Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 20
Fyrir 106 árum lýstu Filippseyjar yfir sjálfstæði sínu eftir baráttu uppreisnarmanna undir forystu Emilio Aguinaldo. Á þessu tíma stóð yfir stríð á milli Bandaríkja- manna og Spánverja en Filippseyj- ar höfðu verið undir stjórn Spán- verja í ein 300 ár. Um miðjan ágúst höfðu Filippseyingar með hjálp Bandaríkjamanna bolað Spánverj- um burt en vonir Aguinaldo um sjálfstæði voru eyðilagðar þegar Bandaríkin innlimuðu Filippseyj- ar en það var liður í samningi þeir- ra við Spán að loknu stríðinu. Sem svar við þessu fór Aguin- aldo af stað með nýja hreyfingu og í þetta skiptið gegn Bandaríkjunum. Uppreisnarmennirnir unnu sigur í hverjum bardaganum en á endanum voru komnir 60 þúsund bandarískir hermenn komnir til Filippseyja til að berjast. En stríðið dróst á lang- inn. Margir Bandaríkjamenn létu óspart í ljós þá skoðun sína að rangt hefði verið að innlima Filippseyjar og meðal þeirra var demókratinn og forsetaframbjóðandinn William Jennings Brayan, hann tapaði hins vegar fyrir William McKinley og stríðið hélt áfram. Í mars 1901 kom bandaríski herinn Aguinaldo á óvart í bænum Luzon þar sem hann hafði yfir- höndina og tókst þeim að hand- taka leiðtogann. Aguinaldo sór þá Bandaríkjunum hollustu sína og sagði uppreisninni lokið. Mikið af fylgismönnum hans héldu þó áfram að berjast. Næsta ár á eftir sömdu Bandaríkin loks um frið. Í lítt þekktri árás bandaríska hersins á eyjuna Samar voru allir karlmenn eyjarinnar drepnir sem náð höfðu tíu ára aldri. Fyrir þessi fjöldamorð var hershöfðinginn Jacob Smith sem stjórnaði að- gerðunum kallaður fyrir rétt og krafinn afsagnar. Að lokum árið 1935 var fyrsti forseti Filippseyinga kosinn, Manuel Quezon og 4. júlí árið 1946 varð landið sjálfstætt með stuðn- ingi Bandaríkjanna. ■ ■ ÞETTA GERÐIST „Ég geri aldrei neitt því ég er að vinna allan daginn,“ segir Hugi Halldórsson, betur þekktur sem Ofur-Hugi úr sjónvarpsþættinum 70 mínútur. Hugi vinnur ekki að- eins við að skemmta ungum sem öldnum í sjónvarpinu því hann þjálfar einnig 5. flokk kvenna í knattspyrnu hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar. Hann eyddi því tíma með lærisveinunum á mánu- dag og þriðjudag. „Ég sá líka leik FH og ÍBV í Kaplakrika,“ segir Hugi. „Pabbi, Halldór Halldórsson, lék lengi í markinu hjá FH svo ætli ég haldi ekki svona fiftí-fiftí með Tinda- stóli og FH.“ Hugi gerði lítið sem ekkert á miðvikudag fyrir utan hina hefð- bundnu vinnu en á fimmtudaginn fór hann á Harry Potter og fang- ann frá Azkaban. „Það er fín mynd. Þetta er voða svipuð hugmynd og í fyrri myndunum en þær eru alltaf jafn frumlegar og flott að sjá hvernig ímyndunaraflinu er gef- inn laus taumurinn,“ segir Hugi. Hugi segist yfirleitt eyða drjúg- um tíma í vinnu og getur því ekki gefið sér mikinn tíma til annars. „Við vinnum yfirleitt þangað til okkur dettur eitthvað sniðugt í hug,“ segir Hugi, sem horfði þó á viðureign Los Angeles Lakers og Detroit Pistons í NBA-deildinni. „Ég er gamall Lakers-aðdáandi en held samt svona óbeint með Detroit,“ segir Hugi Halldórsson að lokum. ■ Vinna og aftur vinna HUGI OG LÆRISVEINARNIR Hugi vinnur á Popptívi og þjálfar 5. flokk kvenna í knattspyrnu hjá FH. Fyrir þá sem ekki þekkja þá er Hugi þessi stóri í miðjunni. 20 12. júní 2004 LAUGARDAGUR ■ AFMÆLI ■ JARÐARFARIR ■ ANDLÁT GEORGE BUSH Forseti Bandaríkjanna fyrir repúblikana árin 1989-1992 er 80 ára í dag. 12. JÚNÍ Árni Steinar Jóhannsson, fyrrverandi alþingismaður, er 51 árs. Birgir Ármannsson alþing- ismaður er 36 ára. 11.00 Sigurþór Árnason frá Hrólfsstaða- helli, Freyvangi 9, Hellu, verður jarðsunginn frá Skarðskirkju. 14.00 Ingibjörg Svava Helgadóttir frá Hlíðarenda í Fljótshlíð, verður jarðsungin frá Hlíðarendakirkju. 14.00 Kristrún Sigurlaug Andrésdóttir frá Kálfárdal, Hásæti 5c, Sauðár- króki, verður jarðsungin frá Sauð- árkrókskirkju. „Tilfinningin er mjög sérstök en ég er þó ekki alveg búin að ná átt- um,“ segir Sigríður Matthíasdótt- ir en hún varði á dögunum dokt- orsritgerð sína í sagnfræði. „Ritgerðin skiptist í raun í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um íslenska þjóðernishug- myndafræði eins og hún var byggð upp á fyrri hluta 20. aldar en síðari hlutinn er um kven- frelsisbaráttuna sem fer fram á sama tíma og ég skoða hvernig þetta tvennt fléttast saman.