Fréttablaðið - 12.06.2004, Síða 23
LAUGARDAGUR 12. júní 2004
BUR‹ARÁS
Fjárfestingarfélagi› Bur›arás hefur
flutt starfsemi sína úr Pósthússtræti
í Sigtún 42 vi› hli› Ásmundarsafns.
Símanúmer fyrirtækisins er
sem fyrr 578 7800.
Bur›arás
flytur
í Sigtúni›
Sigtúni 42 105 Reykjavík
Sími 578 7800 Fax 578 7819 www.burdaras.is
að maður leyfi sér það. Sýningin
á í raun að vera hvatning. Hún á
ekki að gera alla að myndlistar-
mönnum heldur vera hvatning
til fólks um að það fylgi hjarta
sínu og geri það sem því dettur í
hug.
Þorvaldur hefur stigið niður
fæti á mörgum sviðum listalífs-
ins. Hann hefur málað, teiknað og
ljósmyndað, og skrifað sögur, ljóð
og leikrit svo eitthvað sé nefnt. Af
þessu mætti jafnvel ráða að hann
uni sér illa á sama stað til lang-
frama. „Nei, það er ekki það. Það
sem einmitt gerir líf mitt svo
skemmtilega flókið og jafnvel
skuggalegt er að ég yfirgef yfir-
leitt ekki það sem ég prófa. Það er
áfram með mér. Ég reyni hinsveg-
ar að fjölga deildunum sífellt af
því að það gefur mér mikið að sjá
eitthvað virka sem ég vissi ekki
að ég gæti.
Bjargvætturinn Megas
Þorvaldur er frá Akureyri, hin-
um blómlega bæ í norðri, og á
einum vegg Hafnarhússins má
sjá myndir sem tengjast bænum
með einum eða öðrum hætti.
Hann segir að Akureyringar hafi
ekki haft húmor fyrir þeim, þeir
hafi í öllu falli ekki keypt þær.
Og Þorvaldur á í sérstöku sam-
bandi við sinn gamla heimabæ.
„Ég þurfti að sætta mig við að
vera frá Akureyri og þegar ég
loksins gerði það öðlaðist ég
mikla orku,“ segir hann. „Fyrst
var ég stoltur af því að vera Ak-
ureyringur, ég var náttúrlega al-
inn þar upp. Svo fattaði ég að
það var hallærislegt að vera
stoltur af því að vera Akureyr-
ingur. Þá hætti ég því auðvitað.
Og um leið hætti ég að vera
stoltur af því sem ég var. Ég
hætti að treysta því sem ég hafði
áhuga á, treysti ekki æskuhetj-
unum mínum og öðru slíku.
Svo fór ég myndlistarskóla til
að verða alvöru myndlistarmaður
og gera eitthvað sem var alvöru
en ekki persónulegt og hallæris-
legt. Í skólanum lenti ég við hlið-
ina á Megasi og hann bjargaði
mér, ásamt reyndar öðru góðu
fólki. Hann eygði í mér áhuga
þegar hann sá mig mála portrett
af Ingibjörgu Þorbergs og vildi fá
að sjá meira í sama dúr af því að
hann hafði svo einlægan áhuga á
þessu. Hann var minn mikli
meistari og með því að hafa áhuga
á því sem ég var að gera þá gaf
hann mér í raun leyfi til að skoða
þetta allt saman betur og verða að
Akureyringi, verða aðdáandi
Matthíasar Jochumssonar og
mála portrett af hetjunum mín-
um.
Megas er því lykilmaður að
þessu leyti í mínu lífi því hann
hjálpaði mér að gangast við til-
finningum mínum. Hefði hans
ekki notið við hefði ég auðveld-
lega dagað uppi sem einhverskon-
ar þriðja kynslóð af Snorra Hjart-
arsyni skrifandi og þriðja kynslóð
af Súmurum, reynandi að búa til
djúp myndverk sem gengju upp
hugmyndafræðilega séð.
Mikilvæg sýning
Sýning Þorvaldar í Hafnarhúsinu
nefnist „Ég gerði þetta ekki“ og
tekur yfir fimm sali og hluta af
opnu rými hússins. Hún er gríð-
arumfangsmikil og á henni eru
ný og gömul verk. „Þessi sýning
er sérstaklega mikilvæg fyrir
mig,“ segir Þorvaldur. „Bæði er
þetta stærsta sýning sem ég hef
haldið og eins hef ég upplifað
mikla skekkju í sambandi við
bókmenntir annarsvegar og
myndlist hinsvegar og þá
skekkju langar mig að reyna að
leiðrétta. Ég hef, að mínu viti,
gert álíka mikið og mikilvægt í
báðum greinum en meðferðin á
rithöfundinum og myndlistar-
manninum er gjörólík. Sem rit-
höfundur hef ég fengið mjög fag-
lega meðferð, bæði í umræðum
og umfjöllun og það gefur mér
ákveðið leyfi til að hafa eitthvað
að segja. Myndlistarmenn hafa
hinsvegar ekki enn skapað sér
leyfi til að vera málsmetandi
raddir í samfélaginu. Það er
aldrei leitað til myndlistarmanna
um álit á einu eða neinu.
Mér finnst þess vegna mikil-
vægt að vera sýnilegur sem
myndlistarmaður og reyna að
smita einhverju af þeirri viður-
kenningu sem mér hefur hlotnast
í bókmenntunum yfir í myndlist-
ina. Svo hef ég líka sýnt miklu
meira erlendis og gefið meira út
af textum og leikritum hér heima
og það skapar líka ójafnvægi. Það
þekkja í raun fáir mig sem mynd-
listarmann. Þetta er því gullið
tækifæri til að máta mig og
kannski kemst ég að því að ég á
lítið erindi. En kannski kemur í
ljós einhver nýr flötur sem mun
gagnast mér í framtíðinni og þá er
tilgangnum náð.“
bjorn@frettabladid.is
Myndlistarmenn
hafa hinsvegar ekki
enn skapað sér leyfi til að
vera málsmetandi raddir í
samfélaginu.“
,,
[ ÞORVALDUR Í HNOTSKURN ]
FÆDDUR: 1960 og ólst upp á Akureyri.
NÁM: Gekk í Myndlistarskólann á Akureyri og fór síðar í Myndlistar-
og handíðaskóla Íslands og enn síðar í framhaldsnám til Hollands.
STARFSFERILL: Hefur unnið á mörgum sviðum listalífsins, auk þess að
sinna kennslu og starfa á auglýsingastofu.
EKKI EINHAMUR: Þorvaldur er ekki aðeins fjölhæfur myndlistarmaður
heldur líka rithöfundur og leikskáld, til dæmis hafa bækurnar um
Blíðfinn raðað rósum í hnappagöt hans.
VÍÐFÖRULL: Myndverk Þorvaldar hafa verið sýnd víða um heim og
bækur hans komið út í nokkrum löndum. Hann hefur einnig hlotið
verðlaun fyrir myndlist, þar á meðal úr verðlaunasjóði Richards Serra.
22-23 þorvaldur þors- lesið 11.6.2004 18:04 Page 3