Fréttablaðið - 12.06.2004, Side 25
þeir afslappaðir. Mér finnst oft
vanta þá hugsun í hönnun öldur-
húsa,“ segir Sissa, sem er orðin
þreytt á að vera boðið til sætis á
prikum við alltof há borð. „Þannig
líður manni ekki vel. Fær ekki
þessa tilfinningu að maður sé
heima í stofu.“
Niðri í kjallara ríkir austur-
lensk stemning innan um kelerís-
legar lokrekkjur og þrjú hundruð
vindlahólf úr dýrindis harðviði,
eitt af þremur ummerkjum hönn-
uðarins Terence Conran, sem
fengin var til að skapa hinn upp-
runalega Rex. Reyndar eru marg-
ir lyklanna týndir og engir afsag-
aðir puttar í þeim hólfum sem tek-
ist hefur að opna. Mafíósasögurn-
ar úr kjallaraherbergjum Rex
reynast uppspuni eða ýkjur. Hinar
tvær heimildirnar um sköpunar-
verk Conrans eru stálklæddur
símaklefi og náðhúsin, sem fá að
haldast óbreytt.
„Rex var á sínum tíma óhemju
kaldur staður og ópersónulegur.
Helst þurfti maður að mæta í kór-
ónafötunum og leið alls ekki eins
og heima hjá sér,“ segir Leifur og
telur að í því felist skýringin á
hvers vegna hin mikils metna
hönnun Conrans fékk ekki að
standa tímans tönn og verða sí-
gild, en var þess í stað sópað á
haugana af nýjum eigendum þeir-
ra tíma.
„Feillinn hjá Conran lá í kuld-
anum. Hann notaði mikið málm og
hvítt, og niðurstaðan var skortur á
hlýleika. Auk þess bergmálaði
hljóðið milli veggja, sem var bein-
línis óþægilegt,“ bætir Sissa við.
„Ég held að sá góði hönnuður hafi
ekki hugsað út í hvernig veturnir
eru hér á landi. Það fór ekki nógu
vel um gestina, þrátt fyrir flott-
heitin.“
Þess má geta fyrir fróðleiks-
fúsa að Terence Conran setti á fót
Habitat-keðjuna og rekur í dag
Conran-búðir og Conran-veitinga-
hús um víða veröld. Leifur hefur
komið inn á nokkra þeirra, sem
hann segir bera hlýleikanum
merki. „Ég held að Rex eins og
Conran skapaði hann, hafi verið
gerður fyrir stærra samfélag þar
sem hægt var að ætlast til að gest-
irnir væru allir milljarðamæring-
ar. Auðvitað vilja allir taka þátt í
þeim leik, en finnst hann ekki
þægilegur til lengdar. Því þótt við
flýjum raunveruleikann með því
að sækja slíka staði, þá var þessi
leikur of stífur. Mér fannst Rex
afar flottur, elegant og stílhreinn,
en mér sýnist að þessi hreini
naumhyggjustíll endist styttra en
ella.“
Pönkuð óþekkt og bóhemlíf
Þeir staðir sem dúkkað hafa
upp í húsnæði Egils Jacobsen á
eftir Rex fengu allir fremur brátt
andlát. Stemningin er vissulega
einstök innan dyra, en harla út í
draugaleg. Spurning hvort ein-
hver bölvun hvíli á rekstri slíkra
gleðihúsa í formfagurri umgjörð-
inni. Sissu finnst góður andi ein-
kenna heimili Rex og Leifur tekur
undir það. „Það er áberandi
skemmtilegur andi þarna inni og
víst hafa hugmyndirnar verið fín-
ar um rekstur eftir daga álna-
vörubúðarinnar. Hins vegar held
ég að fallið felist í því hversu
ópersónulegir staðirnir hafa ver-
ið. Húsnæðið, sem slíkt er eitt það
fegursta í borginni og býður upp á
að gera eitthvað hlýlegt, um leið
og dálítið mikilfenglegt. Hingað
til hefur ekki verið einblínt á þá
hússins kröfu, heldur valið hið
kuldalega. Starfsemin þarf að
passa
umhverfinu svo að dæmið
gangi upp til enda. Því ef maður
undirstrikar bara þetta fína, fína
og gerir það flatt, þá tapar maður
þessari áþreyfanlegu orku hér
innandyra og staðurinn verður
ekki lengur ævintýralegur, heldur
geldur.“
Sissa segir stemninguna á Rex
koma til með að einkennast af
mixtúru síðpönks og bóhemlífs.
