Tíminn - 19.11.1972, Qupperneq 20
/ Pabbi þinn sagöi
okkur að vera inni
^ Stebbi minn. <m
AAamma. Hlaöan
stendur i björtu báli
Hann er aö koma til )
baka Geiri. AAig N
langaði ekki aö kveikja
i, en hvaö vartil bragðs,
P^En mundu, að
hann ætlaði ekki
aöskjóta Benna.^
Hann hefði eyðilagt
eldflaugina okkar.
ReynduaS'
AAaria
Stebbi
Stebbi — skrúfaðu
frá vatninu.
handtakahannj
^ en ekki )
■I skjóta />
@ King Features Syndicate, Inc., 1972. World rignts reservet
! l) k YT
Engan æsing, látum
hann berjast við
eldinn.
Stebbi ekki
standa svona
nærri eldinum
Við getum tekið
hann núna.
Stebbi
Stebbi
Framhald
I
í
1
Þrjátíu þúsund
sjá Guðföðurinn
JGK—Reykjavik.
Þaö er nú ljóst að kvik-
myndin Guöfaðirinn, sem nú
er sýnd i Háskólabiói verður
ein af fjölsóttustu myndum
sem sýndar hafa verið hér-
lendis. Þegar Timinn hafði
samband við bióið i vikunni
sem leiö höföu 28500 manns
séð myndina og má þvi reikna
með aö þegar sýningum lýkur
veröi sýningargestir komnir
töluvert yfir þrjátiu þúsund.
Guðfaðirinn slær þó engin
met að þessu leyti. Myndin A
hverfanda hveli mun vera sú
sem flestir Islendingar hafa
séö. 1 fyrra var hún sýnd i
Gamla biói og þá sáu hana
u.þ.b. 28000 manns en hún var
einnig sýnd hér 1959 við mikla
aðsókn. Aðrar myndir, sem
hafa verið hvað fjölsóttastar
hér á landi eru svo ólikar
myndir sem Sound of Music
eða Tónaflóð eins og hún hét á
islenzku og Táknmál ástarinn-
ar.
1
I
|
Heldur Brandt
velli?
NTB-Bonn
Kosningabaráttunni i V-Þýzka-
landi lauk i gær.en i dag ganga
40 ,8 milljónir manna að kjör-
borðinu og greiða atkvæði um,
hvort núverandi samsteypustjórn
jafnaðarmanna verður áfram við
völd, eða hvort kristilegir og
borgaflokkurinn fá völdin.
A siðasta kosningafundi sinum
i bænum Paderborn, sagði Willy
Brandt, að ef hann yrði kanslari
áfram, væri hann fús til að fara
fyrri jól til A-Berlinar og udnir-
rita sáttmálann milli Austur- og
Vestur-Þýzkalands.
Siðustu skoðanakannanir hafa
sýnt, að stjórnarflokkarnir hafa
meirihluta. Þess má geta, að
konur eru i talsverðum meirihl.
kjósenda 21,8 milljón á móti 19
milljónum karlmanna.
Pétur í Reyni-
hlíð látinn
A föstudagskvöldið lézt Pétur
Jónsson fyrrum hótelhaldari i
Reynihlið við Mývatn. Pétur var
74 ára að aldri, og lézt að heimili
sinu.
verndarráð
í Eldey
JGK-Reykjavik
Eins og menn rekur ef til vill
minni til, klifu sjö menn Eldey
sumarið 1971 og varð af mála-
rekstur þvi eyjan er friðuð og
bannað að klifa hana nema meö
leyfi náttúruverndaráðs. Nú
hefur sjömenningunum veriö
boðin dómsátt, sem hljóðar upp á
sex þúsund króna sekt en það
vilja þeir ekki fallast á.
Þeir fara fram á vettvangs-
rannsókn i málinu til að gengið
verði úr skugga um i eitt skipti
fyrir öll hvort þeir hafi valdið
spjöllum i eynni. Þetta hefur þvi
tekið dálitð spélega stefnu, þvi að
hætt er við að landganga i Eldey
geti orðið náttúruverndarráði og
saksóknara rikisins, erfitt við-
fangsefni — nema þeir veröi sér
úti um loftbelg.
Tækni og
vísindi í
hljóðvarpi
Umsjónarmenn þáttarins
Tækni og vísindi óska að
vekja athygli á því,að n.k.
þriðjudag hefst í hljóð-
varpinu hinn fyrsti þriggja
þátta, sem fjalla um
uppruna lífs á jörðu og
þróun þess. Þátt þennan
viljum við kynna með
eftirfarandi inngangs-
orðum þáttarins n.k.
þriðjudag:
„Mannshugurinn hefur lengi
glimt við ráðgátuna um uppruna
lifs á jörðu. Frá ómunatið hafa
menn reynt að skapa sér senni-
lega mynd af uppruna lifs og
manna. Sumar þessara hug-
mynda hafa verið hnepptar i
heimspekileg og trúarleg kerfi.
Gamlar trúarsetningar drápu i
dróma viðleitni manna til að
skilja ráðgátuna um eigin
uppruna og héldu mönnum i
fjötrum öldum saman.
Við rannsóknir á hinni lifandi og
dauðu náttúru hafa visindamenn
i mörgum greinum aflað þekk-
ingar, sem snerti mjög ýmsa
þætti sagna, kenninga og trúar-
setninga um uppruna lifsins og
þróun þess. Þessi þekking hefur i
flestu stangazt á við hinar gömlu
hugmyndir. Á siðari árum hafa
visindamenn i vaxandi mæli beint
athygli sinni og rannsóknum að
þeim þáttum náttúrunnar, sem
gætu frætt okkur um upp
runa sólkerfisins, jarðar, lifs
á jörðu og þróun þess. Á grund-
velli gloppóttrar þekkingar hafa
visindamenn sett fram kenningar
um þessi efni. Margar hafa orðið
ærið skammlifar, en þessari við-
leitni vex þó jafnt og þétt fiskur
uffl hrygg, og hverja nýja eða
endurbætta kenningu má styðja
með þekktum staðreyndum i
vaxandi mæli.
Ætla má,aðmörgum hlustendum
þyki efnið forvitnilegt,og þvi mun
verða reynt að gera þvi skil i
þremur þáttum með tveggja
vikna millibili undir flokknum
Tækni og Visindi. Efni það, sem
flutt verður hér i kvöld, verður
fyrst og fremst inngangur að
meginefninu”.