Tíminn - 29.04.1973, Blaðsíða 1
WOTEL miMlfí
„Hótel Loftleiðlr býður gestum
slnum að velja á milli 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa lika Ibúðir tll boða.
Allur búnaður mlðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL.
Með hjarta hægra megin og
öll innyfli öfugt við aðra
Þannig er ekki nema einn
af hverjum 100 þúsundum
„KLÆDIÐ barnið i — þér getið
farið. Þetta er ágætt. Það er með
hjartað hægra megin — næsti
gerið svo vel”! Þannig komst
læknirinn að orði við Fjólu
Magnúsdóttur, er hann úr-
skurðaði, að telpan hennar, hún
Steinunn, væri að þvi leyti frá-
brugðin þorra fólks, að skaparinn
hefði látið það vera vinstra megin
i henni, sem er hægra megin i
öðrum og öfugt.
Steinunn er næstyngsta barn
hjóna á Bollagötu 3, Fjólu
Magnúsdóttur og Ólafs Steinars
Valdimarssonar viðskipta-
fræðings, skrifstofustjóra i sam-
göngumálaráðuneytinu. Hún er
nú ellefu ára gömul, litfrið og
ljóshærð eins og Sigrún i kvæði
Jóns Thoroddsen .sérlega
heilsuhraust og mun þroskaðri en
gengurog gerist. Hún er nemandi
i æfingabekk Kennaraskólans-
— Það er bara ein stelpa i
minum bekk, sem er stærri en ég
segir Steinunn brosandi.
Annars er hún þannig á ár
komin , fædd i janúar, að hún er
yngri en bekkjarsystkini hennar
yfirleitt.
— Ég er dálitið upp með mér af
þvi, sagði Ólafur Steinar, að
ég komst fyrst að raun um, að
hjartað var hægra megin i henni.
Hún var þá nokkurra mánaða
gömul, og ég að dilla henni á
hnjánum á mér, þegar ég varð
þess áskynja, að hjartað sló
hægra megin. En náttúrydega
vildi enginn trúa mér.
— Ég átti hana hérna á
fæðingardeild Landspitalans,
sagði Fjóla, og þar varð enginn
þess var, að hún væri i neinu frá-
brugðin öðrum börnum. Annars
hef ég heyrt, að hjartað sé nokkuð
miðsvæðis i kornungum börnum.
Það var svo þegar hún var niu
mánaða, að vjð fórum með hana i
skoðun, og eftir varð þaö ekki
véfengt, að Ólafur hafði haft rétt
fyrir sér.
Ég get ekki neitað þvi, sagði
Fjóla enn fremur, að mér brá
anzi mikið, þegar læknirinn kvað
upp úrskurð sinn á svona
stuttaralegan hátt. Ég var hálf-
partinn miður min fyrst á eftir.
En það er ekki bara, að hjartað
sé hægra megin i henni, heldur
eru öll innyflin öfugt við það sem
gengur og gerist — botnlanginn,
lifrin og hvað eina. Það upp-
götvaðist aftur á móti ekki fyrr en
fyrir þremur árum. Það kvað
sem sé stundum fylgjast að, að öll
liffærin hafi raðazt öfugt innan i
fólk, en stundum er það bara
hjartað, sem er öfugu megin.
Þetta er þó afarsjaldgæft — gerist
um einn af hverjum hundrað
þúsund, hef ég heyrt. Samt er
okkur sagt, að þessu sé svona
farið um einn þekktastan lækni
hérlendis. Annars er þetta bara
eins og að vera örvhentur og
sakar fólk ekki nokkurn skapaðan
hlut.
— Við munum ekki einu sinni
eftirþessu nema endrum og eins,
sagði Ólafur Steinar, og það var
frásögn i Timanum á föstudaginn
af telpu i Ástraliu, sem minnti
okkur á þetta núna. Annars voru
fyrstu kynni min af þessu fyrir-
bæri þau, að ég var að lesa sögu
Framhald á bls 39
Þetta er Steinunn ólafsdóttir, ellefu ára gömul, stálhraust og þroskamikil, enda þótt skaparinn hafi
raðað öðru vísi innan ihana en gengur og gerist. — Timamynd: Gunnar.
