Tíminn - 29.04.1973, Síða 29
Sunnudagur 29. april 1973.
TÍMINN
29
undir 3 ára erfiðisvinnu. Annað
brot 3-5 ára erfiðisvinna. B — 5-7
ára erfiðisvinna. Annað brot: — 7-
10 ára erfiðisvinna. Narkótiks:
A&B — allt upp undir eins árs
erfiðisvinna. Annað brot: upp
undir tveggja ára erfiðisvinna.
Mexikó. Gerir ekki greinar-
mun: A — eiturlyf fundin i fórum
eiturlyf jasúklings: 2-9 ára
fangelsi og/eða sekt. B — 3-12
ára fangelsi og/eöa sekt.
Holland. Marihuana &
Narkótiks: A & B — með vitund /
án vitundar: upp undir sex
mánaða fangelsi / upp undir
fjögurra ára fangelsi. C — refsing
fyrir neyzlu: sú sama og fyrir A
og B.
Nigeria. Marihuana: A — ekki
minna en 10 ára fangelsi. B —
allt frá 15 ára fangelsi til dauða-
dóms. C — hvers konar eitur-
lyfjaafbrot karlmanna undir 19
ára aldri: Dómur 49 vandarhögg.
Narkótiks: A & B upp undir 10
ára fangelsi.
Sviþjóð. Gerir ekki greinar-
mun: A&B — upp undir 6 ára
fengelsi og/eða sekt.
Sviss. Marihuana & Narkótiks:
A & B — sér til ágóða : upp undir 5
ára fangelsi. Ekki til ágóða: upp
undir 2 ára fangelsi.
Bretland. Narkótiks & LSD
(lysergið): A — upp undir 7 ára
fangelsi. B — upp undir 14 ára
fangelsi. Marihuana & Amfetam-
in: A — upp undir 5 ára fangelsi.
— B —uppundir 14 ára fangelsi.
Deyfilyf (Depressants) & Róandi
lyf (Tranquilizers): A — upp
undir 2 ára fangelsi. — B — upp
undir 5 ára fangelsi.
island: Lög um tilbúning og
verzlun með ópium o. fl.frá 1970
er á þennan veg: 1. grein:
Bannaður er tilbúningur
innflutningur, og utflutningur á
unnu ópium og verzlun með það.
Undir bann þetta falla og opiums-
leifar allar og hvers kyns af-
gangur, einnig það, sem eftir
verður, þegar ópium er reykt. 2.
grein: Lyfsölum er heimilt að búa
til og vinna úr, flytja inn og út og
verzla með óunnið ópium og
ópium til lækninga, morfin,
kókain og heróin, svo og hvers
konar efnisblöndun, sem i er
meira en 1/5% af morfini, eða
meira en 1/10% af heróin og
kókain. Dómsmálaráðuneytið
semur nánari reglur um af-
hendingu lækna á umgetnum
lyfjum. Afengisverzlun rikisins
er heimilt að útvega læknum lyf
þessi frá útlöndum, svo og önnur
lyf. Dómsmálaráðuneytið setur
nánari ákvæði um tilbúning og
úrvinnslu, inn- og útflutning, svo
og verzlun og afhendingu á
nefndum efnum, og setur reglur
um eftirlit með slikri iðju og
verzlun.
3. grein: Unnið og óunnið
ópium, ópium -til læknislyfja,
morfin,kókain og heróin ber að
skilja i lögum þessum samkvæmt
skilgreiningum alþjóðaópium-
fundar 23. janúar 1912. 4. grein:
Dómsmálaráðuneytið getúr úr-
skurðað, að ákvæði laga þessara
gildi um öll efni, hvort semþau
eruafleiddaf morfini, kókaini eða
söltum þeirra eða ekki, enda hafi
sannazt við visindalega
rannsókn, að misnota megi þau á
likan hátt, eða að þau hafi slik
skaðvænleg áhrif, sem efni þau
sem nefnd eru i 2. grein.
5. grein. Óheimilt er að hafa
undir höndum eða varðveita,
veita viðtöku, gefa, afhenda,
selja eða verzla með hvers konar
lyf og efni, er ákvæði laga
þessara taka til og ólöglega eru
flutt inn eða framleidd. Gera skal
uppræka til rikissjóðs slika vöru
og hagnað á verzlun með hana.
6. grein: (Núgildandi refsilög-
gjöf): Brot á lögum þessum og
reglum settum samkvæmt þeim
varða sektum, allt að 1 milljón
króna. eöa varðhaldi og fangelsi
allt að 6 árum, ef um stórfellt
brot er að ræða. bað telst stór-
fellt brot, ef lyfjum þeim eða efn-
um, sem undir lögin falla og ólög-
lega eru flutt inn eða framleidd,
er dreift til margra manna, eða
þau seld gegn verulegu gjaldi,
eða ef um er að ræða innflutning,
útflutning vörzlu, verzlun, mót-
töku, afhendingu, framleiðslu eða
vinnslu þessara lyfja eða efna i
þvi skyni að selja þau, eða dreifa
Framhald á bls 39
A Piccadilly f London siðastiiðið sumar. Táknrænar myndir fyrir hörmungar eiturlyfjanna. Einnig lýsa
þær vei þvi tilfinningaleysi eða afskiptaleysi, sem fólk getur komið sér upp gagnvart vandamálum og
hörmungum sem daglcga blasa við augum. — Hér er ung stúlka um það bil að fara yfirum...............
n