Tíminn - 29.04.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 29. aprll 1973.
TÍMINN
5
Aukin mentun
starfsfólks
í þróunarlöndum
Mikill fjöldi fólks í Þýzkalandi
starfar að þvi að veita margs
konar aðstoð fólki i þróunar-
löndunum. betta aðstoðarfólk
fær stöðugt sendar upplýsingar
og mikið af ritum með viðbótar-
upplýsingum og fróðleik, sem
getur komið þvi vel i starfinu.
Til dæmis má nefna það, að
skrifstofan, sem hefur yfir-
umsjón með þessum störfum,
sendi út á slðasta ári 12 þúsund
pakka með upplýsingaritum,
bókum og töflum og viðbótar-
fræðslu til annarra landa. Þessi
starfsemi er mjög mikilvæg, þvi
að starfsfólk þetta, sem dvelur
oft langdvölum i fjarlægum
löndum og veitir innfæddum að-
stoð á tæknisviði og mörgum
öðrum sviðum, hefur mjög litla
möguleika á að auka við þekk-
ingu sina, og fylgjast með
nýjungum, en á þennan hátt
berst þeim stöðugt meira og
meira upp i hendurnar, sem
þeir geta lesið og fræðzt um,
þótt þeir séu fjarri heimalandi
sinu.
★
Blómið i hausinn
INGE JEGER var fokvond. Hún
hrópaði til mannsins sins: ,,Þú
gefur mér aldrei blóm!” Þau
áttu heima á annarri hæð i fjöl-
býlishúsi i Bonn, og nú rauk
hún út með þeim ummælum, að
hún væri farin heim til mömmu.
Eiginmaðurinn, Lúther, hallaði
sér út um gluggann, og þegar
hann sá konuna sina koma út á
gangstéttina lét hann tvo
blómapotta detta út um glugg-
ann. Annar lenti á öxlinni á kon-
unni, hinn á höfðinu. „Farðu þá
með eitthvað af þessum blóma-
skröttum með þér heim til kerl-
ingarinnar! ’ öskraði hann. Inge
svaraði ekki — aldrei þessu
vant. Hún lá meðvitundarlaus á
gangstéttinni.
Spilar og
ferðasf
BETLARI eða. velgerðamaður?
Svarið verður ekki á sama veg
hjá öllum, þvi að skoðanir eru
skiptar um þennan unga mann
Yfirvöld margra landa telja
hann flæking, en fjölmörgum
gamalmennum finnst sem hann
sé þeim af himnum sendur.
Hann heitir Metzele og fæddist i
Oberammergau, þar sem
pislarleikarnir eru haldnir. En
honum finnst hann ekki frekar
eiga heima i Bæjaralandi, en
hvar annars staðar sem vera
skal. Hann flækist fram og aftur
með litið fagurlega skreytt
orgel. Hann hefur sótt heim flest
lönd i Norðurálfu, og til Banda-
rikjanna komst hann nýlega.
Hvar sem hann kemur, leitar
hann uppi elliheimili og sjúkra-
hús, þar sem hann spilar fyrir
fólk, ef hann fær frið til þess
fyrir stjórnendunum. Nú ætlar
hann að bregða sér til Austur-
landa, en þegar hann kemst
þaðan, ætlar hann að staðnæm-
ast i Sviþjóð.
★
Þær smiða skip
* t
ÞESSAR ungmeyjar fella sig
ágætlega við vinnu, sem kven-
fólk vinnur þó ekki að jafnaði:
Þær annast logsuðu i hinum
tröllauknu skipasmiðastöðvum i
Brimum. Það munu vera sem
næst hundrað konur i Vestur-
Þýzkalandi, sem hafa slik störf
með höndum. Fyrir aðeins fáum
árum var slikt með öllu óþekkt
meðal Þjóðverja. Þær hafa
sama kaup og karlmennirnir og
við skulum vona, að þær hafi
sömu möguleika á þvi að koma
sér áfram i starfsgreininni.