Fréttablaðið - 12.06.2004, Síða 10
12. júní 2004 LAUGARDAGUR
Innheimta skatttekna:
Talsverð
aukning
EFNAHAGSMÁL Innheimta skatt-
tekna ríkisins jókst um 14,4 pró-
sent á fyrstu fjórum árum þessa
árs miðað við sama tímabil í
fyrra samkvæmt því sem kemur
fram í vefriti fjármálaráðuneyt-
isins. Innheimta tekjuskatta er
2,3 milljörðum meiri en í fyrra,
raunhækkun innheimtu fjár-
magnstekjuskatts var 5,2 pró-
sent og tekjur ríkissjóðs af virð-
isaukaskatti hækkuðu um 12,5
prósent. Telur fjármálaráðu-
neytið þetta spegla áframhald-
andi umsvif í efnahagslífinu,
einkum í neysluútgjöldum heim-
ilanna. ■
Fiskifræði Hafrannsóknastofn-
unar gengur alls ekki upp
Margir sjómenn furða sig á að árangurinn af 20 ára veiðistjórnun af hálfu
yfirvalda skuli vera sá að þorskveiðar séu í sögulegu lágmarki ár eftir ár. Tími
sé til kominn að stokka spilin upp á nýtt og hafa samráð við sjómenn sjálfa.
SJÁVARÚTVEGUR „Þessar tillögur frá
Hafrannsóknarstofnun sanna
það enn einu sinni að starfsmenn
hennar vita ekkert í þennan heim
né annan þegar kemur að fisk-
veiðum,“ segir Ásgeir Guð-
bjartsson, fyrrverandi skipstjóri
á Ísafirði, vegna tillagna Hafró
fyrir næsta fiskveiðiár. Meta
menn innan hennar það svo að
skerða beri þorskkvóta um fjög-
ur þúsund tonn þar sem æti fyrir
þorskinn sé af
s k o r n u m
skammti meðan
ekki finnst nein
loðna. Á móti
auka þeir heim-
ildir í ýsu og ufsa
en það er skamm-
góður vermir þar
sem verð á mörk-
uðum fyrir þess-
ar tegundir eru
lág. Margir sjó-
menn sem Frétta-
blaðið hefur rætt
við eru orðnir
langþreyttir á hugmynda- og
samstarfsleysi Hafrannsókna-
stofnunarinnar.
Ásgeir segir víst að haldi sjór
áfram að hlýna við landið eins og
vísindamenn telja sé næsta víst að
þorskurinn hverfi lengra norður í
kaldari sjó en nú er. „Það er ekki
mikill þorskur hér á miðum fyrir
vestan og austan eins og sakir
standa og það er fyrirséð að veið-
ar á þorski minnka mikið næstu ár
hlýni sjórinn meira. Ég held ein-
dregið að þessir blessuðu fiski-
fræðingar eigi að víkka sjóndeild-
arhring sinn og jafnvel taka mark
á Jóni Kristjánssyni. Tuttugu ár
er nægur tími til að sjá að þessi
fiskifræði Hafrannsóknarstofn-
unar gengur alls ekki upp.“
Sigurður Sigurðsson, skipstjóri
á Brettingi frá Vopnafirði, tekur
alls hugar undir orð Ásgeirs. „Það
er fleira undarlegt á seyði en
hvarf loðnunnar. Hér fyrir austan
finnst ekki grálúðan lengur og
karfinn er ekki á sínum venju-
bundnu stöðum heldur. Hafró hef-
ur engar kenningar eða hugmynd-
ir um hvað þarna er á seyði og
virðist ótrúlega oft úti á þekju í
spám sínum og tillögum. Ráðgjöf
þeirra fyrir næsta fiskveiðiár er
út í hött og mér eru minnisstæð
orð Jakobs Jakobssonar, fyrrum
forstjóra Hafró, fyrir nokkrum
árum þegar hann dásamaði fisk-
veiðistefnu Kanadamanna á sama
tíma og hann fann veiðum í
Barentshafi allt til foráttu. Þrem-
ur árum síðar fannst ekki hornsíli
við Kanada en hvert metið af fæt-
ur öðru var slegið í Barentshafi.
Þetta segir allt sem segja þarf um
stofnunina.“
albert@frettabladid.is
,,Þremur
árum síðar
fannst ekki
hornsíli við
Kanada en
hvert metið
af fætur
öðru var
slegið í
Barentshafi.
Þau eru
ekki gift
Samkynhneigðir viljaJóhönnu í forystusveit
TENGDAPABBI ÓLAFS:
Reyndi að fyrirfara sér vegna offitu Dagnýer 149,5 kílóa Borgarnesmær Bls. 20-21
MANNRÉTTINDABARÁTTA HOMMA OG LESBÍA
Bls. 23-26
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 132. TBL. – 94. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2004 ] VERÐ KR. 295
South Beach megrunar-kúrinn tekur við af Atkins Bls. 45
Í mínum
augum er
Dorrit ekki
gift kona
Líkfundur í Japan:
Fundu
20 ára
gamalt lík
JAPAN, AP Lík karlmanns fannst í
yfirgefnu fjölbýlishúsi á dögun-
um, rúmlega tuttugu árum eftir
að hann er talinn hafa látist.
Líkið fannst þegar verkamenn
voru að ganga frá húsinu til niður-
rifs. Ekkert var eftir af mannin-
um nema beinagrindin og náttföt
sem hann var klæddur í. Á borði
við hlið hans var dagblað frá 20.
febrúar 1984 og á veggnum var
dagatal fyrir febrúar 1984.
Talið er að líkið sé af fyrrver-
andi starfsmanni fyrirtækisins
sem byggði fjölbýlishúsið. Það fór
á hausinn án þess að byggingin
væri tekin í notkun. ■
Júrí Andropov:
Deilt á minnisvarða
RÚSSLAND, AP Yfirvöld í Karelíu-
héraði í Rússlandi hafa reist
minnisvarða til heiðurs Júrí An-
dropov, fyrrum leiðtoga Sovét-
ríkjanna, sem var um fimmtán
ára skeið yfirmaður leyniþjónust-
unnar KGB. Fjöldi ungmenna
mótmælti þessu við afhjúpun
minnisvarðans og færði lögregla
fólkið á brott.
Andropov tók við leiðtoga-
embætti Sovétríkjanna árið
1982 en sást lítið opinberlega
eftir það, enda veikur mestan
hluta valdaferils síns sem lauk
árið 1984. Meðal þess sem hans
er minnst fyrir er að fyrirskipa
lögreglunni að leita uppi þá sem
svikust um að mæta í vinnu, var
það hluti af herferð hans gegn
spillingu. ■
UNNIÐ HÖRÐUM HÖNDUM Í SKÓLAGÖRÐUNUM
Þessir hressu krakkar voru í óða önn að setja niður grænmæti í skólagörðum í Grafarvogi
þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar þar að. Stúlkan fremst á myndinni heitir Berglind og
var hún að setja niður rauðkál.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
G
VA
MINNISVARÐINN
Sovétleiðtoginn fyrrverandi, Júrí Andropov,
var heiðraður á heimaslóðum.
FISKVEIÐAR
Þorsteinn Pálsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra, spáði því fyrir nokkrum árum að kringum
2001 -2002 yrðu veiðar íslenska fiskiskipaflotans rúmlega 400 þúsund tonn af þorski.
Staðreyndin er allt önnur og veiðiheimildir verða áfram í lágmarki næstu árin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
10-11 11.6.2004 21:04 Page 2