“ Þjóðerni hefur verið viðloðandi rannsóknir Sigríðar allt frá því að hún vann að BA-verkefni sínu en hún lauk því árið 1994 og meistaraprófi ári seinna frá Lundúnaháskóla. Aðspurð hvort þjóðerniskennd sé rík hjá Íslendingum segir Sig- ríður hugmyndirnar vel þekktar. „Fólk þekkir þessar hugmyndir og þær eru fyrir hendi upp að ein- hverju marki. Við þekkjum til dæmis öll söguna af því þegar ís- lensku hetjurnar flýðu frá Noregi undan harðræði Haralds hárfagra og alla þessar gullaldargoðsagnir. Þetta eru allt hugmyndir sem voru búnar til ef svo má að orði komast og þær verða mjög sterk- ar í byrjun 20. aldarinnar.“ Sigríður fléttar í ritgerðinni rannsóknir sínar á sjálfsmynd þjóðarinnar saman við hugmyndir um sjálfsmynd kvenna. „Ég skoða tengsl kvenréttinda- og þjóðernis- baráttunnar. Á fyrri hluta 20. ald- ar er alltaf verið að ræða og skil- greina hvernig konur eru og hvert þeirra rétta eðli sé. Algengar hug- myndir voru að móðurhlutverkið og móðureðlið væri þeirra helsti eiginleiki og þeim hugmyndum fylgdi að konur væru ekki al- mennilega rökvísar og skynsam- ar,“ segir Sigríður og bætir því við að þessar hugmyndir séu mjög ólíkar Íslendingnum sem átti að vera skynsamur og rökvís. Ritgerð Sigríðar er gefin út af Háskólaútgáfunni en titill hennar er „Hinn sanni Íslendingur – þjóð- erni, kyngervi og vald á Íslandi 1900 - 1930“. Aðspurð hvað taki nú við segir Sigríður búast við að halda rann- sóknum áfram. „Svo langar mig líka mikið til að slappa svolítið af þar sem mikill tími og orka hefur farið í að koma ritgerðinni út,“ segir Sigríður að lokum. ■ DOKTORSVÖRN SIGRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR VARÐI Á DÖGUNUM ■ DOKTORSRITGERÐ SÍNA VIÐ HEIM- SPEKIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS. VIKAN SEM VAR HUGI HALLDÓRSSON ■ SJÓNVARPSMAÐUR Á POPPTÍVI HEFUR LÍTINN TÍMA TIL ANNARS EN AÐ VINNA. 12. JÚNÍ 1898 FILIPPSEYINGAR LÝSA YFIR SJÁLFSTÆÐI ■ ÞEIR BOLUÐU SPÁNVERJUM BURT MEÐ HJÁLP BANDARÍKJAMANNA. Þórður Pálsson frá Sauðanesi, lést mið- vikudaginn 9. júní. Ingibjörg Sturludóttir, áður til heimilis að Réttarholtsvegi 39, Reykjavík, lést miðvikudaginn 9. júní. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi (opa) og bróðir, Guðmundur Ágústsson hagfræðingur, Rekagranda 5, Reykjavík verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. júní, kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarþjónustu Karitas og Krabbameinsfélag Íslands. Moníka María Karlsdóttir Kristján Guðmundsson Þóra Margrét Pálsdóttir Stefán Ásgeir Guðmundsson Védís Skarphéðinsdóttir Katrín Guðmundsdóttir Haukur Valgeirsson barnabörnin Lara Valgerður og Þór Valgarð og systkini hins látna. EMILIO AGUINALDO Var leiðtogi uppreisnarmanna þegar Filippseyingar lýstu yfir sjálfstæði. 1940 Bretar og Frakkar gefast upp fyrir Þjóðverjum. Þjóðverjar lögðu í kjölfarið undir sig stærri hluta Frakklands. 1942 Anna Frank fær í hendurnar dag- bók í 13 ára afmælisgjöf. Mánuði seinna fer hún ásamt fjölskyldu sinni í felur fyrir nasistum. 1952 Fyrsti bandaríski sportbíllinn fram- leiddur. Hann fær vinnuheitið Opel en kemur á markað sem Corvette 1953. 1963 Medgar Evers skotinn fyrir utan heimili sitt í Jackson, Mississippi. Hann barðist fyrir réttindum blökkumanna og var drepinn af andstæðingi sínum Byron De La Beckwith. 1975 Indira Gandhi forsætisráðherra er dæmd fyrir kosningasvindl. 1987 Ronald Reagan skorar á Gorbatsjof að brjóta niður Berlínarmúrinn. 1994 O.J. Simpson sakaður um að hafa drepið fyrrverandi konu sína Nicole og Ron Goldman. Filippseyingar lýsa yfir sjálfstæði Íslensku hetjurnar tilbúningur SIGRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR Hefur unnið að rannsóknum á íslenskri þjóðernishugfræði og kvenfrelsisbaráttunni í byrjun 20. aldar. 20-21 tímamót 11.6.2004 18:19 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.