Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 52
EM Í FÓTBOLTA Þrátt fyrir ungan aldur er Wesley Sneijder einn af lykilmönnunum í liði Ajax, sem varð hollenskur deildarmeistari fyrir skömmu. 18 ára lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir Holland og er nú, tvítugur að aldri, fastamaður í byrjunarliði liðsins. Sneijder get- ur spilað allar stöður á miðjunni og hans helsti styrkur er að hann er algjörlega jafnfættur og með frábærar spyrnur. Þegar hann er inni á tekur hann allar auka- og hornspyrnur hollenska liðsins, og þykja auka- spyrnur hans einhverjar þær bestu í heimi. ■ 40 12. júní 2004 LAUGARDAGUR Fréttablaðið spáir í Evrópukeppnina í knattspyrnu í Portúgal: Ólíkur leikstíll í C-riðli EM Í FÓTBOLTA Fyrir fram eru það Ítalir sem eru sigurstranglegastir í þessum C-riðli keppninnar. En hin liðin þrjú, Danmörk, Svíþjóð og Búlgaría, eru öll sýnd veiði en ekki gefin og geta öll auðveldlega komið á óvart. Leikstíll liðanna er mjög ólíkur, og þykir það ýta und- ir að viðureignirnar í þessum riðli geti orðið mjög skemmtilegar. Agað lið Ítala Ítalir eru með gríðarlega agað lið, spila mjög skipulega og eru líklega með bestu vörn í keppn- inni. Með sterka miðju og menn á borð við Christian Vieri og Francesco Totti í sókninni hafa Ítalir allt sem þarf til að hreppa titilinn. Ítalir hafa ekki haft heppnina með sér í síðustu tveim- ur stórmótum, en árið í ár gæti orðið þeirra. Þjóðin sættir sig ekki við neitt annað en sigur frá Giovanni Trapattoni og hans læri- sveinum, og því er mikil pressa á herðum leikmanna liðsins. Danir spila sóknarbolta Danir komu öllum heiminum á óvart með því að vinna Evrópu- titilinn árið 1992. Nú, rúmum 10 árum seinna, spila Danir skemmtilegan sóknarbolta þar sem spilið fer mikið í gegnum tvo eldfljóta vængmenn, Jesper Gronkjær og Martin Jørgensen. Síðan er treyst á tvo reynda fram- herja, Jon Dahl Tomasson og Ebbe Sand, til að skora mörkin. Þar sem Ítalir eru taldir sigurstranglegir má leiða að því líkur að lykilleikur Dana í riðlinum verði gegn ná- grönnunum í Svíþjóð. Svíar endurheimtu Larsson Flestir telja að baráttan um annað sætið í riðlinum muni standa á milli Svía og Dana. End- urkoma Henriks Larsson í sænska liðið veitir því mikið sjálfstraust og hafa leikmennirn- ir trú á að þeir geti veitt Ítölum verulega keppni um efsta sætið í riðlinum. Svíar hafa á mjög reyndu liði að skipa og ef Larsson nær upp góðum skilningi við félaga sinn í framlínunni, Zlatan Ibrahimovic, geta Svíar unnið alla andstæðinga sína í þessum riðli. Búlgarar ungir og óreyndir Óvænt velgengni Búlgara í und- ankeppninni kom á stað bjartsýnis- bylgju á meðal þjóðarinnar um að hið unga núverandi lið Búlgara gæti fetað í fótspor fyrirrenna sinna, sem komust í undanúrslit HM 1994. En liðið er mjög ungt og óreynt, reyndar með yngsta með- alaldurinn í allri keppninni, og er ekki búist við miklu af þeim. Það má þó alls ekki vanmeta Búlgara. Leikskipulag liðsins snýst að mestu um tvo menn; leik- stjórnandann Stilyan Petrov og markaskorarann Dimitar Berba- tov. ■ BRATTIR FRAKKAR Frá vinstri: Bixente Lizarazu, Mickael Landreau og Marcel Desailly. Bixente Lizarazu varar Englendinga við: Enga sál- fræði, takk! EM Í PORTÚGAL Franski varnarmað- urinn og leikmaður Bayern München, Bixente Lizarazu, hefur varað Englendinga við því að beita sálfræðihernaði fyrir leik þjóðanna sem fram fer á sunnu- dag en leikurinn er fyrsti stóri