera illa
við að leika með Nicky Butt í
stöðu varnartengiliðs.
Hann kýs heldur Frank
Lampard fram yfir hann í stöðu
sem hann hefur aldrei leikið.
Michael Owen þarf að vera í
formi til að Englendingar eigi að
ná langt.
Hvert stig meiriháttar afrek
Engar væntingar eru bornar til
Sviss í þessari keppni og má segja
að hvert stig sem liðið hlýtur í
þessum riðli sé meiriháttar afrek.
Svisslendingar munu koma til
með að treysta á góða vörn þar
sem Stephane Henchoz og Murat
Yakin verða aðalmennirnir.
Fyrsti leikurinn gegn Króatíu
skiptir höfuðmáli og góð frammi-
staða þar gæti virkað sem
vítamínsprauta á liðið fyrir fram-
haldið.
Hugsanlegt spútniklið
Króatar hafa á að skipa ungu
liði með fullt af skapandi og
teknískum leikmönnum, en þá
vantar sárlega leiðtoga. Miðjan er
veikasti hlekkur liðsins og vantar
mann þar sem getur stutt við bak-
ið á firnasterkri sóknarlínu þar
sem Dado Prso, sem sló í gegn
með Mónakó í Meistaradeildinni í
vetur, er hættulegastur. Gæti vel
orðið spútniklið keppninnar. ■
LYKILMENN Í B-RIÐLI
Frakkland
Sókn Thierry Henry
Miðja Zinedine Zidane
Vörn Lilian Thuram
England
Sókn Michael Owen
Miðja David Beckham
Vörn Sol Campbell
Sviss
Sókn Alexander Frei
Miðja Hakan Yakin
Vörn Murat Yakin
Króatía
Sókn Dado Prso
Miðja Milan Rapaic
Mark Igor Tudor
HLAUPIÐ SAMAN
Enska landsliðið sést hér hita upp fyrir æfingu í Lissabon í gær.
Manchester United fær Argentínumann til sín:
Heinze keyptur fyrir
sjö milljónir punda
FÓTBOLTI Gabriel Heinze, leikmað-
ur Paris Saint Germain, hefur
staðfest að hafa skrifað undir
fimm ára samning við Manchest-
er United þrátt fyrir að hafa enn
ekki hitt Alex Ferguson að máli.
Kaupverðið er í kringum sex
milljónir punda en þetta eru önn-
ur kaup United á stuttum tíma.
Alan Smith gekk einmitt nýverið
til liðs við rauðu djöflana frá
Leeds og kostaði sjö milljónir
punda. Hann skrifaði einnig undir
fimm ára samning.
Argentínumaðurinn Heinze,
sem er 26 ára gamall varnarmað-
ur, viðurkennir að United hafi
haft samband fyrir um það bil sex
vikum:
„Ég vildi ekki tala um málið -
ég ber mikla virðingu fyrir Paris
Saint Germain og vildi ekki trufla
liðið með þessu á lokaspretti tíma-
bilsins. Það segir sig sjálft að þeg-
ar svona stórt félag eins og
Manchester United hefur sam-
band hreyfir það við manni. Liðið
sýndi mestan áhuga á að ganga
frá samningnum af öllum þeim
liðum sem höfðu samband, þó að
Alex Ferguson hafi ekki talað
beint við mig. Þeir sögðust bara
vilja fá mig til liðs við sig,“ sagði
ánægður Gabriel Heinze. ■
50-51 (38-39) sport 11.6.2004 19:53 Page 3