Fréttablaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 18
Ef þér er sagt upp störfum þá hefur þú nóg af frítíma. Ekki eyða honum að óþörfu heldur reyndu að nýta hann til góðs. Farðu á námskeið í öllu mögulegu; allt frá spænsku til leirkrúsagerðar. Það er svo ánægjulegt að hleypa sköpunargáfunni út. Hildur Arna Gunnarsdóttir hefur nýlokið sínu fyrsta ári við Land- búnaðarskólann á Hvanneyri þar sem hún leggur stund á umhverf- isskipulag. Námið er alls þrjú ár og Hildur Arna hefur einmitt náð að næla sér í sumarvinnu í sam- bandi við nám sitt. Hún fékk styrk í vor frá Nýsköpunarsjóði náms- manna til að fjármagna verkefni sem ber heitið Lífið að húsabaki: umhverfi bakgarða við húsasund í vesturbæ Reykjavíkur. Þar kannar hún sérstaklega sam- byggða garða í tvílyftum og þrí- lyftum húsum. „Þetta verkefni þróaðist einhvern veginn og var eiginlega bara tilviljun. Ég hafði hug á að vinna með umhverfið og gera eitthvað í sambandi við nám- ið,“ segir Hildur sem vann verk- efnið í sameiningu við leiðbein- anda sinn, Kristínu Þorleifsdóttur, landslagsarkitekt og lektor á um- hverfisskipulagsbraut við Land- búnaðarháskólann á Hvanneyri. „Hildur fékk hugmyndina og síðan tók hún saman hvað hún vildi skoða. Síðan sendum við hug- myndir á milli okkar og þannig þróaðist verkefnið. Þetta verkefni fellur einmitt afskaplega vel inn í rannsóknir sem ég hef verið að gera síðustu ár í Bandaríkjunum. Þar var ég að greina bakgarðaum- hverfi og kann hvernig bakgarðar hafa áhrif á samfélagið. Í raun og veru eru bakgarðar og húsasund söguleg þar sem þetta voru þjón- ustusund og staðir þar sem fólk hittist,“ segir Kristín en markmið verkefnis hennar Hildar er ein- mitt að athuga stemningu og anda bakgarða og húsasunda. „Þetta er svo óformlegt umhverfi þar sem þessi hluti hússins snýr ekki út að götunni. Þetta er persónuleg teng- ing við íbúa og umhverfi og gaman að sjá persónulega túlkun fólks á umhverfi sínu. Umhverfið hefur vissulega mikinn umhverf- ishvata og hér hittist fólk á förn- um vegi. Ég vil reyna að ná til- finningunni á þessum stöðum í borginni og reyna að festa hana á blað. Það er mjög erfitt en samt ánægjulegt,“ segir Hildur sem er með afmarkað svæði sem hún skoðar og kannar síðan þrjú að- skild húsasund gaumgæfilega. Vesturbærinn var kveikjan Hildur Arna býr við Holtsgötu og því rétt hjá húsasundi. „Vestur- bærinn hafði mikil áhrif á mig. Ég hef búið þar í þónokkurn tíma og fyrst þegar ég kom hingað þá fannst mér ekki vera neinn gróð- ur. Síðan komst ég að því að hann er allur á bak við húsin. Götu- myndin er harðari en svo er mikið líf á bak við,“ segir Hildur Arna en Kristín varð líka heilluð af bak- görðum í Vesturbænum. „Það er svo gaman að hitta einhvern með sömu pælingu. Ég bjó á Granda- veginum og gekk alltaf í gegnum húsasund á hverjum degi og það var kveikjan að rannsóknum mínum í Bandaríkjunum,“ segir Kristín. Verkefni á fjórum stigum „Uppbygging verkefnisins var í fjórum þáttum. Fyrst byrjaði ég á heildinni og skoðaði afmarkaða svæðið sem ég ætlaði að kanna út í ystu æsar. Ég kannaði sögulega þróun svæðisins og reyndi að átti mig á einkennum þess. Síðan fór ég í staðgreiningu á því. Ég fram- kvæmdi sem sagt verkefnið með aðstoð Kristínar. Því næst tók ég tvo daga í götumynd svæðisins og bútaði það niður í lítil svæði og fór yfir þau hvert í sínu lagi. Núna er ég á því stigi að ég fer út á hverjum einasta degi og á mis- munandi tímum og og skrái allt niður; hvernig veðrið sé, hvað klukkan sé og margt fleira. Síðan nota ég öll skynfærin til að njóta umhverfisins í botn og fíla staðinn almennilega. Ég hitti fólk og spjalla við það um umhverfið og verkefnið mitt og ég hef fengið mjög góðar viðtökur. Fólk er mjög opið og er sammála mér í því að það fylgir húsasundum einhver sjarmi og andi sem erfitt er að koma í orð. Eftir nokkra daga fer ég síðan yfir á næsta og jafnframt síðasta stigið sem er að fá viðhorf íbúa húsasundanna sem ég skoða. Þá kafa ég dýpra í vitund fólks og er með formlegri spurningar þó þær séu líka bara spjall,“ segir Hildur Arna. „Þetta kallast eigin- leg aðferðarfræði þar sem þú opnar þig fyrir áhrifum umhverf- isins og ert opinn fyrir verkefn- inu,“ bætir Kristín við. Ævintýri líkast Þó að bakgarðar Vesturbæjarins séu vel faldir á tímum þá er vel þess virði að fá sér göngutúr um hverfið og soga að sér töfra nátt- úrunnar. Í húsasundum eins og þeim sem leynast í Vesturbænum getur allt gerst og um stund sjá augun eitthvað sem þau sjá ekki dagsdaglega. Gamlar þvotta- snúrur, mislit og mishá hús, tíu eins hús í röð og engin eins máluð, falleg trjáhús og illgresi sem fær að vaxa frjálst. „Þessir staðir eiga erfitt uppdráttar og vantar að skrá þá staði sem mikilvægir eru fyrir íbúa. Þá þarf ekki að friða heldur þarf að viðurkenna það og viðurkenna að ég á staðinn og staðurinn á mig. Allir setja mark sitt á umhverfið á þessum stað og mikill sjarmi yfir þessu öllu saman,“ segir Kristín að lokum. lilja@frettabladid.is Ævintýraheimur í miðborginni: Sumarvinna með sjarma Hildur Arna Gunnarsdóttir og Kristín Þorleifsdóttir. Heiti verkefnis: Lífið að húsabaki: umhverfi bakgarða við húsasund í Vesturbæ. Lengd: Þrír mánuðir. Framkvæmdaraðilar: Hildur Arna Gunnarsdóttir og Kristín Þorleifsdóttir. Markmið: Kanna áhrif umhverfis á samfélagið. Staður: Húsasund og bakgarðar í vesturbæ Reykjavíkur. Bakgarðar í Vesturbænum eru af öllum stærðum og gerðum en hafa allir sinn sjarma. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI 18-19 (02-03) Alt Atvinna 17.7.2004 19:54 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.