leikurinn í mótinu. Lizarazu segir Frakka hafa lært sína lexíu í síðustu heims- meistarakeppni en þá voru þeir með allt lóðrétt niður um sig, sko- ruðu ekki eitt einasta mark og duttu út strax eftir riðlakeppnina. „Englendingar eru að beita mjög einfaldri sálfræði. Þeir vita að við erum fyrir fram taldir mun sigurstranglegri og reyna því að koma allri pressunni yfir á okkur. Þetta er gamalt bragð sem enginn fellur fyrir lengur,“ sagði Bixente Lizarazu. Franski bakvörðurinn er þessa dagana sterklega orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur sem stendur í stórræðum þessa dagana á leik- mannamarkaðinum í kjölfar ráðn- ingar Jacques Santini sem fram- kvæmdastjóra. Hann hefur undanfarin ár leikið með þýska liðinu Bayern München en ekki þykir lengur not fyrir hann í Bæjaralandi. ■ Lettar ætla að sanna sig: Við töpum ekki fyrir Tékkum EM Í PORTÚGAL Aleksandrs Star- kovs, landsliðsþjálfari Letta, er kokhreystin uppmáluð fyrir EM í Portúgal. Hann blæs á allar hrak- spár sérfræðinga og segir tap gegn Tékkum einfaldlega ekki inni í myndinni en liðin mætast í D-riðli á þriðjudaginn. „Fyrir fram erum við ekki tald- ir líklegir til afreka og það eru margir sem telja að við eigum ekkert erindi hér á EM,“ sagði Starkovs og bætti við: „Þetta verða allt erfiðir leikir enda Tékkar, Hollendingar og Þjóðverjar allt hátt skrifaðar knattspyrnuþjóðir. Við eigum þó mikið inni og ætlum að sýna það á þriðjudaginn úr hverju við erum gerðir og sanna í eitt skipti fyrir öll að árangur okkar í und- ankeppninni var engin tilviljun.“ Samkvæmt veðbönkum eiga Lettar minnsta möguleika allra landsliða á Evrópumeistaratitlin- um. Íslenska landsliðið mætti Lettum í lok apríl og lauk þeim leik með markalausu jafntefli. Lettneska liðið hafði betur í bar- áttu við það pólska og ungverska um annað sætið í sínum riðli og lagði síðan Tyrki óvænt í umspili í nóvemer síðastaliðnum. ■ EM Í PORTÚGAL EM Í FÓTBOLTA Einn stærsti og fyrir- ferðarmesti framherji í boltanum í dag. Zlatan Ibrahimovic er ótrú- lega teknískur miðað við stærð og skorar mikið af mörkum fyrir félagslið og landslið. Endurkoma Henriks Larsson mun taka af honum pressu og ef honum tekst að forðast það að láta skapið hlaupa með sig í gönur gæti hann klárlega orðið einn af stjörnum EM. Zlatan var aðeins sautján ára gamall þegar hann var keyptur fyrir átta milljónir punda til Ajax. Pressan var mikil á þessum unga Svía en hann hefur að mestu staðið undir væntingum. ■ ■ FYLGSTU MEÐ Svíanum Zlatan Ibrahimovic ■ Maður gapir alltaf þegar hann fær bolt- ann. Framtíðarstjarna knattspyrnunnar. Martin Sidén, fyrrverandi þjálfari hans. ■ FYLGSTU MEÐ Hollendingnum Wesley Sneijder ■ Hann er ótrúlegt efni og ég sá strax að hann yrði framtíðarmaður landsliðsins. Dick Advocat, þjálfari Hollands. LYKILMENN LIÐANNA Í C-RIÐLI Ítalía Sókn Francesco Totti Miðja Simone Perrotta Vörn Alessandro Nesta Svíþjóð Sókn Henrik Larsson Miðja Fredrik Ljungberg Vörn Olaf Mellberg Danmörk Sókn Jon Dahl Tomasson Miðja Thomas Gravesen Vörn Thomas Helveg Búlgaría Sókn Dimitar Berbatov Miðja Stilian Petrov Vörn Ivailo Petkov FRANCESCO TOTTI Leikstjórnandi ítalska liðsins er greinilega flinkur með knöttinn. KOKHRAUSTIR LETTAR Tap gegn Tékkum ekki á dagskrá. Þjálfarinn Aleksandrs Starkovs gefur hér fyrirliða Letta, Vitalijs Astafjevs, góð ráð. 52-53 (40-41) sport 11.6.2004 20:06 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.