Tíminn - 19.11.1972, Side 13
■ • M :
Swmmmámgmr 1». má*ember 1»72
Hve hættuleg
eru eiturefni?
Grein þessi birtist 8. april, 1971,
i enska timaritinu AVAKE!
Svanberg K. Jakobsson þýddi.
Þegar lögregla drap fjóra stú-
denta við Kent-rikisháskólann i
Ohio i Bandarikjunum i mai 1970,
vakti það athygli allrar banda-
risku þjóðarinnar. Þó er sagt, að
þessa sömu helgi hafi sautján
unglingar látizt af eiturlyfja-
neyzlu i New York-borg einni.
Yfir 44.000 Bandarikjamenn
hafa verið drepnir i Vietnam-
striðinu. Þetta hefur orsakað
reiði margra og valdið alvar-
legum deilum hjá borgurunum.
Þó er sagt, að á sama timabili
hafi yfir 140.000 Amerikumenn
látizt af vöidum eituriyfja.
Hvers vegna valda slik dauðs-
föll ekki reiði manna? Ein ástæð-
an fyrir þvi er, að margt ungt
fólk, auk fjölda fullorðinna, trúir,
að eiturlyfjaneyzla sé ekki endi-
lega röng eða skaðleg. Fólk þetta
segir, að ekki allir, sem neyta
slikra lyfja, skaðist alvarlega eða
deyi. Það er alveg rétt. En hitt er
lika alveg rétt, að á flestúm
stöðum skaðast eða deyja fleiri af
völdum eiturlyfja en af völdum
byssukúlna!
IIVAÐ ER A SEYÐI?
Hvað er á seyði i heimi eitur-
lyfjanna, sem veldur þvi, að sér-
fræðingar hrista höfuð sin
vantrúarfullir? Þessi gifurlega
aukning eiturlyfjaneyzlu veldur
þvi. Astand sem þetta er gjarnan
kallað faraldur.
A árunum 1960 til 1970 tvöfald-
aðist'fjöldi nýrra eiturlyfjaneyt-
enda i Sviþjóð á tveggja og hálfs
árs fresti að jafnaði. Nú undan-
farið hefur fjöldinn tvöfaldazt á
tólf mánaða fresti! I Bandarikj-
unum hefur eiturlyf janeyzla
skollið yfir eins og flóðbylgja.
Sumir áætla, að yfir tuttugu mill-
jónir manna hafi nú neytt
eiturlyfja, og þeim fjölgi um sjö
af hundraði á mánuði hverjum!
John Ingersoll, forstöðumaður
stofnunar þeirrar, sem hefur með
neyzlu ávana- og fiknilyfja að
gera f Bandarikjunum, lýsti þvi
yfir, að eiturlyfjaneyzla hafi
„skyndilega orðið slikt vanda-
mál, að óttalegt sé til að hugsa ...
og vaxi með uggvænlegum
hraða.”
Ungir sem gamlir, rikir sem
fátækir, hvitir sem svartir eiga
hlut að máli. Ekki er langt siðan
synir eftirfarandi þekktra manna
voru handteknir: Hins látna
öldungardeildarþingmanns Ró-
berts Kennedys; mágs hans,
Sargents Shrivers; Unruhs, þing-
manns fulltrúadeildar Kaliforniu*,
og Cahills, rikisstjóra New
Jerseyfylkis.
Verzlunarráð New York skýröi
svo frá, að eiturlyfjaneyzla i við-
skiptaheiminum ykist „uggvæn-
lega” og sé orðin „óheillavænlegt
vandamál i örum vexti.” Að sögn
sjónarvotta er hún einnig orðin
„faraldur” meðal hermanna i
Vietnam. Það er jafnvel að verða
tizka meðal fullorðinna að bjóða
marijuana i samkvæmum, jafn
tilfallandi og vindlingar eru
boðnir.
I mörgum háskólum heyrir sá
nemandi til undantekninga, sem
ekki hefur reynt a.m.k. eitt eitur-
lyf. Eiturlyfjaneyzla er þá ekki
lengur einskorðuð við æðri skóla.
Eins og eldur i sinu geystist hún
nú inn i barnaskólana, jafnvel
niður i neðstu deildir. Edward
Kelly, forstöðumaður þeirrar
stofnunar, sem reynir að hafa
hemil á eiturlyfjaneyzlu á New
York svæði, sagði: „Hreinskiln-
ingslega sagt eru nemendur i þvi-
liku hugarástandi nú á timum, að
þeir munu reykja, éta, anda að
sér eða dæla i sig hverju þvi, sem
gefur þeim spennu’.
Er öll þessi eiturlyfjaneyzla
einungis tizkufyrirbæri, sem liða
mun hjá? Takið eftir þessu:
„Ef þú heldur, að heróin sé
alvarlegt vandamál, þá biddu
bara við. Með núverandi hraða
mun hver einasti æðri skóli og
barnaskóli fljóta i heroini innan
tveggja ára.” — Dr. D. A. Louria,
forseti eiturlyfjaneyzluráðs New
York fylkis.
