Fréttablaðið - 12.06.2004, Page 41
LAUGARDAGUR 12. júní 2004
Hjá okkur færðu lán til að
...kaupa íbúðina
...setja glerskála á svalirnar
...gera við húsnæðið
...eignast sumarhúsið
...fá nýja draumabílinn
...ferðast um heillandi lönd
...kaupa nýju uppþvottavélina
...skipta um sófasettið
og til að gera svo ótal margt fleira
Ráðgjöf og einstaklingsbundin
þjónusta fylgir þér alla leið.
Má bjóða
þér lán?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
SP
V
2
50
02
06
/2
00
4
SPV - Borgartúni 18 • Hraunbæ 119 • Sí›umúla 1
fijónustuver, sími 5754100
Þú ert
stærri
hjá okkur
Taktu lán
þar sem tekið er vel
á móti þér.
„Þetta er mjög skemmtilegt að sjá. Vissulega glæsi-
leg jakkaföt, en þau sem Skjöldur klæðist eru áber-
andi smart, sem og skyrtan og bindið, meðan Oddur
hefur fengið að klæðast þeim sem mér finnst síst og
gera lítið fyrir hann. Skjöldur er einstaklega glæsi-
legur í jakkafötunum og ætti að hugsa alvarlega um
að breyta um stíl, eða í það minnsta hafa jakkaföt
oftar sem valkost, þótt hann sé það mikið kameljón
að hann klæðir hvað sem er. Hins vegar verð ég að
viðurkenna að Sturla í jakkafötum er skelfileg sjón.
Það er eins og maðurinn sé kominn í buxnadragt!
Það vantar bara pinnahælana. Eins og hann hafi far-
ið í kynskiptaaðgerð við það eitt að fara í jakkaföt-
in, svona svakalega málaður og tilhafður. Sturla er
greinilega týpa sem vill vera málaður og á að fá að
vera eins og hann er, þótt persónulega finnist mér
málaðir karlar mjög ókarlmannlegir. Í jakkafötun-
um er eins og eitthvað alvarlegt hefði gerst! Ég
hefði frekar vilja sjá hann í sínum eigin bol undir
svartri klassíkinni. Þá finnst mér Oddur þurfa að
finna sér einhvern milliveg í sínum eigin stíl og svo
jakkafötunum. Finnst eins og hann, og reyndar
Sturla líka, séu enn það ungir að þeir hafi ekki enn
myndað sér eigin stíl. Þeir ættu hvorugir að vera
með bindi, því bindi klæða ekki alla. Það fengi eng-
inn að setja bindi um hálsinn á mér, en svei mér ef
ég væri ekki til í bindið sem Skjöldur klæðist. Alveg
áberandi flott.“
[ HVAÐ FANNST HONUM? ]
SVAVAR ÖRN, HÁRGREIÐSLUMAÐUR OG TÍSKULÖGGA
Það er verið að finna til jakka-
föt, skyrtur, bindi og skó handa
þremur hommum sem oftast eru
þekktir fyrir að klæða sig djarft
og glaðlega. Vandamálið er bara
að finna réttu stærðina, en það
seljast varla jakkaföt á Íslandi
undir stærðinni 46, sem þykir
stærð fyrir smávaxna karlmenn
og granna. Strákarnir eru í
stærðum 42 til 44. „Ætli hommar
hugsi ekki meira um línurnar en
hinir fjölmörgu stóru, stæðilegu
og vel bólstruðu karlmenn Ís-
lands,“ veltir Sturla fyrir sér og
bætir við að bumba sé í þeirra
augum algert nó-nó. Bannað. Al-
gjört tabú.
ODDUR ANDRI
THOMASSON AHRENS
Lausnin felst í öryggisnælum
og brátt eru allir komnir í há-
klassa hönnuð jakkaföt í sí-
gildasta kantinum, ásamt hefð-
bundnum herraspariskóm. Breyt-
ingin er gífurleg, en þeir sem sjá
þremenningana storma um
marmaragólf Kringlunnar í þess-
um glæsiklæðnaði eiga bágt með
að líta ekki þrisvar. Góðir og
mjúkir hálsliðir koma að gagni,
enda glæsileg sýn á ferðinni.
