Tíminn - 25.11.1972, Page 17
Laugardagur 25. nóvember 1972
TÍMINN
17
Þórarinn Þórarinsson ritstjóri og alþingismaður, óskar Marteini til
hamingju. Fremst á myndinni er Hugrún Pétursdóttir, eiginkona
Marteins.
Ellert B. Schram, alþingismaður, og knattspyrnumaður ársins s.l.
þrjú ár, óskar Marteini til hamingju.
afur Erlendsson formaður Knattspyrnuráðs Reykjavikur, ávarpar
tein. Fremst á myndinni sjást Ellert B. Schram og Sigmundur
larsson, iþróttafréttaritari Tímans.
Stórleikur í 1. deild:
Tekst FH að hefna
ófaranna frá því f fyrra
þá vann Fram 18-13 í Hafnarfirði
- sfðasta áratuginn hafa liðin skipzt á að vera
Islandsmeistarar i handknattleik
Annað kvöld fer fram í
iþróttahúsinu í Hafnar-
firði, leikur í handknatt-
leik, sem margir hafa
beðið eftir— leikur erki-
fjandanna, Fram og FH.
Þessi lið hafa barizt um
islandsmeistaratitilinn
síöan 1961 — leikir þeirra
bjóða ávallt upp á geysi-
lega spennu og vel leik-
inn handknattleik. Liðin
leika mjög ólíkan hand-
knattleik, FH leikur
mjög hraðan handknatt-
leik og frjálst spil, en
Fram-liðið leikurafturá
móti mjög yfirvegaðan
handknattleik, sem
byggist upp á leikað-
ferðum og línuspili —
það var einmitt Fram-
liðiö, sem innleiddi línu-
spil í íslenzkan hand-
knattleik. Síðasta ára-
tuginn hafa félögin
skiptzt á að verða is-
landsmeistari.
Árið 1962 varð Framliðið að
einveldi i handknattleik, þá
sigraði það FH i úrslitaleik i
gamla Hálogalandshúsinu og
stöðvaði þar með sigurgöngu
F'H. En nú skulum við lita á ís-
landsmeistaratitilinn, frá
þessum úrslitaleik 1962, og sjá
hvernig Fram og FH hafa
skipt honum á milli sin:
1962 FRAM
1963 FRAM
1964 FRAM
1965 FH
1966 FH
1967 FRAM
1968 FRAM
1969 FII
1970 FRAM
1971 Fll
1972 FRAM
1973 *>
llér sést Sigurður Einarsson, hinn snjalli linumaður Fram, skora
i leiknum gegn Val. Annað kvöld leikur hann með félögum sfnum
úr Fram i Hafnarfirði — mótherjarnir eru FH.
Leikurinn annað kvöld hefst
kl. 20.15 og má búast við að
hann verði skemmtilegur og
spennandi. - Fram og FH
hafa einu sinni áður leikið i
iþróttahúsinu i Hafnarfirði,
það var lyrri leikur þeirra i fs-
landsmótinu i fyrra og lauk
honum þá með sigri Fram
ltt: i:t. lJað má reikna með að
leikurinn annað kvöld verði
ekki eins ójafn og má fastlega
búast við að FH hafi mikinn
hug á að helna fyrir tapið i
fyrra.
Siðari leikurinn i Hafnar-
firði, verður á milli Hauka og
KR, en liðin eru svipuð að
slyrkleika og rriá þvi segja að
leikurinn verði jafn og spenn-
andi Haukar eru sigur-
slranglegri, sérstaklega
vegna þess, að liðið leikur á
heimavelli. Sem sagt, tveir
spennandi leikir annað kvöld
leikir, sem örugglega draga
áhorfendur að. _ sos
PETERS MARKHÆSTUR I
1. DEILD I ENGLANDI
Hinn snjalli knatt-
spyrnumaöur Totten-
ham Hotspurs, Martin
Peters, er nú markhæst-
ur i 1. deildinni ensku,
hann hefur sent knöttinn
14 sinnum i netið i
deildar-, bikar-, og
Evrópukeppni. Hann
byrjaði ungur að leika
knattspyrnu með
Lundúnaliðinu West
Ham, en var svo seldur
til Tottenham, eða
Spur'seinsog Lundúnar-
búar kalla liðið. Á listan-
um yfir markhæstu leik-
menn eru margar frægar
kempur, eins og til dæm-
is markaskorararnir
miklu Malcolm
Macdonald og Ted
McDougall, en hann var
i haust keyptur til
Manchester Utd. frá 3.
deildarliðinu Bourne-
mouth. Þá er Rogers
einnig á listanum —
hann var keyptur til
Crystal Palace frá
Swindon.
Nú skulum við lita á listann
yfir markhæstu leikm. i 1. og
2. deild. Mörkin, sem talin eru,
eru skoruð i deildar-, bikar- og
Evrópukeppni.
Markhæstu menn i 1. deild:
14mörk: Peters (Tottenham).
13 mörk: Robson (West Ham)
og Richards (Wolves).
12 mörk: McDonald (New-
castle) og Marsh (Man. City).
11 mörk: Chivers (Totten-
ham) og Latchford (Birming-
ham).
10 mörk: Radford (Arsenal),
Garland (Chelsea), Jones
(Leedsj Toschack (Liverpool)
og Tudor (Newcastle).
9mörk: Rogers (C. Palace) og
Hurst (Stoke).
8 mörk: Hinton (Derby),
Hughes (Liverpool), Cross
(Norwich) og Keegan (Liver-
pool).
2. deild:
11 mörk: Givens (QPR).
10 mörk: Pearson (Hull).
9 mörk: Bowles (QPR),
Halom (Luton ) og Wood
(Millwall).
8 mörk: Fletcher (Burnley),
James (Burnley), Cowling
(Huddersf.) Holme (Hull),
Curran (Oxford) og Joicay
(Sheff. Wed).