„Neyzla ólöglegra eiturlyfja á
sér of djúpar rætur i skólum, til
þess að vera einungis tízkufyrir-
bæri. Flestir geðlæknar, sem hafa
rannsakað einstakar hvatir nem-
enda, er reynt hafa eiturlyf,
benda á ótal ástæður fyrir þvi, að
vandamálið getur einungis versn-
að.”-----The Poisoned Ivy eftir
William Surface.
Þetta er i samræmi við spá-
dóma Bibliunnar. Hún kaliar
okkar tima „hina siðustu daga”
og sagöi fyrir, að menn mundu
verða „sérgóðir”, „bindindis-
lausir”, eða „án sjálfstjórnar,
NW”, „elskandi munaðarlifiö.”
— 2. Timóteusarbréf 3. kafli. vers
1-5.
Sumir fullyrða samt sem áður,
að eiturlyfjaneyzla sé ekki svo
slæm, enda þótt hún færist i vöxt.
Þeir segja, að það sé ekki skað-
legt að neyta „mildari” eitur-
lyfja og benda á marijuana sem
dæmi.
ER MARIJUANA SKAÐLAUST?
Marijúana er unnið úr blöðum
Cannabis sativa jurtarinnar,
vafið innan i þunnan pappir og
reykt. Margir fullyrða, að skað-
laust sé að reykja marijúana, En
þetta er það sama og var einu
sinni sagt um vindlingareyk-
ingar. Nú vitum við, að vind-
lingar drepa menn.
Marijuana er flokkað sem
„milt” skynvillulyf (hallucin-
ogen). Ahrifin geta orðið einhvers
konar vima, sem er einmitt
ástæðan fyrir þvi, að flest fólk
reykir það. Það vill komast „hátt
upp” til þass aö „liða vel”. En
einmitt sú staðreynd, að fólki
finnst það vera „hátt uppi”,
sýnir, að hugur þess, eða skynjun
verður fyrir áhrifum.
I fyrstu má vera, að marijúana
reykingar hafi ekki áberandi
áhrif. Þetta verður fólki iðulega
hvatning til þess að halda áfram.
Það hefur á tilfinningunni, að
skaðlegu áhrifin hafi verið ýkt
verulega. Áframhaldandi notkun
getur hins vegar leitt af sér sterk-
ari áhrif, það er að segja, eitur-
áhrifin magnast. Sterkara marí-
júana er fljótvirkara i þvi efni.
Maijúana hefur truflandi áhrif
á likamsstarfsemina. Hjart-
sláttur verður hraöari og
likamshitinn getur hækkað öeðli-
lega. Slimhimna iungnapipanna
getur bólgnað. Sé neytt stærri eða
sterkari skammta, getur það haft
i för meö sér greinilegar skyn-
villur.
Tilraun gerð á bifreiöarstjórum
undiráhrifum marijúana, leiddi i
ljós margs konar truflanir. Sumir
héldu sig vera á rennibraut með
beygjum og hæðum, enda þótt
vegurinn væri sléttur. Einn öku-
mannanna hélt sig vera á hvolfi.
Hann sagði einnig, að sér virtist
vera púði milli fótar sins og hem-
ilsins. Sumir ökumenn héldu sig
hafa ekið i hálfa klukkustund.
Raunverulega var timinn ekki
nema þrjár minútur. Dómgreind
þeirra var skert, hvað svo sem
þeir sjálfir héldu.
David Archibald, fram-
kvæmdastjóri stofnunar, er
vinnur aö rannsóknum á eitur-
lyfjaneyzlu, sagði:
„Það er engum vafa undir-
orpið, að neyti 100 manns mari-
júana, munu sumir verða fyrir
skaðlegum áhrifum. Viss hluti
þeirra mun lenda i mjög miklum
erfiðleikum vegna neyzlu þessa
eiturlyfffa Sé neytandinn i geðs-
hræringiíýjftun marijuana auka á
slika tilhneigingu og valda þung-
lyndi. Hafi neytandinn' tilhneig-
ingu til aö fá æöisköst, má vera,
að marijúana kalli fram slikt og
neytandinn gangi berserksgang.”
IIVER GETUR AFLEIÐINGIN
ORÐIÐ?
Þeim, sem reykir marijúana,
mun reynast langtum auðveldara
að neyta „sterkra” lyfja, heldur
er þeim, sem ekki reykir það.
Hann kemst i samband við eitur-
lyfjaneytendúr, sem eru fórnar-
lömb eiturlyfjasala. Slik sam-
bönd geta oft haft þau áhrif á
hann, að hann reyni sterkari
eiturlyf.
