Tíminn - 29.04.1973, Side 17
Sunnudagur 29. april 1973.
TÍMINN
17
7
; ■ ■
R ' Æ |rvjEÍ-y
mf MfájW ííl Cjfyry /'md I
[ uf'- _•••;
1??M| / /; HiJ/i.
Wu-1'1 /4’ y| :
Vinnuteikning að steindum gluggum i Bystadkirkju.
var 21 árs, þegar bokin kom út,
myndskreytti hana. Og á sama
ári gerði hún fyrsta steinda
gluggann, „Góði hirðirinn” fyrir
Valerkirkju i Austfold.
Glugginn, þar sem einstakl-
ingseinkenni hennar komu fyrst
greinilega i ljós, var gerður fyrir
kirkjuna i Nordstrand. 1 Kross-
kirkjunni i Bergen er glermál-
verk eftir hana, sem nefnist
„Krossfesting”. Þessi mynd var
eftirtakanleg andstæða þeirra
úrlausna sem oftast sáust.
Hinir fimm steindu gluggar,
sem Fröydis Haavardsholm gerði
i kór Þrenningarkirkjunnar i
Osló, eru álitnir þjóðarfjársjóður,
m.a. vegna sögulegs gildis.
Gluggarnir, sem eru átta metrar
að hæð, voru gerðir um eftirfar-
andi efni: sköpunina, sögu
Gyðingaþjóðarinnar, heilaga
þrenningu, pinu Krists og Mariu
og barnið (i norsku landslagi).
Arið 1937 voru tveir þessara
glugga sendir á heimssýningun i
Paris.
Undirstöðutækni i glermálun
lærði F. Haavardsholm hjá hin-
um mikla, norska meistara G. A.
Larsen. Hún hafði ákaflega næmt
litaskyn og náði fljótt sjálfstæð-
um starfshætti i merð ferð sinni á
frumatriðum steinda glersins og
þvi, hvernig hún lét það skina. Við
útfærsluna hættir hún ekki, fyrr
en hver smáflötur hefur fengið
þann nákvæma blæ, og litstyrk-
leika, sem er einkennandi fyrir
alla byggingu myndeiningarinnar
og heildarsvipinn, sem er svo
eftirminnilega áhrifarikur i
gluggunum eftir hana.
Eftir strið kom fram hreyfing i
Noregi i þá veru að endurreisa
fornar byggingar. Fröydis
Haavardsholm kom þar við sögu.
Hún steindi i sérlega góðu sam-
ræmi við aldur og gerð m.a. kór-
glugga hinnar merku
Nikolai-kirkju að Gran á Haða-
landi, sem var reist um 1150 og
endurvigð 3. april 1960.
önnur hlið á viðfangsefnum F.
Haavardsholm kom fram i Ólafs-
teppinu, svo kallaða, 1930. Það
var upphaflega stórt, þrykkt
veggtjald, gert fyrir deild nútima
kirkjulistar á sýningu, sem haldin
var i sambandi við Ólafshátið i
Þrándheimi. Seinna var það glit-
rofið af Karen Prestgard. Frá
sama tima eru auðkennilegir
höklar og messuskrúðar. Þá vann
húndyrir Þrándheimsbiskup o.fl.
Ef til vill er nýstárlegasta og
eftirminnilegasta verk hennar frá
þessum tima svart-hviti glugginn
„Stormur á Genesaretvatni”.
Það er ofsafengið, en þó hamið i
sinum geisandi boglinuhreyfing-
um, sem myrkur og ljós mynda
mótsetningu við.
Arið 1933 gaf Gyldendal Norsk
Forlag út hið þjóðlega söguljóð
Jonsok-natt. F. Haavardsholm
myndskreytti þessa bók i náinni
samvinnu við höfundinn, Hans
Henrik Holm.
Þessi bók er afbragðsverk bæði
teikningar og efni. Bókin er rituð
á landsmáli með dularfullum blæ.
Höfundurinn tekur til meðferðar
töfrandi sumarnótt i Setesdal og
skyggnist djúpt inn i þjóðarsálina
aftur til heiðni og kristni á mið-
öldum. Næstum yfirnátturulega
Stormur á Genesaretvatni. Myndin er máluð á gler
náin samsemd hans við fólk,
hugblæ og sögu i þessum fyrrum
afskekkta, norksa fjalladal veitti
einnig grundvöll eigin dáleiðandi
myndaskarti F. Haavardsholm i
Jonsok-natt. Hér finnur hinn
margslungni, norski tónn
,,,kontrapunktiska” spennu,
nákvæma hliðsetningu i manni og
náttúru, frá viðkvæmri ljóðrænu i
frábærum náttúrumyndum
quinta essentia, til hins
„grafiska”, leikræna krafts i
þöndum diagónölum og gjósandi
afls myrkurs og ljóss. Við þetta
myndar svo mótsetningu ofsa-
þrungið dýr, fugl eða mannvera.
Auk heilsiðumynda, byrjar
hver kafli á stafrós og endar á
smámynd, táknrænni fyrir efni
kaflans.
Fröydis Haavardsholm er
brautryðjandi i list nútima
glermálunar, enda hafa verk
hennar hlotið verðugan sess i list-
hefð Noregs.
Myndir hennar hafa lifrænt
form og ná á áhrifarikan hátt
„anda” Noregs. í þeim gætir
mikils tilfinninganæmis, en samt
aldrei væmni.
Kirkjuleg verk hennar, ekki
hvað sizt, eru gersneydd kreddu
af nokkru tagi, þvi táknmál henn-
ar nær yfir jörð og alheim sem
eina heiid.
Með sanni má segja að Fröydis
Haavardsholm sé heilskyggn
listakona. Hn kemur auga á svo
marga fleti i svo mörgum viddum
bæði i lifi og list.
Þýtt og endursagt. S.Sv.
Veljið yður í hag —
Nivada
OMEGA
©I
Jllpina.
piEnpom
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 — Simi 22804
úrsmíði er okkar fag
^t/ffffff/fffjftJ/ff//fftfjrfJfffttJJ/ffftfffffffftttJtffttfffJfJ^
b Ef ykkur vantar loftpressu,þá hringið og 5
reynið viðskiptin.
!
Gisli Steingrimsson, Simi 22-0-95.
L0FTPRESSA
I
> S ^----
'ftfffffffff/ftffftf/ffffffJfffffftfffftflK'
Þa8 ergott |
,að muna |
" 22-0-95