„Úff, nú er virkilega horft á
mann, en ekki þegar maður er
uppstrílaður í eigin galla,“ segja
þeir hlæjandi, í og með hissa á at-
hyglinni. Oddi segist líða skringi-
lega svona fínt og herralega
klæddur. „Ég meina; þetta er
fínna en fínt. Ég mundi ekki einu
sinni vera svona klæddur á að-
fangadag, og varla í jarðarför,
þótt þeir sem þekkja mig mundu
strax álykta sem svo að ég væri á
leið til kirkju.“
Þeir eru vanir að finna augun á
sér vegna stíls og framkomu þess-
ir strákar, enda sláandi ferskir og
sumarsætir. Skjöldur Eyfjörð seg-
ist eiga fern jakkaföt sem hann
notar reglulega, einkum þegar
hann er í stoltu skapi og finnst til-
efni til að klæða sig verulega fínt.
„En fötin skapa manninn. Það er
ekki spurning,“ segir hann og læt-
ur í veðri vaka að skap ráði því
hverju hann klæðist að morgni. Í
hans tilviki eigi viðhlæjendur allt
eins von á honum uppáklæddum í
jakkafötum með bindi.
Allir segjast þeir eyða drjúg-
um tíma og fjármunum í útlit og
klæðaburð, en gefa ekki upp nein-
ar tölur, enda prívatmál hvers og
eins. Þá segjast þeir versla mest í
Mótor, Sautján og Deres, sem
bjóði upp á buxur og jakka í minni
númerum en hefðbundnari herra-
fataverslanir. „Svo gera þessi nið-
urmjóu og sígildu buxnasnið
mönnum með stutta og svera fæt-
ur mikinn óleik. Gera að verkum
að maður virkar bæði kubbs- og
kallalegur,“ segir Skjöldur við
samhljóma undirtektir þeirra
Sturlu og Odds, sem segjast aldrei
mundu kaupa sér svona föt. „En ef
buxurnar væru með lægri streng,
þröngar yfir rassinn og lærin, og
útvíðar fyrir neðan hné, mundi ég
hiklaust fjárfesta í svona spari-
buxum. Ekki síst ef þau væru í
skærum lit með ofnum glimmer-
þræðum í efninu,“ segir Sturla og
Skjöldur bætir við að hönnuðir
jakkafata saumi ekki slíkar buxur,
nema Dolce og Gabbana, sem geri
það með stæl. Bætir við að þeir
sem hugsi mikið um eigið útlit
eigi það sameiginlegt að vera
meðvitaðir um sjálfa sig sem kyn-
verur og vilji undirstrika lík-
amann með fallegum aðsniðnum
fötum. „Ég spái rosalega mikið í
útlitið og það er einfaldlega
hobbýið mitt, líkt og aðrir hafa
áhuga á fluguveiði eða golfi.“
Í raun eru þeir eins og fersk
sápuauglýsing í útgeislun sinni,
þessir þrír ungu Íslendingar, og
Oddur upplýsir að tími og pening-
ar fari ekki einungis í fatakaup,
heldur einnig umhirðu hárs, hár-
vörur, líkamsrækt, snyrtivörur og
hvers kyns andlitskrem og með-
ferðir. „En gegnumgangandi er að
okkur er slétt sama um álit ann-
arra þegar kemur að klæðaburði
og öðru útliti. Þorum að klæða
okkur litríkt og djarft; að njóta
lífsins. Aðalatriðið er fyrst og
fremst að okkur líði vel og séum
sáttir í eigin skinni.“
thordis@frettabladid.is
40-41 (28-29) Breytt lúkk 11.6.2004 17:56 Page 3