Fréttablaðið - 12.06.2004, Síða 26
Teiknimyndasöguhetjan Frank
Castle, sem er bestur þekktur sem
The Punisher, fékk sig fullsaddan
af dugleysi yfirvalda og þeim
vettlingatökum sem dómkerfið
tekur á glæpamönnum þegar fjöl-
skylda hans féll fyrir hendi
mafíósa. Þá gaf sig eitthvað í
höfði þessa fyrrverandi land-
gönguliða í Bandaríkjaher, hann
klæddi sig í svartan galla með
risastórri hauskúpu á maganum,
dustaði rykið af stærstu byssun-
um í vopnabúrinu sínu og hélt út í
nóttina til þess að leita hefnda að
hætti kappa Íslendingasagnanna.
Hann var ekki lengi að koma
banamönnum konu sinnar og
barna í hel en hélt samt áfram að
drepa misindismenn og er enn að.
Drápin byrjuðu 1974
Refsarinn kom fyrst fram á
sjónarsviðið í Spiderman-blaðinu
The Amazing Spiderman #129 í
febrúar 1974. Þar lýsti J. Jonah
Jameson, ritstjóri The Daily
Bugle, honum sem „...fréttnæm-
asta fyrirbærinu sem skotið hefur
upp kollinum í New York síðan
Boss Tweed var og hét“. Jameson
er eins og flestir vita yfirmaður
ljósmyndarans Peter Parker, sem
breytir sér í Köngulóarmanninn
utan vinnutíma. Lói og Refsarinn
lenda að sjálfsögðu upp á kant
enda er Köngulóarmaðurinn góð-
ur gæi sem kemur skúrkunum
bara í hendur lögreglunnar á með-
an The Punisher drepur þá.
Þegar Refsarinn mætti til leiks
í Spiderman #129 var ekkert vitað
um hann annað en það að hann var
leigumorðingi sem drap aðeins
glæpamenn. Hann væri hand-
bendi annars skúrks, Sjakalans,
sem taldi honum trú um að
Köngulóarmaðurinn væri morð-
ingi sem ætti skilið að deyja. „Ég
drep aðeins þá sem eiga skilið að
deyja og Spiderman er einn af
þeim.“
Þegar þessir andstæðingar
hittast augliti til auglitis gerir The
Punisher frekari grein fyrir starfi
sínu: „Þetta er ekkert sem ég nýt
þess að gera heldur er þetta bara
einfaldlega eitthvað sem verður
að gera. Og ég hef engu að tapa þó
ég hætti því sem eftir er af lífi
mínu til þess að útrýma meindýr-
um á borð við þig“.
Misskilningurinn var þó leið-
réttur og síðan þá hafa Spiderman
og The Punisher stundum neyðst
til að snúa bökum saman í barátt-
unni gegn glæpum þó þeim sé það
báðum þvert um geð enda engir
kærleikar á milli þeirra. Þess á
milli reynir Spiderman svo að
koma lögum yfir Refsarann þar
sem hann er vissulega lögbrjótur
þó hann hljóti að vera aðalstjarn-
an í blautum draumum öfga-
hægrimanna út um allan heim.
Dýrið gengur laust
Það var myndasöguhöfundur-
inn Gerry Conway sem skóp The
Punisher og ætlaði honum ekki
stórt hlutverk í upphafi. „Hann
var peð í höndum annars illmenn-
is, The Jackal, átti bara að vera
skúrkur í þessu eina blaði og vera
sigraður í lokin.“ Þetta gekk þó
ekki eftir þar sem höfundurinn
féll fyrir sköpunarverki sínu.
„Rödd hans varð sterkari en ég
átti von á svo ég gerði meira úr
honum.“
Lesendur deildu tilfinningum
Conway og The Punisher sló strax
í gegn og þau fantabrögð sem
hann bætti glæpalýðinn féllu í
kramið hjá myndasögunördum.
Hann var vinsælasta gestastjarn-
an hjá Marvel og skaut upp kollin-
um í sögum um Spiderman,
Daredevil og Captain America
sem allir reyndu að binda endi á
morðæði Refsarans.
Vinsældir Refsarans héldu
áfram að vaxa en þrátt fyrir það
treysti Marvel sér ekki til að
sleppa honum lausum í eigin blaði
vegna þess hversu ofbeldisfullur
hann var. Þetta breyttist árið 1986
þegar tíðni glæpa í Bandaríkjun-
um hafði snaraukist og fólk óttað-
ist stöðugt um öryggi sitt á förn-
um vegi. Þá greip Marvel tæki-
færið og sleppti The Punisher
lausum og fólki virtist líka það
býsna vel að vita af morðóðum
brjálæðingi sem kálaði glæpa-
mönnum í kippum á götum New
York-borgar.