Á allra siðustu árum hefur
þeim nálægt 50.000, sem áður
reyktu marijúana i Bandarikj-
unum, fjölgaö upp i nær 15
til 20 milljónir, sem neyta þess
nú eða hafa reynt það. Og þeim
fáu, sem neyttu sterkari lyfja,
hefur fjölgað upp i nokkrar
milljónir. Saga flestra þeirra,
sem neyta sterkra lyfja, sýnir,
að þeir byrjuðu á þvi aö reykja
marijuana. Þvi segir hr. Inger-
soll: „Það virðisteðlilegtað telja,
að hefðu margir einstaklingar
ekki komizt I kynni við mariju-
ana, hefðu þeir aldrei byrjað á þvi
að neyta sterkari og hættulegri
lyfja”.
Á umræðufundi i skóla sagði
ungur nemandi við fyrrverandi
eituriyfjaneytanda, sem neytt
hafði „sterkra” lyfja: „Okkur
finnst, að við getum látið mari-
júana nægja. Við teljum ekki þörf
á þvi að fara yfir i sterk lyf. Hvað
finnst þér um þetta?”
Eiturlyfjaneytandinn fyrrver-
andi, sautján ára gamall, og einn
úr hópi tólf fyrrverandi eitur-
lyfjaneytenda, sem tóku þátt i
umræðufundunum, svaraöi: „En
það héldum við allir. Allir saman.
Og veiztu hvernig fór? Við létum
allir ánetjast. Viö gátum hætt, en
gerðum það ekki. Og þaö munuð
þið heldur ekki gera, svo þiö
skuluð aldrei byrja!”
NEYZLA STERKRA LYFJA —
SORG ARSAGA
Af sterkum lyfjum má nefna
LSD (lysgeric sýru diethýiamið),
deyfiiyf, eins og heróin, örvandi
efnr, sem kallast amphetamin, og
róandi efni, er kallast barbitúröt.
Ný afbrigöi koma fram árlega.
Með litilli ögn af LSD má fara I
skynvillu „ferð” sem tekið getur
frá átta til sextán klukkustundir
Truflun veröur á tima-, fjar-
viddar-, litar-, sjónar- og
heyrnarskynjun. Dómgreind
biður alvarlegan hnekki. Skyn-
truflanir geta komið fram dögum
eða jafnvel mánuðum eftir að
skammturinn var tekinn.
Feitur maður hafði tekið inn
LSD. Hann tók sér hnif i hönd og
byrjaði að flá fitu af likama sin-
um. Honum blæddi út. Annar
maður stakk tengdamóður sina
105 hnífsstungum. Siðar minntist
hann þess ekki aðhafamyrt hana.
Enn aðrir hafa verið lagðir inn á
geðsjúkrahús, Tveggja og hálfs
árs gamall drengur tók eina af
LSD töflum móður sinnar af
slysni. Hann var lagður inn á
sjúkrahús i alvarlegu ásigkomu-
lági. Margir hafa bakað sjálfum
sér og öðrum tjón á einn eða ann-
an hátt.
Heróin er unnið úr ópium og er
eitt hættulegasta eiturlyfið og
það, sem menn verða hvað helzt
ofurseldir. Neytandinn verður
kærulaus, hann finnur til sjálfs-
trausts og velliðanar og er „hátt
uppi”. Þegar hann hins vegar
heidur neyzlunni áfram, þarf
hann sifellt meira magn til þess
aö ná þvi stigi. Hann verður
algjörlega ofurseldur þessu eitur-
lyfi.
Heróinneytandi er iöulega van-
nærður, þar sem hann finnur ekki
til svengdar. Hann þarf gjarnan
að greiða svo hátt verö fyrir heró-
inið sitt, að hann hefur ekki efni á
að kaupa sér boölegan mat. Satt
að segja verður hann venjulega
að stela, til þess að standa undir
þeim gifurlega kostnaöi, sem
venjur hans hafa i för með sér.
Þar sem hann er vannærður,
hefur hann litiö mótstööuafl gegn
sjúkdómum. Venjulega sótt-
hreinsar hann ekki heldur
sprautunálarnar og sýkist þvf
Framhald á bls. 19
í þessari nýju fullkomnu, hljóðlátu Kenwood
uppþvottavél eru hringfara armar, sem úða
vatninu á ailan uppþvottinn.
Innbyggður hitari. Einfaldir stjórnrofar.
Þrjú þvottakerfi. Öryggislæsing á hurðinni.
Stærð: Hæð (á hjólum) 85 cm,breidd 54 cm,
dýpt 58 cm og hún tekur fullkominn borð-
búnað fyrir 8 manns. — Greiðsluskilmálar.
Ódýrasta uppþvottavélin á markaðnum.
Verð kr. 31.500.00.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta.
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
m
M ■
w!
'
fe I