Hús nær helmings landsmanna
eru nú hituð með jarðvarma
Jarðhitinn hlunnindi, sem eru milljarða virði
SÖGUR og fornminjar bera
með sér, að snemma á öldum
hafa íslendingar virkjað
laugar að einhverju leyti, að
minnsta kosti gert baðstaði og
sennilega einnig sundiaugar.
Það mun aldrei hafa fallið
niður með öilu eins og meðai
annars má ráða af þvi, aö Arni
lögm. Oddson andaðist i Leir-
árlaug. Fyrir siðustu alda-
mót komst að nýju skriður á
að búnar væru til frumstæðar
sundlaugar i landinu. Fyrir á
að gizka sextiu árum hug-
kvæmdist bónda i Borgarfirði
að leiða heitt vatn i bæ sinn.
Nú er svo komið, að nærfellt
helmingur landsmanna notar
jarðvarma til upphitunar i
húsum sinum.
Eins og kunnugt er beitti
Jónas Jónsson frá Hriflu sér
mjög fyrir þvl i ráðherratið
sinni, að skólar væru reistir á
þeim stöðum, þar sem jarð-
hita naut við, og jarðvarminn
notaöur til þess að hita
húsakynni og sundlaugar
þessara stofnana. Nokkru fyrr
hafði fyrsti skólinn, sem
þessara hlunninda naut,
Laugaskóli i Reykjadal, verið
reistur.
í siðasta hefti sveitar-
stjórnarmála er grein eftir
Unnar Stefánsson um þessi
efni. Segir þar, aö siðasta ár
hafi orkugjöf hitaveitna i
landinu numið 430 milljónum
gigavattstunda og söluverð-
mætið numið 430 milljónum
króna. Ef olia hefði verið
notuð til þessarar upphitunar i
stað hins heita vatns úr iðrum
jarðar, hefði kostnaðurinn
orðið riflega tvöfaldur, sem
næst einn milljarður króna,
þar af 660 milljónir króna i
erlendum gjaldeyri.
Árið 1930 var stigið fyrsta
sporið i þá átt að nýta jarð-
varma til annars og meira en
að hita hús og hús. Þá var heitt
vatn leitt úr þvottalaugunum i
Reykjavik i Landspitalann,
Austurbæjarbarnaskólann og
eitthvað sextiu ibúðarhús i
Reykjavik. Fyrsta heitaveita,
sem miðuð var við þarfir heils
sveitarfélags, komst þó ekki á
fyrr en 1944, þegar ólafs-
fjörður fékk hitaveitu. Siðan
komu hitaveitur i Reykjavik,
Hveragerði, á Sauðárkróki og
Selfossi, þar næst á Dalvik,
Húsavik, i Reykjahverfi og
Mývatnssveit. Loks voru svo
siðast liðið haust teknar i
notkun hitaveitur á Sel-
tjarnarnesi og Hvammstanga.
Nú hafa samningar verið
gerðir um hitaveitu i Kópa-
vog, og munu Garðahreppur
og Hafnarfjörður trúlega
fylgja þar á eftir, og áætlanir
hafa verið gerðar um hita-
veitu á Blönduósi, þótt þær
hafi borið upp á sker i bili, og
sú hugmynd er uppi að virkja
jarðvarma viö Svartsengi i
Grindavik, og leiða þaðan
heitt vatn tii Grindavfkur og
byggðarlaganna á Suður-
nesjum. Leit að nægum jarð-
hita i grennd við Akureyri
hefur aftur ekki borið nægan
árangur.
Þótt sleppt sé Blönduósveitu
og Svartengisveitu, myndi
hitaveitur spara þjóðinni
meira en einn milljarð króna i
gjaldeyri, ef annað nær fram
að ganga af þvi, sem nú er
ráðgert. Þvi marki verður
vafalitið náð á þessum ára-
tug.
Af þessu má ljóst vera,
hversu gifurleg hlunnindi
jarðhitinn er. Hann vegur það
upp á sinn hátt, að við búum i
fremur köldu og umhleyp-
ingasömu landi. En til við-
bótar upphitunar húsa og
notkun heits vatns i sund-
laugar, kemur siðan öll sú
ræktun, sem jarðhitinn gerir
mögulega, auk þess sem ekki
er ósennilegt, að fljótlega reki
að þvi, að jarðhitinn verði
notaður til heyþurrkunar og
margvislegs iðnaðar og jarð-
gufa til stóraukinnar raforku-
framleiðslu.