Refsarinn gekk þó of langt og
missti til að mynda vitið algerlega
um tíma og fór að skjóta fólk sem
henti rusli á förnum vegi og gekk
yfir götur á rauðu ljósi. Þessi
magnaða persóna varð skyndilega
of stór biti fyrir fólk að kyngja og
árið 1996 var framleiðslu á öllum
Punisher-bókum hætt. Versta
stund Refsarans var líklega bíó-
mynd um hann með sænska
vöðvatröllinu Dolph Lundgren í
hlutverki Castles. Myndin var
vonlaus og fékk dóma og viðtökur
eftir því. Tími Refsarans var
greinilega liðinn.
Velkominn aftur, Frank
Það segir því líklega mest um
kraftinn í The Punisher að hann
hefur aftur endurheimt fyrri vin-
sældir sínar og gott betur og er
mættur til leiks í nýrri stórmynd
sem verður frumsýnd á Íslandi að
viku liðinni. Það er töffarinn Tom
Jane sem hefur tekið að sér að
hressa upp á ímynd Refsarans sem
Lundgren gekk algerlega frá á sín-
um tíma. Jane virðist hafa tekist
þetta ætlunarverk en hann þykir
standa sig með mikilli prýði í þess-
ari öflugu mynd sem hefur það
fyrst og fremst umfram aðrar
teiknimyndasöuhetjumyndir að
hún er miklu ruddalegri sem er í
fullkomnu samræmi við eðli aðal-
persónunnar.
Nýja myndin byggir að hluta til
á bókinni Welcome Back Frank
eftir Garth Ennis, höfund The
Preacher, en hann hóf Punisher til
virðingar á pappírnum á ný. Ennis
gengur út frá því að Frank sé geð-
bilaður fjöldamorðingi og morðið á
fjölskyldu hans hafi ekki ráðið úr-
slitum. Í sögunni Born fylgir hann
Frank eftir í Víetnam og þar birtist
hann sem snarbrjálaður morðingi.
Hann kemur heim blóðugur upp að
öxlum og gerist ábyrgur fjöl-
skyldufaðir en það er deginum
ljósara að innra með honum blund-
ar óður morðingi sem býður eftir
tilefni til að brjótast út.
„Ennis gerði stóra breytingu á
persónunni og hann er orðinn rosa-
lega vinsæll aftur,“ segir Pétur
Yamagata, umsjónarmaður
myndasögudeildar Nexus. „Á ní-
unda áratugnum varð hann venju-
leg andhetja, svolítið líkur Batman
og fleirum. Þetta varð þurrt og
leiðinlegt efni sem hætti að selj-
ast.“
thorarinn@frettabladid.is
26 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
TILBÚNIR OG ELDAÐIR KJÚKLINGARÉTTIR
Kjúklingur sem framleiddur er undir vörumerkinu Eldfugl
hefur verið eldaður og er tilbúinn til notkunar.
Eldfugl í magnpokum fæst með Hunangssósu,
Hvítlaukssósu og Buffalósósu.
Reykjagarður hf
Eldfugl - Tilbúinn á grillið
TOM JANE
Þykir ofurtöff í hlutverki The Punisher og valtar yfir minninguna um Dolph Lundgren sem lék
Refsarann í ömurlegri mynd árið 1989. Þar virtust menn skammast sín fyrir að vera að gera
bíómynd byggða á myndasögu og tónuðu alla helstu kosti persónunnar niður en nú er
Refsarinn mættur til leiks í öllu sínu veldi og sallar niður bófa undir merkjum hauskúpunnar.
Myndasögupersónan The Punisher birtist fyrst með hauskúpuna framan á bolnum sínum í Spiderman-blaði árið 1974. Hann sló í gegn
en hvarf af sjónarsviðinu á tíunda áratugnum. Hann er nú kominn aftur bæði í bíómynd og bókum og hefur aldrei verið öflugri.
Refsarinn er kominn
aftur og er öskureiður
THE PUNISHER
Er orðinn kolbrjálaður fjöldamorðingi í meðförum myndasöguhöfundarins Garth Ennis.
Hann gætir þess þó enn að drepa ekki saklaust fólk en menn þurfa ekki að gera mikið af
sér til að komast á dauðalistann. Refsarinn hefur þó líklega aldrei verið í meira stuði og
aðdáendur hans fylgjast spenntir með þjóðfélagshreinsunum hans.
26-39 (26-27) Punisher/Kristinn 11.6.2004 15:35 Page 2