Að þar muni verða óþekktin alls-
ráðandi, en staðurinn er hugsaður
fyrir aldurshópinn 25–50 ára, tón-
listin verður afbragð og vínúrval-
ið vandfundið að verðleikum.
Klæðaburður verður frjáls og að
eigin vali; allt frá gallabuxum upp
í fína galakjóla, ef því er að skip-
ta.
„Samantekið verður Rex fyrst
og fremst íslenskur staður,“ segir
Leifur og á ekki bara við hið aug-
ljósa, sem er íslenska skjaldar-
merkið, heldur þjóðarsálina.
„Íslendingar eru dálitlir villingar,
og það get ég dæmt um hafandi
búið í Skandinavíu í aldarfjórð-
ung. Íslendingar eru eins og svart
og hvítt, miðað við hinar Norður-
landaþjóðirnar. Við erum óþekkt-
arangar og það kemur til með að
endurspeglast í andrúminu. Mér
finnst voða gott að vera kominn
heim og mega vera óþekkur.“
Sissa bætir við að Rex prýði ís-
lenskar ljósmyndir í stað hefð-
bundinna sófamálverka. Það verði
munúðarfullar myndir með list-
rænu yfirbragði og sumar meira
að segja hreyfanlegar. „Þetta er
voða gott fyrir okkur ljósmyndar-
ana því ljósmyndun hefur ekki
fengið nógu mikinn meðbyr sem
list hér á Íslandi. Hún er komin
miklu lengra í útlöndum. Og þótt
einstaka listunnandi sé farinn að
nota ljósmyndir á veggina heima,
er engu að síður tímabært að
vekja athygli á að ljósmynd er
jafngild sófamálverki.“
Skrautlistamenn með þroskað-
an smekk
Leifur og Sissa reka saman
Ljósmyndaskóla Sissu og Leifs.
Sissa lærði fagið í Kaliforníu, en
Leifur í Svíþjóð. Saman segja þau
innanhúshönnun ekki vera svo
ótengda starfi ljósmyndarans.
„Í raun er þetta spurningin um
að búa til mynd; en þrívíða mynd.
Að vera ljósmyndari byggir mikið
á því að stílisera, og þannig má
segja að við séum hálfgerðir
skrautlistamenn. Gefum okkur
ekki út fyrir að vera innanhús-
arkitektar, en tókum þetta að okk-
ur vegna þess að við vorum beðin
um það. Sjálfsagt verða einhverj-
ir til að skammast yfir útkomunni,
en ef ekki, þá hefur okkur senni-
lega mistekist.“
Og þótt Leifur og Sissa séu
ekki lengur í aldurshópi þeirra
sem skemmta sér allar helgar,
segja þau engan vanda að hanna
skemmtistað fyrir yngri kynslóð-
ir. „En í raun erum við að skapa
stað sem er tímalaus. Þetta er
ekki pakki, sóttur annars staðar
frá. Á einhvern hátt þýðir það að
maður höfðar til fólks með aðeins
þroskaðri smekk, en ekki beinlín-
is yngstu djammboltanna,“ segir
Leifur og bætir við að slíkt hafi í
för með sér að gestirnir geti leyft
sér að drekka annað en kassavín
hússins. „Á þann hátt verður stað-
urinn fínn, án þess að vera snobb-
aður.“
thordis@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 12. júní 2004 25
Hús Egils Jacobsen er eitt fegursta listaverkið í húsaflóru Reykjavíkurborgar. Súlur og
rósettur fá að njóta sín, enda stórbrotið handverk og merkar minjar.
Nafnið Rex merkir konungur og þótti húsráðendum á Rex við hæfi að gera íslenska
skjaldarmerkinu frá tímum Kristjáns X hátt undir höfði, en til voru afsteypur af því,
útskorið í tré.
24-25 leifur og Sissa 11.6.2004 15:15 Page 3