Tíminn - 29.04.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 29. april 1973.
Trélist Gracielu
MEXIKÓ er föðurland hennar.
Hún heitir Graciela Heyn og
hefur búið til afarstórt lista-
verk, sem á að vera eins konar
tákn alþjóðlegrar listsýningar,
sem opnuð var i Hamborg fyrir
fáum dögum. Þetta eru litaðar,
misháar viðarsúlur, sem mynda
tuttugu og fimm metra langan
vegg, eins og likneskið, sem
myndin er af, gefur til kynna.
Fyrir vikið hefur hún fengið
tuttugu og fimm þúsund þýzk
mörk. A þetta allt verður svo
varpað ljósi með sérstökum
kúnstum, svo að það njóti sin
eins og vera ber.
Elskan, en hvað
þú flautar vel
VöRUBÍLSTJÓRINN Charles
Lang sat á hótel bar i Sidney i
Astralíu og var að flauta lag
nokkuð, sem heitir Little sir
echo. begar ung og lagleg ljóska
gekk að honum og söng „halló,
halló”, einmitt á þeim stað þar
sem átti við i laginu. Þetta
fannst bilstjóranum svo vel til
fundið að hann gaf sig á tal við
stúlkuna og upp frá þvi urðu
kynni þeirra svo náin, að stúlk-
an Iris Scott að nafni, varð frú
Lang átta mánuðum siðar. Upp
frá þessu lifðu þau hjónin i sælu
og hamingju i sex ár en þá fékk
Iris sjúkdóm sem reyndist henni
banvænn. Charles var að vonum
óhress yfir þessu, svo hann fór á
þann sama bar og hann hafði
kynnzt elskunni sinni á i þeim
tilgangi að drekkja sorgum sin-
um. Hann var rétt nýseztur og
farinn að flauta lagið sitt Little
sir echo, þegar að honum gekk
bráðhugguleg kona og söng
„Halló, Halló” einmitt þar sem
það átti við. Þessi kona og
Charles Lang giftu sig fyrir
skömmu. ,
★
Kjörorðið
árið 2000
INN i skógana — það er talið
verða kjörorð Breta árið 2000.
Stórborgirnar gerast æ hvim-
leiðari, og liklegt þykir, að inn-
an örfárra áratuga muni ekki
aðrir hafa búsetu i stórum borg-
um en þeir einir, sem þar verða
óhjákvæmilega að búa af einni
eða annarri orsök. — Skógar
með stórum rjóðrum verða
óskaland fólks árið 2000, segir
frægur háskólakenna ri,
S.Richardson. Ég sé i anda
danshúsin og skemmtistaðina
inn á milli trjánna og ibúðar-
húsin i snyrtilegum röðum i
rjóðrinu.
★
Þefar uppi litina
LÆKNAR eru mikið á höttunum
i kringum seytján ára gamla
sveitastúlku, önnu Starken-
berg, er á heima i grennd við
Frankfurt. Hún hefur'v verið
blind frá fæðingu, en er gædd
furðulegum eiginleika: Hún
virðist geta greint lit með þef-
færunum. Við tilraun, sem
læknar stofnuðu til, gat Anna
greint réttilega lit fjörutiu og sjö
hluta. Hún gat meira að segja
sagt, hvort iitur hlutarins var
ljósgrænn eða dökkgrænn og
þar fram eftir götunum.
bessum tilraunum verður hald-
ið áfram ekki sizt vegna þess,
að sumir láta sér detta i hug
þann möguleika, að kenna megi
öðru blindu fólki að greina liti
með svipuðum hætti og þessi
stúlka gerir. Þess vegna riður á
að finna, i hverju leyndardóm-
urinn er fólginn.
★
Tónlistartrió
þriggja systra
Fiðluleikari, pianóleikari og
sellóleikari — þannig er skipað
hið klassiska trió Nakipbekov-
systranna, sem eru ættaðar frá
Kazakhstan. Elzta systirin,
Elvira, sem er 21 árs, leikur á
fiðlu. Hún er nemandi á fjórða
ári við Tónlistarháskólann i
Moskvu, Elvira vann árið 1972
verðlaun i Niccolo Paganini
keppni fiðluleikara i Genúa á
Italiu. Auk námsins tekur hún
nú þátt i almennum tónleikum
bæði sem einleikari og með
hljómsveit. önnur systirin,
Eleonora, er nemandi á þriðja
ári. Likt og eldri systir hennar
ér hún kunn fyrir næma tilfinn-
ingu sina fyrir samleik. Hún
leikur einnig einleik. Yngsta
systirin, Alfia, leikur á selló. Er
hún nýnemi við Tónlistar-
háskólann. Systurnar eru
nýkomnar frá Belgrad, þar sem
þær tóku þátt i erfiðri keppni
trióa i alþjóðlegri keppni ungs
tónlistarfólks. A tónleikaskrá
þeirra voru verk eftir Mozart,
Beethoven, Brahms og Sjosta-
kovitsj. Hlutu þær heiðursviður-
kenniðgu. Trió Nakipbekov-
systranna er hið fyrsta i stuttri
tónlistarsögu Kazakhstans.
★
Það má passa sig
á þessum læknum
Skurðlæknir einn var hand-
tekinn fyrir svik i New York ný-
lega. Þegar lögreglumaðurinn,
sem handtók hann.var að leiða
hann út i lögreglubilinn, sagði
læknirinn ,.æ, hver andsk..., nú
kemst ég ekki i leikhúsið i
kvöld.” Siðan lýsti hann fyrir
lögreglumanninum, að hann
hefði i fórum sinum tvo miða á
einhverja áhrifarikustu
sýningu, sem sýnd væri i New
York um þær mundir. Lögreglu-
maðurinn fylltist áhuga og
keypti miðana af skurðlæknin-
um. 1 ljós kom,að miðarnir
giltu á fyrirlestur og kvik-
myndasýningu þar sem kynnt
voru nýjustu handtökin við
skurölækningar.
„Hann hefur rétt fyrir sér, það stendur ekkert i
reglunum, sem bannar það!”
DENNI
DÆMALAUSI
Auðvitað ætti himinninn að vera
blár, og grasið grænt, en hver
getur sagt um, hvernig hárið á
henni á að vera á litinn í svona
sjónvarpi.